Erlent

50 ár síðan K-2 var fyrst klifið

Fimmtíu ár eru liðin síðan næsthæsta fjall heims, K-2, var klifið í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að fjallið sé ekki alveg jafnhátt og hæsta fjallið Mount Everest er talið um þrisvar sinnum erfiðara að klífa K-2. Barnabarn fyrsta fjallgöngumannsins náði toppi K-2 á mánudag ásamt hópi fólks. Þau voru fyrstu fjallgöngumennirnir í þrjú ár til að komast á toppinn. Tæplega tvö hundruð manns hafa gert tilraun til þess að klífa fjallið og létu tæp þrjátíu prósent þeirra lífið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×