Erlent

Lífi gíslanna þyrmt

Hópur íslamskra skæruliða í Írak sem heldur sjö erlendum borgurum í gíslingu hefur framlengt frest sem þeir höfðu gefið samningamönnum. Lífi gíslanna verður því þyrmt um sinn en hópurinn ítrekar kröfur sínar um að kúveiskt fyrirtæki, sem starfsmennirnir vinna fyrir, dragi sitt fólk frá Írak. Þrír gíslanna eru Indverjar, þrír Keníumenn og einn Egypti. Mönnunum var rænt í síðustu viku af lítt þekktum skæruliðahópi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×