Erlent

Sjálfsmorð hermanna aukast um 40%

Hundrað og níu rússneskir hermenn hafa framið sjálfsvíg það sem af er árinu að sögn yfirmanns hersins. Það er tæplega fjörutíu prósenta aukning miðað við sama tíma í fyrra. Rússneski herinn hefur undanfarin ár átt í stríði við tsjetsjenska skæruliða þar í landi og reyna ungir rússneskir karlmenn yfirleitt allt til að komast hjá því að vera sendir þangað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×