Fleiri fréttir

Bók Ómars uppseld

Bók Ómars Ragnarssonar, <em>Kárahnjúkar - með og á móti</em>, rýkur út og er nánast alltaf biðröð út á götu þegar Ómar áritar bókina að því er segir á heimasíðu JPV-útgáfu sem gefur bókina út. Bókin kom út á miðvikudag og seldist hún upp á svipstundu. Hún er væntanleg aftur í búðir síðar í þessari viku.

Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi

Breska ríkisstjórnin hefur varið meira en milljarði íslenskra króna í því skyni að uppfræða almenning um hvernig bregðast eigi við ef hryðjuverkaárás ætti sér stað.

Sjúkrahús í endurbyggingu hrundi

Heil álma í fjögurra hæða sjúkrahúsi sem var í endurbyggingu hrundi til grunna í Kabúl í Afganistan í dag. Ekki er vitað hve margir voru í byggingunni þegar hún hrundi en ljóst er að nokkrir eru fastir í rústunum.

300 lögreglumenn í skotbardaga

Aðgerðin Drekaveiðin eða „Dragon Hunting“ var hrundið af stað í morgun til að handsama einn harðsvíraðasta glæpamann Taívans. Chang She-ming er grunaður um aðild að fjölda skotárása og listinn yfir glæpi er langur. Lögregla fékk vísbendingar um að Chang héldi til í Suður-Taívan og samstundis voru yfir 300 lögreglumenn sendir á staðinn.

Sri ófundin - maðurinn þegir enn

Leit lögreglunnar að Sri Rhamawati hefur engum árangri skilað, né heldur yfirheyrslur yfir manninum sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi hennar. Lögregla segir yfirheyrslur fara fram þegar aðstæður gefi tilefni til. Maðurinn, sem setið hefur í gæsluvarðhaldsvist á Litla Hrauni frá 6. júlí, var síðast yfirheyrður á laugardag.

Má ekki yfirgefa Ísrael

Hæstiréttur Ísraels setti í gær hömlur á ferða- og tjáningarfrelsi Ísraelsmannsins Mordechai Vanunu sem ljóstraði upp um kjarnaofn Ísraelsmanna árið 1986.

Miklir skógareldar í Portúgal

Miklir skógareldar geisa nú í Portúgal. Stærstu eldarnir eru í Arrabida-þjóðgarðinum um fimmtíu kílómetra suður af höfuðborginni Lissabon. Nærliggjandi strendur og hús hafa verið rýmd og 150 slökkviliðsmenn börðust við eldana í nótt. Hitinn í Portúgal er hátt í fjörutíu gráður um þessar mundir sem gerir slökkvistarf mjög erfitt.

Giftar án þess að vita það

Suður-afrískar konur eru eindregið hvattar til að athuga reglulega hvort þær hafi verið giftar án þeirrar vitundar. Sérstakri herferð var hleypt af stokkunum eftir að upp komst um meira en þrjú þúsund ólögleg hjónabönd.

Nánast engar umbætur í brunavörnum

Ekkert hefur verið gert í brunavörnum á tveimur þriðju hluta gistiheimila sem voru með ófullnægjandi brunavarnir í fyrra. Lagfæringar hafa verið gerðar á fimm gistiheimilum af fimmtán en ekkert þeirra er þó með viðunandi brunavarnir að öllu leyti.

ÁTVR brýtur áfengislög

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins brýtur gegn áfengislögum með því að auglýsa áfengi. Forstjóri ÁTVR segir stofnunina ekki ganga eins langt og heildsalar en tekur undir með þeim að skýrari reglur vanti um áfengisauglýsingar hér á landi.

Brosandi bílar

Uppfinningamenn hjá bílaframleiðandanum Toyota hafa fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum fyrir hugmynd að bíl sem sýnir tilfinningar.

Dráp og mannrán halda áfram

Vígamenn í Írak drápu átta manns í dag, þar á meðal háttsettan embættismann úr innanríkisráðuneytinu. Ekkert lát er á mannránum en tveimur Jórdönum og tveimur Pakistönum var rænt í dag til viðbótar við þá sjö gísla sem hafa setið í haldi í rúma viku. 

Fyrrverandi skólastjóri sýknaður

Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskóla Íslands var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa svikið tæplega 29 milljónir króna frá skólanum. Hann var hins vegar dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa dregið sér 450 þúsund krónur frá Viðskipta- og tölvuskólanum.

Boðaður í skýrslutöku

Jón Gerald Sullenberger hefur verið boðaður í skýrslutöku fyrir héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Skýrslutakan er vegna lögreglurannsóknar á forsvarsmönnum Baugs að því er fram kom í fréttum Útvarpsins.

Efnahagsmál ráða líklega úrslitum

Efnahagsmál koma líklega til með að ráða úrslitum í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Flokksþing demókrata hefst í kvöld en þar verður John Kerry formlega tilnefndur sem forsetaframbjóðandi þeirra.

Starfsfólk fæst ekki

Mikið álag er á starfsfólki slysa- og bráðadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss og fólk getur þurft að bíða klukkustundum saman eftir þjónustu. Starfandi lækningaforstjóri segir ástæðuna ekki vera fjársvelti heldur fáist fólk einfaldlega ekki til starfa. 

Frelsum Bobby

„Frelsum Bobby“ samtökin verða stofnuð hér á landi til að freista þess að frelsa Bobby Fischer úr varðhaldi í Japan og búa honum áhyggjulaust ævikvöld á Íslandi. Á morgun verður sett upp vefsíða undir nafninu „Free Bobby“ og er markmiðið að ná þannig til heimsbyggðarinnar allrar.

Aðgerðir ESB gegn Súdan

Evrópusambandið samþykkti í dag að grípa til aðgerða gegn Súdan, beiti súdönsk stjórnvöld sér ekki fyrir friði í Darfúr-héraði. 

Tíundi hver fangi er útlendingur

Erlendur föngum hefur fjölgað mikið í íslenskum fangelsum síðustu ár. Sjö erlendir fangar voru í eða luku afplánun árið 2000 en voru þrjátíu árið 2003. Georg Lárusson hjá Útlendingastofnun segir tölurnar vera í samræmi við þróun útlendingamála á Íslandi.

Leita Sri í dag

Slysavarnarfélagið Landsbjörg mun leita að Sri Rahmawati á svæðum í nágrenni Reykjavíkur ásamt lögreglu í dag, að sögn Ómars Smára Ármannssonar hjá lögreglunni í Reykjavík.

Tvenn jarðgöng og nýir vegir

Unnið er að umfangsmiklum vega- og gatnaframkvæmdum víða um land í sumar. Ekki má gleyma jarðgöngunum, en boranir og sprengingar eru í fullum gangi við tvenn göng. Fjármagn til nýframkvæmda af þessu tagi nemur 7,2 milljörðum á árinu.

Tölvur spá vætu suðvestanlands

Samkvæmt tölvuspám, einkum frá Danmörku og Bretlandi, er gert ráð fyrir vætusömu veðri sunnan- og vestanlands um verslunarmannahelgina. Norðlendingar og Austfirðingar fái hins vegar blíðuna.

Lést í eldsvoða í Reykjavík

Kona á níræðisaldri lést í eldsvoða í fjölbýlishúsi við Sundlaugaveg í Reykjavík í nótt. Það var um sexleytið í nótt sem vegfarandi sá reyk leggja út frá húsinu og hringdi strax í neyðarlínuna. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var konan ein á efri hæð þess.

Fimm slösuðust í bílveltu

Fimm manns slösuðust, þar af einn lífshættulega, eftir að bíll fór út af veginum og valt við Vatnsskarðsnámur á veginum til Krýsuvíkur á tíunda tímanum í gærkvöld. Krýsuvíkurvegi var lokað á kafla um tíma vegna slyssins.

Norðmenn orðnir latir

Norðmenn leita nú leiða til að endurvekja vinnugleði hjá fólki í landinu. Ósérhlífnin og harkan sem einkenndu norska alþýðu áður en landið varð ríkt af olíu virðast vera á undanhaldi og eftir þrjá áratugi af velsæld virðist letin vera að ná tökum á norku vinnufólki.

Björgunarsveit náði í Dana

Flugbjörgunarsveitin á Hellu sótti í nótt danskan ferðamann um fertugt sem hafði læstst í baki, um hálfan annan kílómetra frá Hrafntinnuskeri. Beiðni barst á ellefta tímanum í gærkvöld um að sækja manninn en hann hafði þá hringt í Neyðarlínuna.

Áströlum og Ítölum hótað

Ástralíu og Ítalíu hafa borist hótanir um hryðjuverk frá samtökum sem talin eru tengjast Al-Kaída. Í tilkynningu frá samtökunum er farið fram á að löndin dragi heri sína til baka frá Írak og verði það ekki gert muni holskefla bílasprenginga ganga yfir borgir landanna. Blóðbað muni eiga sér stað og lífi borgara landanna verði breytt í hreinasta helvíti.

Norðmenn afhendi ekki Nóbelinn

Ungliðahreyfing norska miðflokksins, Senterpartiet, hefur látið þá skoðun í ljós að Norðmenn eigi ekki lengur skilið þá virðingu og þann heiður sem fylgir því að veita friðarverðlaun Nóbels. Ástæðan sé fylgispektin við ofbeldisfulla utatnríkisstefnu Bandaríkjastjórnar.

Hellisheiðin annar vart álaginu

Mikil og þétt umferð hefur verið um Hellisheiðina í sumar og nú er svo komið að vegakerfið annar vart álaginu. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segir umhugsunarvert hvort leyfa eigi ýmiss konar áheitaferðir um veginn þar sem sýnt sé að umferðarþunginn er mjög mikill flesta daga.

Gefur 150 milljóna lottóvinning

Óþekktur lottóvinningshafi í Japan hefur ákveðið að láta þær rúmu 150 milljónir króna sem hann vann á föstudaginn renna óskiptar til fórnarlamba nýlegra flóða í Japan. Vinningshafinn, sem virðist búa yfir einstakri gjafmildi, segist vonast til þess að fórnarlömb flóðanna verði aðnjótandi sömu heppni og fylgdi miðanum.

Réttarhöldunum sífellt frestað

Réttarhöldum yfir morðingja hálfíslenskrar konu í Pensacola í Bandaríkjunum hefur verið frestað í áttunda sinn. Lögfræðingar, sem sérhæfa sig í að verja hagsmuni brotaþola, fylgjast grannt með málarekstrinum.

100 dagar til kosninga

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, segist staðráðinn í að sannfæra kjósendur um það á næstu þremur mánuðum að hann sé betur til þess fallinn að verja landið gegn hryðjuverkum heldur en George Bush.

13 skæruliðar drepnir

Varnarliðsmenn í Írak drápu þrettán skæruliða í hörðum bardögum utan við borgina Baquba í morgun. Skæruliðarnir réðust til atlögu með sprengjuvörpum og handsprengjum á varnarliðsmenn þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við að brjóta á bak aftur skyndiáhlaup í Baquba.

2 létust og 14 særðust á Máritíus

Tveir létust og fjórtán særðust í sprengingu á fjölförnum ferðamannastað í Grand Baie á Máritíus í morgun. Hinir látnu eru maður og kona á þrítugsaldri, bæði heimamenn. Að sögn lögreglu er talið að allir hinna særðu séu íbúar Máritius. Forsætisráðherra landsins var á staðnum en hann sakaði ekki.

Ókeypis úttekt á eftirvögnum

Vátryggingafélag Íslands og Frumherji bjóða næstu daga ókeypis úttekt á eftirvögnum (fellihýsum, hjólhýsum tjaldvögnum og hestakerrum) til að fólk geti gengið úr skugga um að allur búnaður sé löglegur og í lagi áður en lagt er upp í ferðalag um verslunarmannahelgina.

Knattspyrnudómari skaut þjálfara

Knattspyrnudómari skaut þjálfara í knattspyrnuleik í Suður-Afríku í gær eftir að þjálfarinn og leikmenn hans mótmæltu gulu spjaldi að sögn lögreglunnar þar í landi. Þjálfarinn lést þar sem hann lá í blóði sínu á vellinum en dómaranum tóks hins vegar að flýja af vettvangi.

Viðbúnaður í Vestmannaeyjum

Viðbúnaður var á Vestmannaeyjaflugvelli á sjöunda tímanum í gærkvöldi þegar flugvél Flugfélags Vestmannaeyja kom inn til lendingar eftir að ljós hafði sýnt að ekki voru öll hjól læst. Slökkvilið flugvallarins og Vestmannaeyjabæjar var í viðbragðsstöðu og á meðan reyndi flugmaðurinn að setja hjólin niður og upp aftur nokkrum sinnum.

Lýst eftir manni

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Hákoni Svani Hákonarsyni, sem hvarf af hjólhýsasvæðinu á Laugarvatni um níuleytið í gærkvöld og ekki hefur spurst til síðan. Björgunarsveitir leita hans en hafi einhver upplýsingar um ferðir hans frá því í gærkvöld eru þeir beðnir að láta lögregluna vita í síma 4801010.

Ökumaðurinn grunaður um ölvun

Ökumaður bíls, sem valt í Vatnsskarði á veginum til Krýsuvíkur í gærkvöld, er grunaður um ölvun. Fimm slösuðust, þar af einn lífshættulega, en hann slöngvaðist út úr bílnum. Mennirnir eru útlendingar en hafa verið búsettir hér á landi vegna starfa sinna.

Byssumaðurinn látinn laus

Tæplega þrítugur karlmaður, sem lögregla og sérsveitarmenn handtóku eftir að hann mundaði veiðiriffil og hleypti af skotum í miðbæ Akureyrar í gærkvöld, hefur verið látinn laus.

Maðurinn kominn í leitirnar

Tæplega fimmtugur maður sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir og björgunarsveitir leituðu að á Laugarvatni er kominn í leitirnar. Hann ákvað að skilja við samferðafólk sitt í gærkvöldi og fara til Reykjavíkur. Leit var aflýst nú síðdegis um leið og lögreglan fékk vitneskju um hvers kyns var.

Kona lést í eldsvoða

Kona á níræðisaldri lést í eldsvoða í fjölbýlishúsi við Sundlaugaveg í Reykjavík í nótt. Það var um sexleytið í nótt sem vegfarandi sá reyk leggja út frá húsinu og hringdi strax í neyðarlínuna. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var konan ein á efri hæð þess.

13 skæruliðar létust í Írak

Þrettán írakskir skæruliðar létust í bardögum við varnarliðsmenn og bandaríska hermenn rétt utan við borgina Bakúba í morgun. Hópur skæruliða réðst til atlögu að írökskum þjóðvarnarliðsmönnum með sprengjuvörpum og handsprengjum, þar sem þeir aðstoðuðu bandaríska hermenn við leit í búðum skæruliða, í Buhriz sem er um 5 km suður af Bakúba.

Vísar á bug ummælum FÍB

Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppnisstofnun vísar því á bug að rannsókn á tryggingafélögunum hafi verið óeðlileg. Menn geti hins vegar deilt um málalyktir. Hann fagnar því að áfrýjunarnefnd hafi vísað frá máli FÍB sem kærði rannsóknina.

Flokksþing demókrata að hefjast

Flokksþing Demókrataflokksins hefst með pompi og prakt í Boston á morgun. Á þinginu koma saman, auk demókrata, fimmtán þúsund fréttamenn hvaðanæva úr heiminum, m.a. frá Stöð 2.

Sjá næstu 50 fréttir