Erlent

Bann á asísku fuglakjöti framlengt

Evrópusambandið framlengdi í dag bann við innflutningi á kjúklingakjöti og lifandi fuglum frá níu Asíuríkjum af ótta við að ekki hafi náðst að útrýma fuglaflensu í löndunum. Bannið átti að falla úr gildi þann 15. ágúst nk. en það hefur verið framlengt til 15. desember. Nýtt tilfelli kom upp í Tælandi í byrjun júlí en þá greindust tveir með flensuna. Í hópi nefndra ríkja eru Japan, Suður-Kórea og Pakistan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×