Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hraðakstur í Hallormsstaðaskógi Hraðakstur á veginum í gegnum Hallormsstaðaskóg er viðvarandi vandamál að sögn umferðarfulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu á Austurlandi, Reynis Arnórssonar. Að hans mati einungis tímaspursmál hvenær alvarleg slys verða á þessum slóðum. 27.7.2004 00:01
Herferð gegn nauðgunum V-dagssamtökin hafa hafið herferð gegn nauðgunum fyrir verslunarmannahelgina. Í tilkynningu frá samtökunum segir að herferðin eigi að beina þeim skilaboðunum til stráka að þeir þurfi að vera vissir um að samþykki til kynlífs sé til staðar því kynlíf án samþykkis sé alltaf nauðgun. 27.7.2004 00:01
Gagnrýndi repúblikana harkalega "Demókratar vilja byggja Bandaríkin á sameiginlegri ábyrgð og sameiginlegum tækifærum. Repúblikanar trúa því að rétta fólkið eigi að stjórna Bandaríkjunum, þeirra fólk," sagði Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, þegar hann ávarpaði flokksþing demókrata í Boston. 27.7.2004 00:01
Risarotta á Seltjarnarnesi Seltirningur sá í nótt hvar stór rotta var að ganga yfir götuna fyrir utan hús hans og gerði lögreglunni viðvart. Hún brá skjótt við og kom rottunni fyrir kattarnef eins og það er bókað í skrám lögreglunnar frá nóttinni. 27.7.2004 00:01
Hjónaband samkynhneigðra ógilt Franskur dómstóll ógilti í gær fyrsta hjónaband samkynhneigðra þar í landi. Athöfnin leiddi til þess að ríkisstjórn Frakklands gerði tilraun til þess að losa sig við hinn vinsæla borgarstjóra Bordeaux sem bar ábyrgð á henni. 27.7.2004 00:01
Samkynhneigt hjónaband ógilt Fyrsta hjónaband samkynhneigðra einstaklinga í Frakklandi var ógilt í borginni Bordeaux í morgun. Stjórnvöld höfðu þá þegar lýst því yfir að gifting Stephanes Chapins og Bertrands Charpentiers væri ógild og ráku í kjölfarið borgarstjóra í úthverfi Bordeaux-borgar sem gaf mennina saman. 27.7.2004 00:01
Jón Gerald fyrir Héraðsdóm í dag Jón Gerald Sullenberger kemur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag vegna kæru á hendur forsvarsmönnum Baugs. Jón Gerald rekur fyrirtækið Nordica og annaðist um áralangt skeið innkaup Bónusverslana í Bandaríkjunum. 27.7.2004 00:01
Arafat og Qureia sættast Yasser Arafat, forseti Palestínu, og Ahmed Qureia, forsætisráðherra landsins, sættust í morgun á fundi í borginni Ramallah á Vesturbakkanum. Þar með lýkur tveggja vikna stjórnarkreppu í Palestínu. 27.7.2004 00:01
Skar hársbreidd frá slagæð Lögregla telur það mildi að ekki fór verr en raunin varð þegar leigubílstjóri var skorinn sextán sentímetra löngum skurði á háls með hnífi í vesturborg Reykjavíkur í nótt. 27.7.2004 00:01
Viðamikil leit að Sri hefst í dag Björgunarsveitir hefja skipulagða leit að Sri Rahmawati klukkan 17 í dag. Leitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, allt frá Suðurnesjum upp í Borgarfjörð og að Selfossi, að meðtöldum björgunarsveitunum á höfuðborgarsvæðinu, munu taka þátt í leitinni að því er segir í tilkynningu. 27.7.2004 00:01
Fékk skilnað frá föður sínum Fjórtán ára gamall drengur fékk löglegan skilnað frá föður sínum í Massachusetts í Bandaríkjunum í gær. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar í Bandaríkjunum. 27.7.2004 00:01
Þróa enn kjarnorkubúnað Íranir hafa haldið áfram byggingu búnaðar sem hægt er að nota til þess að búa til kjarnavopn. Með því hafa þeir rofið samkomulag sem gert var við stórþjóðir Evrópu. 27.7.2004 00:01
Ríkisskattstjóri lýkur álagningu Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga í ár og verða álagningar- og innheimtuseðlar bornir út á föstudag. Þeir sem skiluðu rafrænum framtölum geta skoðað sína seðla, ásamt endurskoðuðu framtali, á vefsíðu ríkisskattstjóra frá og með morgundeginum. 27.7.2004 00:01
Ekki áfellisdómur yfir nefndinni Stjórnarmaður í eftirmenntunarnefnd rafeindavirkja vísar því alfarið á bug að nefndin eigi að bera halla af því að hafa ekki, sem skyldi, séð um fjárreiður eftirmenntunarsjóðsins og fylgst með verkum fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Hann segist ekki líta svo á að dómur Héraðsdóms frá í gær sé áfellisdómur yfir starfi nefndarinnar. 27.7.2004 00:01
Popptónleikar eða flokksþing? Flokksþing Demókrataflokksins í Bandaríkjunum hófst í Boston í gær. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar sem staddur er á þinginu, segir gríðarlegan mun vera á þessu flokksþingi og íslensku. Þetta sé meira líkt því að vera á popptónleikum eða „Hallelúja-samkomu“. 27.7.2004 00:01
Eldur á Reynimel Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu vegna tilkynningu um að eldur væri laus í íbúð við Reynimel 92. Ekki er ljóst á þessari stundu hversu mikill eldurinn er. 27.7.2004 00:01
Forseti staðfesti lagafrumvarpið Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að staðfesta lagafrumvarpið sem fellir úr gildi fjölmiðlalögin sem hann synjaði staðfestingar fyrr í sumar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ólafur Ragnar sendi frá sér í dag. 27.7.2004 00:01
50 ár síðan K-2 var fyrst klifið Fimmtíu ár eru liðin síðan næsthæsta fjall heims, K-2, var klifið í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að fjallið sé ekki alveg jafnhátt og hæsta fjallið Mount Everest er talið um þrisvar sinnum erfiðara að klífa K-2. 27.7.2004 00:01
Frumvarp um kynjakvóta á Indlandi Hópur kvenna safnaðist saman fyrir utan þinghúsið í Nýju-Delí á Indlandi í dag til að hvetja þingmenn til að samþykkja frumvarp um kynjakvóta. Samtök sem berjast fyrir auknum rétti kvenna stóðu að mótmælunum. Framfarabandalagið situr nú í ríkisstjórn Indlands. Nái frumvarpið samþykki þarf þriðjungur þingmanna í fylkjaþingunum að vera konur. </span /> 27.7.2004 00:01
Sjálfsmorð hermanna aukast um 40% Hundrað og níu rússneskir hermenn hafa framið sjálfsvíg það sem af er árinu að sögn yfirmanns hersins. Það er tæplega fjörutíu prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra. 27.7.2004 00:01
Norðurlöndin verði útundan í ESB Eftir að José Manuel Durao Barroso var valinn sem forseti framkvæmdastjórnar ESB verður sambandinu stjórnað af þremur einstaklingum frá Pýrenaskaga. Margir óttast því að norræn málefni verði út undan. Frá þessu er sagt í norska blaðinu Hufvudstadsbladet í dag.</font /> 27.7.2004 00:01
Qureia situr áfram Forsætisráðherra Palestínu, Ahmed Qureia, dró til baka uppsögn sína eftir fund með leiðtoganum Jasser Arafat í Ramallah í gær. Þannig lauk tíu daga átökum milli mannanna tveggja sem valdið hafa miklum sviptingum í palestínskum stjórnmálum. 27.7.2004 00:01
Samkomulag ríkra og fátækra fjarri Yfirmaður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, í Genf segir enn langt í land áður en hægt verður að tryggja nýtt samkomulag á milli vel stæðra ríkja og hinna fátækari um alþjóðaviðskipti. 27.7.2004 00:01
Pottur gleymdist á eldavél Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á þriðja tímanum vegna tilkynningar um að eldur væri laus í íbúð við Reynimel 92. Þegar það mætti á staðinn kom í ljós að pottur hafði gleymst á heitri eldavélahellu en húsráðandi hafði brugðið sér út í veðurblíðuna. 27.7.2004 00:01
Ólögleg áfengissala í Svíþjóð Lögreglan í Svíþjóð telur að nær annar hver matvörukaupmaður í Malmö stundi ólöglega sölu á áfengi. Smygl á áfengi hefur aukist um helming síðastliðin fjögur ár og það verður sífellt algengara að verslað sé með áfengi sem keypt er í öðrum ESB-ríkjum en Svíþjóð, að því er fram kemur á norræna fréttavefnum. 27.7.2004 00:01
Hæsta verð nautgripakjöts á Hellu Sláturhúsið á Hellu greiðir nú hæsta verð á alla flokka nautgripakjöts hérlendis og hefur jafnframt lækkað þungaviðmiðun úr 230 kílógrömmum í 200 kg. Í morgun var gerð breyting á gildandi verðlista hjá Sláturhúsinu þar að lútandi að því er segir í fréttatilkynningu á heimasíðu Landsambands kúabænda. 27.7.2004 00:01
Pútín sakaður um hefndaraðgerðir Vladimir Pútín, forseti Rússlands, er sakaður um að reyna að eyðileggja fjármálaveldi Mikhails Kodorkhovskys, auðkýfings og aðaleiganda rússneska olíurisans Yukos, en Kodorkhovsky hefur verið í fangelsi að undanförnu vegna gruns um fjársvik og skattsvik. 27.7.2004 00:01
Fjölmiðlalögin fallin úr gildi Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun staðfesta lögin sem fella úr gildi fjölmiðlalögin sem hann synjaði staðfestingar 2. júní. Ólafur Ragnar sendi frá sér svohljóðandi yfirlýsingu í gær: 27.7.2004 00:01
Sleppt úr Guantanamo Fjórir Frakkar sem verið hafa meira en tvö ár í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamoflóa á Kúbu komu heim í gær. Viðræður um hvort þrír fangar í viðbót fáist framseldir standa yfir milli franskra og bandarískra stjórnvalda að sögn Jacques Chirac Frakklandsforseta. 27.7.2004 00:01
Vörugjald áfengis hækkar um 200% Fjármálaráðherra hefur hækkað vörugjöld á áfengi um tæp 200% samkvæmt nýrri gjaldskrá. Fyrir mánuði lýsti samgönguráðherra því yfir að lækka yrði skatta á áfengi. Eftir hækkunina eru gjöld á áfengi 983 krónur á tonn en var 346 krónur. 27.7.2004 00:01
Ekki sannfærðir um auglýsingabann Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í allsherjarnefnd Alþingis er ekki viss um að rétt sé að viðhalda banni við áfengisauglýsingum. 27.7.2004 00:01
Fimm milljónir til Súdans Fimm milljónir króna verða látnar rakna til mannúðar- og mannréttindamála í Darfur-héraði í Súdan. Tillagan var lögð fram af utanríkisráðherra á ríkisstjórnarfundi í gær og var hún samþykkt. 27.7.2004 00:01
Engar tímaáætlanir um sölu Símans Ekki er búið að ákveða hvenær boðin verður út vinna við ráðgjöf í tengslum við sölu Símans. 27.7.2004 00:01
Brunavarnir ófullnægjandi í skólum Brunavarnir í framhaldsskólum landsins eru enn ófullnægjandi í sjö af hverjum tíu skólum, samkvæmt nýrri úttekt Brunamálastofnunar. Úrbætur hafa verið gerðar í um fjórðungi framhaldsskóla. 27.7.2004 00:01
Portúgalar biðja um aðstoð Yfir þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við eldana í Portúgal. Það eru héruðin í kringum Algarve og Faró sem hafa orðið verst úti en eldar hafa komið upp í fjórtan af átján héruðum landsins síðustu daga. Mjög heitt er um þessar mundir í Portúgal og hefur hitinn farið yfir 40 gráður. 27.7.2004 00:01
Ættingjar gísls hótuðu drápum Sex Írakar særðust er sprengja sprakk í borginni Fallujah í Írak í dag. Vígamenn eru grunaðir um verknaðinn. Hryðjuverkamenn hafa hótað árásum á veginum milli Jórdaníu og Íraks en mesta umferðin þar á milli er á vegum Bandaríkjahers. Talið er að þetta sé sami hópur og rændi jórdönsku bílstjórunum í gær. 27.7.2004 00:01
Kærurnar enda fæstar með dómi Af sjö til tíu kærum, sem berast lögreglu á ári hverju vegna áfengisauglýsinga, enda fæst mál með dómi. Fyrir þremur árum lagði vinnuhópur Ríkislögreglustjóra til endurskoðun laga þar sem ekki væri hægt að beita þeim gegn áfengisauglýsingum. Lögin hafa ekkert breyst. 27.7.2004 00:01
Hjartaþeginn heim í dag Ungi maðurinn, Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjartaaðgerð í Gautaborg 14. júní síðastliðinn, er væntanlegur heim á morgun. Hann kemur með flugi frá Kaupmannahöfn. 27.7.2004 00:01
Námið bjargaði lífi mínu Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir er ein úr stórum hópi geðsjúkra, sem hafa nýtt sér nám það sem Fjölmennt og Geðhjálp hafa boðið upp á undanfarin ár. Hún segir námið hafa bjargað lífi sínu. En nú liggur engin fjárveiting fyrir og öllum kennurunum hefur verið sagt upp. </font /></b /> 27.7.2004 00:01
Mikill áhugi á þjóðhátíð í Eyjum Mikill áhugi er á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, að því er fram kom í viðtölum við flugfélög og hópferðafyrirtæki í gær. 27.7.2004 00:01
Súdanar uggandi um refsiaðgerðir Súdanska ríkisstjórnin fordæmdi hugmyndir um erlendar hersveitir í Darfur-héraði í gær. Bandaríkjamenn hafa endurskoðað uppkast að ályktun Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í héraðinu. Arabar eru áhyggjufullir. 27.7.2004 00:01
Jón Gerald yfirheyrður í allan dag Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur yfirheyrt Jón Gerald Sullenberger í allan dag vegna meintra fjármálabrota forsvarsmanna Baugs. Málið snýr aðeins að forsvarsmönnum fyrirtækisins en er óskylt þeirri sátt sem náðist á milli Jóns Geralds og Baugs í fyrra. Allir aðilar málsins neita því að nokkur sátt hafi verið gerð á bak við tjöldin. 27.7.2004 00:01
Áhersla lögð á Kjalarnes Umfangsmikil leit björgunarsveita að Sri Rahmawati stendur nú yfir sem á annað hundrað björgunarsveitarmanna taka þátt í. Sérstök áhersla er lögð á leit á Kjalarnesi en þó verður farið um allt stór-Reykjavíkursvæðið. Ekkert hefur spurst til Sri frá 4. júlí síðastliðnum. 27.7.2004 00:01
Clinton fagnað gríðarlega Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, kona hans og þingmaður í New York ríki, töluðu á flokksþingi demókrata í gær. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður sótti fundinn og að hans sögn ætlaði allt um koll að keyra þegar Clinton steig í pontu. 27.7.2004 00:01
Háhyrningur tryllist Gestum í skemmtigarðinum Sea World Adventure Park í borginni San Antonio brá heldur betur í brún þegar háhyrningur réðst á dýratemjara sinn í miðri sýningu. Háhyrningurinn reyndi í sífellu að berja manninn ofan í vatninu og reyndi svo að bíta hann. Dýratemjarinn komst upp úr lauginni og voru meiðsl hans ekki talin alvarleg. 27.7.2004 00:01