Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hitamet gæti fallið á morgun Hitabylgja hefur skollið á landsmönnum og geta þeir átt von á 25 stiga hita fram eftir vikunni. Tæplega 30 ára hitamet í Reykjavík gæti fallið á morgun. 9.8.2004 00:01
Kosningaeftirlit í Bandaríkjunum Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu ætlar að vera með kosningaeftirlit í bandarísku forsetakosningunum. Íslensk kona verður í forsvari fyrir eftirlitið. Fjölmargir þingmenn kröfðust þess að alþjoðlegt eftirlit yrði með kosningunum efttr reysluna í síðustu kosningunum en þá tók nokkrar vikur úrskurða hver væri sigurvegari kosninganna. 9.8.2004 00:01
Office og Windows á íslensku Tvö algengustu forrit sem notuð eru á markaðinum, Office og Windows, komu út á íslensku í dag. Íslensku forritin eiga að útrýma þeim ensku á innan við þremur árum. 9.8.2004 00:01
Mest 700 metrar í vagninn Stefnt er að því að almenningssamgöngur verði raunhæfur valkostur með nýju leiðakerfi Strætó bs. Helstu markmið eru að fjölga farþegum og stytta tímann sem það tekur fólk að komast á áfangastað. Leiðum fækkar úr 35 í 19. </font /></b /> 9.8.2004 00:01
Hnetur aðalástæða ofnæmislosts Af tæplega 200 börnum sem greinst hafa með fæðuofnæmi eru 23% með ofnæmi fyrir jarðhnetum. Hnetur eru algengasta ástæðan fyrir því að börn fá ofnæmislost. Vaxandi ofnæmistíðni getur stafað af auknu hreinlæti. </font /></b /> 9.8.2004 00:01
Jeppi og rúta í slysi Tveir voru fluttir á slysadeild þegar lítill jeppi og rúta rákust saman á Gjábakkavegi á þriðja tímanum í gærdag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi komu bílarnir hvor úr sinni áttinni þegar slysið átti sér stað 8.8.2004 00:01
Rennsli Jöklu minnkar Rennsli í Jöklu hefur verið í rénun í gær að sögn Guðmundar Péturssonar, yfirverkfræðings við Kárahnjúkavirkjun. Hann segir að vatnsyfirborð Jöklu hafi lækkað um allt að tvo metra og rennslismagn er um 600 rúmsentímetrar á sekúndu, en var um 900 þegar mest var. 8.8.2004 00:01
Lausn vímuefnavandans samfélagsleg Lausn vímuefnavandans felst ekki í að skapa fleiri vistunarrými fyrir unglinga á stofnunum, heldur þarf að auka þjónustu úti í samfélaginu. Þetta er mat Harvey Milkman, bandarísks prófessors í sálfræði, sem staddur er hér á landi og boðar breyttan hugsunarhátt í vímuvörnum. 8.8.2004 00:01
Morðingi vildi iðrast á Gay Pride Lögreglan vildi fresta Gay Pride, göngu samkynhneigðra, á laugardaginn vegna þess að Ásbjörn Leví Grétarsson, sem myrti samkynhneigðan mann árið 2001, var í Reykjavík.<font face="Helv" color="#008080"></font> 8.8.2004 00:01
Oftast af stað innan mínútu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur stöðugt að því að bæta viðbragðstíma sinn. Í flestum tilvikum eru bílar farnir farnir af stað í útköll innan mínútu frá því að hringt er. Miklu skiptir að fólk gefi greinargóðar upplýsingar þegar hringt er í 112. 8.8.2004 00:01
Myndi tryggja hagsmuni Íslendinga Norrænir jafnaðarmenn vilja kanna hvort sérstakt fiskveiðistjórnunarsvæði sé mögulegt. Mikilvægt skref fyrir Íslendinga og Norðmenn í átt að ESB, segir Össur Skarphéðinsson. </font /></b /> 8.8.2004 00:01
Sex létust í sprengingu Sex létu lífið og fjórtán særðust, þar af þrír alvarlega, þegar sprengjur sprungu við skóla í borginni Karachi í Pakistan. 8.8.2004 00:01
Vill nánari samvinnu við ESB Halldór Ásgrímsson segir að Íslendingar og Norðmenn hafi lýst því yfir að þeir muni taka meiri þátt í starfi Evrópusambandsríkjanna á Norðurlöndum og Balkanskaga. Danir og Svíar segja að ESB sé ekki að þróast í sambandsríki, heldur stofnun sjálfstæðra ríkja. </font /></b /> 8.8.2004 00:01
Vill að Ísland gangi í ESB Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, heitir stuðningi við Íslendinga í fiskveiðimálum kysum við að ganga í Evrópusambandið. Segir Norðurlöndin þrjú í ESB hafa góð sambönd og mikil áhrif. </font /></b /> 8.8.2004 00:01
Hryðjuverkastarfsemi trufluð Bandaríkjastjórn telur að komið hafi verið í veg fyrir áform al Kaída um árásir á Bandaríkin, bæði með nýlegum handtökum grunaðra hryðjuverkamanna í Pakistan og Bretlandi og með því að leggja hald á tölvugögn um fimm fjármálastofnanir í Bandaríkjunum. 8.8.2004 00:01
Þyrla sækir öklabrotna konu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til Landmannalauga í gær. Þar hafði þýsk kona misstigið sig og ökklabrotnað. Skálavörður í Landmannalaugum sagði í samtali við fréttastofu að ráðlegast hefði þótt að hringja eftir þyrlu þar sem vegirnir inn í Landmannalaugar væru afar slæmir eftir gríðarlegar rigningar síðustu daga og því nánast tímaeyðsla að hringja eftir sjúkrabíl. 8.8.2004 00:01
Norrænir forsætisráðherrar funda Forsætisráðherrar Norðurlanda hittast í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð í dag klukkan fimm. Á fundinum verður fjallað um norræn málefni, Evrópumál og önnur alþjóðamál. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra verður gestgjafi fundarins af Íslands hálfu í veikindaforföllum Davíðs Oddssonar. 8.8.2004 00:01
10 þúsund útlendingum vísað frá Norska lögreglan áætlar að tíu þúsund útlendingum verði vísað frá Noregi á þessu ári. Aftenposten greinir frá því að þetta sé mesti fjöldi hingað til og að á nærri hverjum degi séu útlendingar sendir með flugi frá Gardermoen flugvellinum. 8.8.2004 00:01
Árekstur við Bústaðaveg Fjórir slösuðust, þar af þrír nokkuð alvarlega, í hörðum árekstri á Bústaðavegi á móts við Veðurstofu Íslands um klukkan sjö í morgun. Fólksbíll sem ekið var í austurátt fór yfir umferðareyju, lenti utan í fólksbifreið sem var á leið í vesturátt og kastaðist því næst á litla rútu sem einnig var á leið vestureftir. 8.8.2004 00:01
Fastir í göngum á Himalayja Að minnsta kosti tuttugu byggingaverkamenn eru fastir í göngum eftir miklar rigningar í afskekktu þorpi á Himalayja svæðinu á Indlandi í morgun. Mennirnir vinna við smíði ganga vegna orkuvers, í um 500 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Nýju Dehli. 8.8.2004 00:01
Sprengja við tyrkneskan flugvöll Einn maður lést og annar særðist illa þegar sprengja, sem þeir voru að koma fyrir utan við eftirlitsstöð við flugvöll í Tyrklandi í gærkvöldi, sprakk. Sá sem slasaðist faldi sig í átta klukkutíma áður en hann gaf sig fram. 8.8.2004 00:01
Einn með allar tölur réttar Einn var með allar tölurnar réttar í Lottó í gær og vann því sexfaldan lottópott eða heilar 39,3 milljónir króna. Sá heppni er með miðann sinn í fastri áskrift. Lottótölurnar voru 2, 20, 29, 32 og 38 og bónustalan var 16. 8.8.2004 00:01
150 skelfiskveiðimönnum bjargað Tæplega 150 skelfiskveiðimönnum var bjargað síðdegis í gær, eftir að hafa verið í sjálfheldu í Morecambe flóa skammt frá Liverpool frá því fyrr um morguninn. Fólkið var af skosku og kínversku þjóðerni og hafði setið fast í blautum sandi eftir að tveir traktorar skullu saman á grynningum, rúmlega sex kílómetra frá landi. 8.8.2004 00:01
Dauðarefsing sett á að nýju Írakska bráðabyrgðastjórnin hefur ákveðið að setja aftur á dauðarefsingu. Hún mun koma til greina í málum morðingja, nauðgara og fíkniefnaafbrotamanna. Dauðarefsing var afnumin þegar Saddam Hussein var hrakinn frá völdum í apríl á síðasta ári. 8.8.2004 00:01
Allawi heimsótti Najaf Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, hvatti skæruliða til að hætta bardögum í borginni Najaf, í heimsókn sinni þangað í morgun. Hann segist ekki ætla að handtaka leiðtoga uppreisnarmannanna, en að engar samningaviðræður geti farið fram fyrr en vopn verði lögð niður. 8.8.2004 00:01
Miðasala á Ólympíuleika tekur kipp Miðasala á Ólympíuleikana hefur tekið kipp eftir rólega byrjun og standa nú þúsundir Grikkja í nokkurra klukkutíma biðröðum í Aþenu. Búist hafði verið við að miðasala myndi ganga betur í Grikklandi en í Sidney í Ástralíu árið 2000, meðal annars vegna sögulegra tengsla Grikklands við Ólympíuleikana, en fyrstu nútíma leikarnir voru haldnir í Aþenu árið 1896. 8.8.2004 00:01
Google leitar að framtíð Reiptog hinna bjartsýnu og svartsýnu fyrir frumútboð Google er hafið. Enn er ekki útséð um hvor hafi betur. Google þarf að móta sér framtíð og vaxa hratt ef það á að standa undir útboðsgenginu. </font /></b /> 8.8.2004 00:01
Leiðtogafundur jafnaðarmanna Leiðtogar norrænna jafnaðarmanna hafa haldið leiðtogafund sinn hér á landi um helgina. Fundurinn er á vegum SAMAK, samtaka norrænu jafnaðarmannaflokkanna og verkalýðshreyfingarinnar. Leiðtogarnir hafa á fundum helgarinnar rætt um samstarf flokkanna og samvinnu Norðurlandaþjóðanna innan Evrópusambandsins 8.8.2004 00:01
Írönskum diplómata rænt Írönskum ríkiserindreka var í dag rænt af írökskum ófriðarseggjum. Myndband frá hópnum sem kallar sig hinn íslamska her í Írak var birt á arabísku sjónvarpsstöðinni Al Arabiya. Á myndbandinu var sýnt vegabréf og nafnspjald mannsins sem heitir Fereidoun Jahani, en hann er starfsmaður sendiráðs í borginni Kerbala 8.8.2004 00:01
Prósak í drykkjarvatni Leifar af þunglyndislyfinu Prósak hefur fundist í drykkjarvatni í Bretlandi. Breska dagblaðið the Observer greinir frá því í dag að skýrsla sem umhverfissérfræðingar unnu fyrir ríkisstjórnina leiði í ljós að Prósak safnist saman í ám og grunnvatni sem notað sé til veitu drykkjarvatns. 8.8.2004 00:01
Bráðabirgða- stjórnarskrá í 60 ár "Stjórnarskrá[in],sem hér um ræðir, er hugsuð og í rauninni yfirlýst sem hrein bráðabirgðastjórnarskrá," sagði Jakob Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi 1944. "Við höfum aldrei sett okkur stjórnarskrá í raun," sagði Tómas Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi 1984. Þá hafði umræðan um endurskoðun stjórnarskrárinnar þegar verið í gangi í fjóra áratugi. </font /></b /> 8.8.2004 00:01
Fjórum ofurhugum bjargað úr sjó Fjórum Bretum sem reyndu að slá heimsmetið í róðri yfir Atlantshafið, var bjargað eftir að bátur þeirra brotnaði í tvennt í óveðri. Danskt skip tók mennina uppí þar sem þeir möruðu í sjónum um 300 mílur vestur af eynni Scilly við Bretland. Einn skipverjanna sagði þá fegna að sleppa lifandi og að þá hlakkaði til að koma heim. 8.8.2004 00:01
Sprengja á veitingahúsi í Pakistan Að minnsta kosti sjö létust og 50 særðust í tveimur sprengingum sem urðu með nokkurra mínútna millibili í borginni Karachi í Pakistan í dag. Sprengjurnar voru festar við tvö mótorhjól sem lagt var fyrir utan veitingastað. 8.8.2004 00:01
Endurnýjun Thule á Grænlandi Samkomulag hefur náðst milli Bandaríkjastjórnar og stjórnar í Danmörku um endurnýjun radarstöðvarinnar Thule á norðvestur Grænlandi. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Per Stig Möller, utanríkisráðherra Danmerkur skrifuðu undir samkomulagið í herstöðinni í Thule. 8.8.2004 00:01
26 flóttamenn fórust 26 flóttamenn fórust þegar þeir reyndu að komast í litlum báti yfir Miðjarðarhafið frá Norður Afríku til Ítalíu í vikunni. Gámaskip bjargaði 74 flóttamönnum um borð í skipið í dag, þar sem þeir voru á reki í litlum báti 130 sjómílum suðaustur af Sikiley, nær matar og vatnslausir. 8.8.2004 00:01
Lofar stofnfrumu- rannsóknum John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrata, segist ætla að aflétta banni við stofnfrumurannsóknum ef hann kemst til valda í Nóvember. Stofnfrumurannsóknir eru mjög umdeildar þar sem frumurnar eru teknar úr nokkurra daga gömlum mennskum fóstrum. Í ágúst 2001 skar forseti Bandaríkjanna niður allan opinberan fjárstuðning við slíkar rannsóknir. 8.8.2004 00:01
Sprenging við hótel í Bagdad Að minnsta kosti tvær sprengjuvörpur lentu í götu nálægt hóteli í Bagdad í dag. Í það minnsta þrír særðust og tveir bílar brunnu. Gestir hótelsins eru sagðir að mestu leyti útlendingar. Það er því sem næst daglegur viðburður að uppreisnarmenn skjóti sprengjuvörpum að hótelum eða opinberum byggingum í Bagdad. 8.8.2004 00:01
Árekstur á Gjábakkavegi Árekstur varð á milli rútu og jepplings um klukkan þrjú í dag á Gjábakkavegi. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðum áttum. Selfosslögregla segir tvo af fjórum farþegum jeppans hafa meiðst lítillega, en aðra ekki. Jeppinn er mikið skemmdur en rútan ók af vettvangi full farþegum. 8.8.2004 00:01
Froskahátíð í Oregon Árleg froskahátíð var haldin í fjórða sinn í Oregon í Bandaríkjunum í gær. Meðal fastra liða á hátíðinni er froskahlaup, þar sem menn og froskar hoppa saman. Þeir sem ekki áttu frosk gátu leigt þá en markaðsverð á froskaleigunni í Oregon er rúmar 200 krónur. 8.8.2004 00:01
Blómaganga í Kólumbíu Hundruð manna tóku þátt í árlegri blómagöngu í Kólumbíu í gær. Gangan er hluti blómahátíðar sem stendur yfir í eina viku. Mann fram af manni hafa Kólumbíumenn útbúið miklar blómaskreytingar í tengslum við hátíðina. 8.8.2004 00:01
Listasumar í Súðavík Listasumri í Súðavík var slitið í dag. Síðustu fjóra daga hafa þjóðþekktir og heimsþekktir listamenn tekið þátt í fjölskylduskemmtun með heimamönnum. Listasumarið var sett á fimmtudagskvöld og hefur staðið yfir alla helgina. 8.8.2004 00:01
Litrík indversk list Þrír af þekktustu myndlistamönnum Indlands eru staddir hér á landi. Óvenjumikil litagleði ríkir í verkum þeirra sem þeir skýra með því að landið sjálft sé fullt af litum og andstæðum, bæði í landslagi og menningu. 8.8.2004 00:01
Margir gripir fundist að Hólum Um tíu þúsund gripir hafa fundist við fornleifauppgröft við Hóla í Hjaltadal í sumar. Sjötíu fornleifafræðingar víða að úr heiminum sóttu ráðstefnu um Hólarannsóknina um helgina. Þetta er þriðja sumar Hólarannsóknar og hefur uppgröfturinn fætt af sér ýmsar merkar niðurstöður. 8.8.2004 00:01
Par rændi barni í Ástralíu Ástralskt par rændi þriggja vikna barni frá móður þess, með því að úða piparúða í augu hennar, fyrir utan verslunarmiðstöð í Melbourne í gærkvöldi. Móðirin grátbiðu ræningjana um að skila barninu. 8.8.2004 00:01
Vill jákvæða kosningabaráttu Helga Árnadóttir, sem býður sig fram til formanns Heimdallar, segir mikilvægt að kosningabaráttan verði háð á jákvæðum nótum, en mótframbjóðandi hennar fór hörðum orðum um félagið í gær og segir það fámenna valdaklíku. 8.8.2004 00:01