Erlent

Hjónaband samkynhneigðra ógilt

Franskur dómstóll ógilti í gær fyrsta hjónaband samkynhneigðra þar í landi. Athöfnin leiddi til þess að ríkisstjórn Frakklands gerði tilraun til þess að losa sig við hinn vinsæla borgarstjóra Bordeaux sem bar ábyrgð á henni. Parið játaðist hver öðrum í Bordeaux í síðasta mánuði og ætla sér að áfrýja úrskurði dómstólsins að sögn lögfræðings þeirra. Parið lýsti í gær bjartsýni á því að úrskurði dómstólsins verði snúið á æðri dómstigum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×