Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Færeyingar fækka sóknardögum Fiskistofnar á Færeyjabanka eru svo illa farnir að færeysk stjórnvöld hyggjast draga mjög úr sókn skipa þar. Lagt er til að sóknardögum verði fækkað um tíu prósent og að svæðið verði friðað fyrir veiðum í fjórar til sex vikur yfir hrygningartímann. 27.7.2004 00:01
Dýrara að flytja búslóð Það er orðið dýrara en áður að flytja búslóð í gámum til og frá Íslandi, þ.e.a.s. fari menn að lögum. Samkvæmt nýjum lögum þarf sérstakur farmverndarfulltrúi að fylgjast með hleðslu gámanna. Skipafélögin telja þetta til ama fyrir viðskiptavini sína og gámum er enn hleypt úr landi án eftirlits, í andstöðu við gildandi lög. 27.7.2004 00:01
Meiri fuglaveiðar í Reykjavík Fjöldi fólks hefur tilkynnt veiðar á öndum, gæsaungum og jafnvel spörfuglum í Hljómskálagarði, Laugardal og Fossvogsdal í kjölfar frétta af andaveiðum í borginni. Ljóst er að fuglaveiðar í borginni eru mun umfangsmeiri en talið var. 27.7.2004 00:01
Herferð gegn nauðgunum V-Dagurinn, samtök gegn ofbeldi á konum, hafa hafið herferð gegn nauðgunum um Verslunarmannahelgina. 27.7.2004 00:01
Elliðaár freyða Froða á yfirborði Elliðaár vakti athygli manna og óttuðst sumir að jafnvel væri um mengun að ræða af völdum útrásar. 27.7.2004 00:01
Slysahætta í Hallormsstað Það er tímaspursmál þangað til alvarlegt slys verður á veginum í gegnum Hallormsstaðarskóg, en hraðakstur er viðvarandi vandamál þar. Samkvæmt þremur hraðakönnunum sem gerðar voru í júlí, aka aðeins 45 prósent ökumanna á löglegum hámrkshraða. 27.7.2004 00:01
Breytti venju samkvæmt Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra í fjarveru Davíðs Oddssonar, segir að hann hafi vænt þess að forsetinn staðfesti að fella lagafrumvarp um fjölmiðla úr gildi eins og venja sé til. 27.7.2004 00:01
Átti von á staðfestingu forseta Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, segir að hann hafi frekar átt von á því að forsetinn staðfesti að fella lagafrumvarpið úr gildi miðað við þróun málsins. 27.7.2004 00:01
IRA-foringi borinn til grafar Joe Cahill var borinn til grafar í gær. Það var hann sem stjórnaði írska lýðveldishernum í Belfast snemma á áttunda áratugnum þegar samtökin hófu mannskæðar árásir sínar á Norður-Írlandi. 27.7.2004 00:01
Aldrei fleiri fangar Föngum og öðrum þeim sem falla undir refsikerfi Bandaríkjanna heldur áfram að fjölga og nálgast nú að vera sjö milljónir manna. Umfang fangelsiskerfisins hefur aukist stórkostlega og hefur verið áætlað að fjögur prósent af vinnuafli Bandaríkjanna tengist löggæslu- og réttarkerfi landsins. 27.7.2004 00:01
15 laumufarþegar í Finnlandi Fimmtán laumufarþegar frá Asíu fundust um borð í flutningaskipi sem lagðist að bryggju í finnsku borginni Hamína í morgun en skipið var að koma frá Antwerpen. Ellefu þeirra eru frá Víetnam og fjórir frá Indlandi. 26.7.2004 00:01
Hvassviðri á Snæfellsnesi Hvassviðri gerði óvænt á norðanverðu Snæfellsnesi í gærkvöldi og kallaði lögregla út björgunarsveitir til að hemja lausa hluti sem voru farnir að fjúka. Fellihýsi fauk meðal annars um koll á tjaldstæðinu í Stykkishólmi, flaggstöng brotnaði og lausamunir fuku um hafnarsvæðið í Ólafsvík. 26.7.2004 00:01
Lífi gíslanna þyrmt Hópur íslamskra skæruliða í Írak sem heldur sjö erlendum borgurum í gíslingu hefur framlengt frest sem þeir höfðu gefið samningamönnum. Lífi gíslanna verður því þyrmt um sinn en hópurinn ítrekar kröfur sínar um að kúveiskt fyrirtæki, sem starfsmennirnir vinna fyrir, dragi sitt fólk frá Írak. 26.7.2004 00:01
Kerry í hafnabolta John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunu, kastaði fyrsta boltanum í hafnaboltaleik Boston Red Sox og New York Yankess sem fram fór í Boston í gær. Kerry er í Boston vegna flokksþings demókrata sem hefst í dag. Sá sem tók við boltanum var hermaður sem hefur tekið þátt í stríðinu í Afganistan. 26.7.2004 00:01
Samstarf um loðnuleit í haust Útgerðarmenn og Hafrannsóknastofnun hafa þegar ákveðið að hafa samstarf um loðnuleit í október, líkt og gert var nú í vor, en sumarvertíðinni lauk um helgina. Aðeins veiddust 44 þúsund tonn sem er helmingi minni afli en á sama tíma í fyrra. 26.7.2004 00:01
Kínverskur flugræningi yfirbugaður Kínverji sem gerði tilraun til að ræna Boeing 737 farþegaflugvél með 108 farþegum um borð, nokkru eftir flugtak frá Peking í morgun, var yfirbugaður á flugvelli í borginni Zhengzhou eftir að flugstjórinn lenti þar í skyndingu. 26.7.2004 00:01
Missti stjórn á kranabíl Ökumaður 60 tonna kranabíls missti stjórn á bílnum þegar hann ók eftir Ólafsvíkurvegi, vestan við Borgarnes, í gærkvöldi og hafnaði bíllinn utan vegar. Þar er mýrlent og sökk kranabíllinn nokkuð í mýrina. Stór jarðýta og hjólaskófla voru flutt á vettvang til aðstoðar og náðist kraninn upp eftir mikla fyrirhöfn. Ökumann hans sakaði ekki. 26.7.2004 00:01
Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi Upplýsingabæklingur um hvernig bregðast skuli við, verði hryðjuverkaárás gerð á Bretlandi, verður sendur inn á hvert heimili þar í landi á næstunni. Bæklingurinn inniheldur upplýsingar um fyrstu hjálp og í honum má finna leiðbeiningar um undirbúning, svo sem að gott sé að birgja sig upp af dósamat. 26.7.2004 00:01
Sprengingar í Indónesíu Sprengjur heyrðust springa í morgun við kosningamiðstöð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, rétt áður en tilkynna átti úrslit forsetakosninga sem hafa farið fram í landinu. Vitni segist hafa séð fólk hlaupa út úr byggingunni. 26.7.2004 00:01
Laxveiðimenn fagna rigningunni Laxveiðimenn á suðvesturhorni landsins binda miklar vonir við vætutíðina sem nú er gengin í garð þar sem margar ár eru orðnar mjög vatnslitlar. Veiði hefur hins vegar verið allgóð þrátt fyrir það og í gær var t.d. búið að veiða 840 laxa í Norðurá. Blanda kemur verulega á óvart með 820 laxa og 550 löxum hefur verið landað úr Laxá í Kjós.</font /> 26.7.2004 00:01
77 ára kona kveikir í syni sínum 77 ára gömul norsk kona frá bænum Refsnesi var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær, grunuð um að hafa kveikt í í fimmtugum syni sínum. Mæðginin höfðu setið að sumbli á heimili þeirra þegar eitthvað slettist upp á vinskapinn. Lögreglan telur að þegar þar var komið sögu hafi konan skvett rótsterkum spíra á drenginn sinn og kveikt svo í. 26.7.2004 00:01
Einmana Danir Óvenju margir Danir þjást af einmanaleika nú yfir sumarleyfistímann ef marka má aukið álag á neyðarlínur þar sem fólki í vanda er svarað. Fólkið kvartar yfir sumarlokunum verslana og þjónustufyrirtækja og að vinir og kunningjar séu úti um hvippinn og hvappinn þannig að ekki náist samband við þá. 26.7.2004 00:01
Loftbyssa tekin af 11 ára dreng Lögreglan í Keflavík tók loftbyssu af 11 ára gömlum dreng þar í bæ í gær þar sem hann var að skjóta út í loftið. Meðhöndlun slíkra gripa er stranglega bönnuð og þykir mildi að ekki hafi orðið slys á fólki. 26.7.2004 00:01
Bann á asísku fuglakjöti framlengt Evrópusambandið framlengdi í dag bann við innflutningi á kjúklingakjöti og lifandi fuglum frá níu Asíuríkjum af ótta við að ekki hafi náðst að útrýma fuglaflensu í löndunum. Bannið átti að falla úr gildi þann 15. ágúst nk. en það hefur verið framlengt til 15. desember. 26.7.2004 00:01
Morðingi faldist í runnum í viku Lögreglan í Bretlandi handsamaði í gær mann sem grunaður er um fjögur morð en hann hafði þá verið á flótta undan lögreglu í eina viku. Maðurinn, Mark Hobson að nafni, er 34 ára gamall og hafðist við í runnum á bak við verslunarmiðstöð í Jórvíkurskíri þessa sjö daga sem hans var leitað. 26.7.2004 00:01
Kókaín vinsælasta fíkniefnið Kókaín er orðið lang vinsælasta fíkniefnið í Danmörku og nær nú til allra þjóðfélagshópa. Nákvæmlega sama þróun virðist vera upp á teningnum hér á landi þar sem dagsskammturinn kostar rösklega tíu þúsund krónur. 26.7.2004 00:01
Sækir um skilnað við föður sinn 14 ára drengur í Bandaríkjunum hefur sótt um skilnað við föður sinn en hann drap móður drengsins fyrir sex árum. 26.7.2004 00:01
Skipum Hafró snúið til lands? Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar stöðvast í dag ef samninganefndir ríkisins og Sjómannafélags Reykjavíkur ná ekki samkomulagi á fundi sem nú stendur hjá Ríkissáttasemjara. 26.7.2004 00:01
Bakslag verði húsið ekki rifið Árni Jóhannesson, framkvæmdarstjóri byggingarfyrirtækisins sem á Austurbæjarbíó, segir ummæli forseta borgarstjórnar um að litlar líkur séu á að húsið verði rifið verulegt bakslag fyrir uppbyggingu á svæðinu. Árni segir málinu ekki lokið og fundar með borgaryfirvöldum í næstu viku. 26.7.2004 00:01
Háttsettur Íraki myrtur Þrír létust í sjálfsmorðsárásum í borginni Mósúl í Írak í morgun og háttsettur embættismaður var myrtur á heimili sínu í Bagdad. Árásum í Írak fer fjölgandi. 26.7.2004 00:01
Lögin komin í forsætisráðuneytið Nýjustu fjölmiðlalögin, sem samþykkt voru á Alþingi á fimmtudag, bárust forsætisráðuneytinu laust fyrir hádegi og hafa því ekki borist forsetanum til undirritunar. Hann þarf að fá ný lög til staðfestingar innan hálfs mánaðar frá því að Alþingi samþykkir þau. 26.7.2004 00:01
Samtök um frelsun Fischers stofnuð Íslendingar vinna að stofnun alþjóðlegrar hreyfingar um frelsun Bobbys Fischers. Hrafn Jökulsson, einn forsvarsmannanna, segir að fyrst hægt hafi verið að stofna hreyfingu um frelsun roskins háhyrnings, þá hljóti það sama að vera hægt um roskinn skáksnilling. 26.7.2004 00:01
Forsætisráðherra Tékka tilnefndur Forseti Tékklands, Vaclav Klaus hefur tilnefnt leiðtoga Sósíaldemókrataflokksins til að leiða næstu ríkisstjórn landsins. Fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Vladimir Spidla, sagði af sér eftir að flokkur hans tapaði í Evrópuþingskosningum í síðasta mánuði. 26.7.2004 00:01
Hver er John Kerry? Hver er John Kerry? Það er spurningin sem hann verður helst að svara á flokksþingi demókrata sem hefst í dag í Boston. 26.7.2004 00:01
Leit hefst að nýju í dag Leit verður væntanlega hafin að nýju í dag að Sri Rhamawati sem saknað hefur verið í rúmar þrjár vikur. Að sögn lögreglunnar verður leitað á og í grennd við höfuðborgarsvæðið. Fyrrverandi sambýlismaður Sri hefur setið í gæsluvarðhaldi í tæpar þrjár vikur en hann er grunaður um aðild að hvarfi hennar. 26.7.2004 00:01
Þúsund látnir af völdum flóða Nær þúsund manns hafa látið lífið í miklum flóðum í Suður-Asíu síðasta mánuðinn. Um tveir þriðju hlutar Bangladess eru undir vatni og eru flóðin þar þau verstu í tæpan áratug. 26.7.2004 00:01
Íslendingar með mikið keppnisskap Íslendingar eru í hópi þeirra Evrópuþjóða sem hafa hvað mest keppnisskap. Þetta kemur fram í könnun sem Visa Europe lét gera nýlega í átta ríkjum álfunnar í tilefni Ólympíuleikanna sem haldnir verða í Aþenu í næsta mánuði. Könnunin var framkvæmd af Gallup og var hringt í tæplega 1800 manna slembiúrtak úr þjóðskrá. 26.7.2004 00:01
66 ára maður gekk berkserksgang Að minnsta kosti fjórir menn særðust þegar 66 ára gamall maður gekk berserksgang og skaut úr riffli á nágranna sína í Munchen í Þýskalandi í dag. Byssumaðurinn skaut síðan sjálfan sig í höfuðið. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt fórnarlömbum sínum en hann hringdi á dyrabjöllum nágranna sinna og skaut þá í maga og hnakka. 26.7.2004 00:01
Stjórnmálasamband við Sambíu Ísland og Sambía hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna. Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, undirritaði yfirlýsinguna fyrir Íslands hönd í New York sl. föstudag. 26.7.2004 00:01
Danir drepa í Stöðugt fleiri Danir drepa í sígarettunum fyrir fullt og allt samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Flestir þeirra sem hætta að reykja eru á aldrinum 25-34 ára en þrátt fyrir það eru reykingamenn enn fjölmennastir í þessum aldurshópi. 26.7.2004 00:01
Átök í kjölfar mótmælakeðju Sex Palestínumenn voru drepnir í átökum við ísraelskar hersveitir á Vesturbakkanum í gær. Þá sendu ísraelskar þyrlur flugskeyti á byggingar í Gazaborg í kjölfar árásar vígamanna á félagsmiðstöð landtökumanna þar sem sex börn særðust. 26.7.2004 00:01
SS hækkar nautakjötsverð Sláturfélag Suðurlands hefur nú hækkað verð á nautgripakjöti til bænda um 6%. Eftir þessar verðbreytingar greiðir SS nú hæsta verð á landinu fyrir lang flesta flokka nautgripakjöts að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 26.7.2004 00:01
Gripið verði til refsiaðgerða Evrópusambandið vill að Sameinuðu þjóðirnar grípi til refsiaðgerða gegn Súdönum bindi þeir ekki þegar í stað enda á átökin í Darfur-héraði. Bandaríkjamenn hafa þegar lýst sig sömu skoðunar og telja átökin í Súdan jafngilda þjóðarmorði. 26.7.2004 00:01
Fyrrverandi skólastjóri sýknaður Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, Jón Árni Rúnarsson, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að hafa dregið sér tæplega 29 milljónir króna á sjö ára tímabili í starfi sínu hjá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals og fjársvik. 26.7.2004 00:01
Sjómannafélagið skrifaði undir Boðuðu verkfalli háseta á skipum Hafrannsóknarstofnunar var aflýst síðdegis þegar samningar tókust milli fjármálaráðuneytisins og Sjómannafélags Reykjavíkur. Vegna hugmynda um skerðingu eða niðurfellingu sjómannaafsláttar geta hásetarnir sagt samningnum upp eftir tvö ár.</font /> 26.7.2004 00:01