Erlent

Dauðarefsing sett á að nýju

Írakska bráðabyrgðastjórnin hefur ákveðið að setja aftur á dauðarefsingu. Hún mun koma til greina í málum morðingja, nauðgara og fíkniefnaafbrotamanna. Dauðarefsing var afnumin þegar Saddam Hussein var hrakinn frá völdum í apríl á síðasta ári. Smáglæpamenn í Írak geta hins vegar á næstu 30 dögum sótt um sakaruppgjöf í Írak, sú sakaruppgjöf nær ekki til morða, nauðgana eða árása á opinberar byggingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×