Fleiri fréttir

Hafna þúsund nemendum

Að óbreyttu mun Kennaraháskóli Íslands neyðast til að hafna samanlagt tæplega eitt þúsund umsækjendum á næsta skólaári. Þetta kemur fram í frétt frá skólanum.

Ólafur Ragnar með 70% fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson hlýtur öruggt endurkjör sem forseti Íslands, ef niðurstöður forsetakosninga á laugardag verða í samræmi við skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Fimmtungur skilar auðu á laugardag

Útlit er fyrir að fimmtungur kjósenda skili auðu í forsetakosningunum á laugardaginn kemur, að því er fram kemur í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var í gær. Þegar allt er talið ætlar fjórðungur landsmanna annað hvort að sitja heima eða skila auðu.

Mikill hraði á Mýrdalssandi

Lögreglan í Vík og á Kirkjubæjarklaustri stöðvaði fimm ökumenn í gær, sem óku á yfir 140 kílómetra hraða og mældist sá sem hraðast fór á 167 kílómetra hraða. Hefði hraði hanns mælst einum kílómetra meiri, hefði hann verið sviptur ökuréttindum á staðnum í þrjá mánuði.

Eldur í Erlingi

Allt tiltækt lið brunavarna Suðurnesja var í nótt kvatt að fiskiskipinu Erlingi, sem var í Njarðvíkurhöfn, þar sem rauðbleikar eldtungur stóðu upp úr skipinu aftanverðu og mikinn reyk lagði frá því. Þegar til kom reyndist hafa kviknað í neyðarbauju og hlaust lítið tjón af. Verið er að rannsaka hvers vegna eldur kviknaði í baujunni.

My life fær misjafna dóma

Þreytandi, illa skrifuð, sjálfhverf, sérhlífin... með þessum orðum lýsir bókmenntagagnrýnandi New York Times ævisögu Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Bókin kemur út á morgun, en er þegar orðin metsölubók og bæði umtöluð og umdeild.

Fjölmiðlalögin í Guardian

Baugur, sem á bresku verslunarkeðjurnar Hamleys og Oasis, er lent í miðri ringulreið sem skapast hefur um stjórnarskrána í heimalandi Baugs. Svo segir í grein í breska dagblaðinu The Guardian í morgun um Baugslögin, eins og blaðið kallar fjölmiðlalög Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, í fyrirsögn.

Vilja að Bush beri vitni

Lögmenn þriggja bandarískra hermanna, sem voru í morgun leiddir fyrir dómara í Bagdad vegna misþyrminga þeirra á föngum í Abu Ghraib fangelsinu, vilja að Bush Bandaríkjaforseti og Rumsfeld varnarmálaráðherra beri vitni.

Sjúkir fluttir loftleiðis

Karlmaður, sem var einn á ferð, var fluttur á heilsugæslustöðina í Patreksfirði í nótt eftir að hann velti bíl sínum í Mikladal, skammt frá bænum. Eftir aðhlynningu var hann fluttur með sjúkarflugvél til Reykjavíkur og lagður inn á Landsspítalann, en mun þó ekki vera alvarlega slasaður.

Engin hætta stafar af föngunum

Engin hætta stafar af flestum fanganna sem haldið er í Guantanamo-herstöðinni á Kúbu. Þessu er haldið fram í stórblaðinu New York Times í dag. Þar segir að bandarísk stjórnvöld hafi stórlega ýkt hættuna sem stafi af föngunum og þeim upplýsingum sem þeir búi yfir.

Hóta Suður-Kóreumanni lífláti

Suður-Kóreumaður, sem rænt var í Írak í síðustu viku, verður drepinn og höfuð hans skorið af, kalli suður-kóreisk stjórnvöld ekki þegar í stað heim hersveitir sínar frá Írak. Sem stendur er ráðgert að fjölga hersveitum og senda 3000 manna liðsauka. Stjórnvöld í Suður-Kóreu segja ekki standa til að breyta því, og að ekki komi til greina að verða við kröfum af þessu tagi.

Messier handtekinn

Jean-Marie Messier, fyrrverandi stjórnarformaður og forstjóri franska fjölmiðla- og samskiptarisans Vivendi, var handtekinn í morgun. Messier hætti störfum hjá Vivendi fyrir all nokkru. Handtaka er sögð tengjast rannsókn á hagræðingu á gengi verðbréfa á meðan Messier starfaði hjá Vivendi.

0,33 % hækkun á byggingavísitölu

Vísitala byggingakostnaðar hækkaði um 0,33% frá fyrri mánuði en vísitalan fyrir júlímánuð er 300,8 stig. Er hún er reiknuð eftir verðlagi um miðjan júní. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingakostnaðar hækkað um 5%.

Dvdmyndir.com ákærð

Forsvarsmenn vefsins dvdmyndir.com voru kærðir til lögreglu þann 16. júní af SMÁÍS, samtökum myndrétthafa. Samkvæmt fréttatilkynningu frá samtökunum hefur þessi síða verið starfrækt undanfarna mánuði en á henni á að vera hægt að kaupa DVD myndir sem sumar hverjar eigi enn eftir að sýna í kvikmyndahúsum.

Jarlinum skipt út

Eimskipafélag Íslands ehf. hefur gert samning um smíði á færanlegum hafnarkrana og verður kraninn sá stærsti sinnar tegundar hér á landi. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að fjárfestingin sé liður í að auka framleiðni skipaafgreiðslu félagsins í Sundahöfn og bæta þjónustu við viðskiptavini.

19 þúsund fleiri á kjörskrá

Hátt í nítján þúsund fleiri verða á kjörskrá fyrir forsetakosningarnar núna, en voru fyrir síðustu forsetakosningar árið 1996. Þetta er fjölgun upp á tæp tíu prósent. Samkvæmt kjörskrárstofni sem Hagstofan hefur unnið fyrir sveitarfélögin til að semja kjörskrár eftir, mega 213.553 kjósa núna.

30 hreinar hafnir

Aðeins 30 hafnir af 76 hér á landi verða svonefndar hreinar hafnir um næstu mánaðamót, samkvæmt alþjóðlegum staðli um siglingavernd gegn hryðjuverkum. Hinsvegar munu 80 hafnarsvæði falla undir hugtakið en mörg hafnarsvæði geta verið í einni höfn, til dæmis eru níu hafnarsvæði í Reykjavíkurhöfn.

Ísland, dýrast í heimi

Ísland er dýrasta ferðamannaland í heimi og Egyptaland það ódýrasta, samkvæmt útreikningum breska fyrirtækisins ECA fyrir norska blaðið Verdens Gang. Þar er ferðamannavísitalan stillt á hundrað í Noregi, og skoðað í allar áttir.

Ísland, dýrast í heimi

Ísland er dýrasta ferðamannaland í heimi og Egyptaland það ódýrasta, samkvæmt útreikningum breska fyrirtækisins ECA fyrir norska blaðið Verdens Gang. Þar er ferðamannavísitalan stillt á hundrað í Noregi, og skoðað í allar áttir.

Geir H. Haarde í Eistlandi

Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, situr fyrir Íslands hönd, forsætisráðherrafund ríkja Eystrasaltsráðsins, sem haldinn er í Tallinn í Eistlandi í dag. Ráðið var sett á laggirnar árið 1992, en auk Íslands sitja meðal annars Rússar, Þjóðverjar, Norðmenn, og Eystasaltsríkin Lettland, Litháen og Eistland.

Fóru flugvallavillt

Farþegum um borð í flugi Northwest Airlines frá St. Paul til Rapid City í Suður-Dakóta brá heldur í brún skömmu eftir lendingu. Í stað þess að renna upp að flugstöð, stöðvaðist vélin og farþegunum var skipað að draga fyrir gluggana þegar í stað.

Jón Steinar íhugar umsókn

Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor í lögfræði, segist vera að íhuga að sækja um stöðu dómara við Hæstarétt. Hann telur það verðugt fyrir mann sem gagnrýnt hefur Hæstarétt að starfa innan réttarins.

UMFÍ íhugar að höfða mál

Björn B. Jónsson, formaður Ungmennafélags Íslands, segir það óréttlátt og ósanngjarnt að aðstandendur landsmótanna séu skikkaðir til að greiða löggæslukostnað vegna mótanna. UMFÍ íhugar að höfða mál vegna greiðslu löggæslukostnaðar á unglingalandsmóti.

Fleiri uppsagnir hjá varnarliðinu

Um tuttugu starfsmönnum flotastöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður sagt upp störfum frá og með næstu mánaðamótum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem varnarliðið sendi frá sér í dag og hafa þessar ráðstafanir verið kynntar íslenskum stjórnvöldum.

Öll aðildarríki koma til greina

Næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gæti komið frá hvaða aðildarlandi sambandsins sem er, segir Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands. Hann svaraði með þessum hætti Frökkum og Þjóðverjum, sem hafa þvertekið fyrir að nýr framkvæmdastjóri komi frá Bretlandi, Írlandi, Danmörku, Svíþjóð eða einhverju nýju aðildarríkjanna tíu.

Líklega tekin afstaða í dag

Hæstiréttur tekur væntanlega afstöðu í dag til kæru á gæsluvarðhaldsúrskurði yfir þremur Palestínumönnum, sem vísa á úr landi. Mennirnir komu til Íslands með Norrænu í byrjun maí og framvísuðu fölsuðum eða stolnum vegabréfum við komuna til landsins.

Störf ráðsins áfram mikilvæg

Samstarfið við Rússland innan Eystrasaltsráðsins hefur skilað góðum árangri, sagði Geir Haarde, fjármálaráðherra, á leiðtogafundi ráðsins sem haldinn var í Eistlandi í dag, en Geir sat fundinn í fjarveru Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra.

Fyrsta einkarekna geimfarið

Blað var brotið í sögu geimferða síðdegis, þegar ríflega sextugur karlmaður varð fyrsti geimfarinn sem heldur út í geim á vegum einkaaðila. Þeir sem standa að ævintýrinu segjast hafa sannað, að geimferðir fyrir einkaaðila séu raunhæfur möguleiki innan fárra ára.

Minni sala á nautakjöti

Sala á nautakjöti var 13,5 % minni í maí miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt yfirliti frá Landssamtökum sláturleyfishafa. Sömu sögu má segja um sölu á 12 mánaða tímabili, frá 1. júní 2003 til 31. maí 2004 hefur salan dregist saman um 18.1 tonn miðað við sama tímabil árið áður.

Síamstvíburar aðskildir

Fjögurra mánaða gömlum síamstvíburum frá Bandaríkjunum, sem aðskildir voru um helgina, heilsast vel. Þær eru enn á gjörgæslu, en opnuðu augun örlítið í dag, foreldrum og læknum til ánægju og léttis.

Þjóðhátíðardagur í Stafangri

Það er vel hægt að halda þjóðhátíðardaginn hátíðlegan þótt út fyrir landsteina sé farið. Í Stafangri í Noregi búa í kringum 400 Íslendingar og í Íslendingafélaginu þar eru 130 manns. Félagar Íslendingafélagsins fylktu liði og gengu með íslenska fánann um götur bæjarins á 17. júní.

Lítill áhugi meðal ungmenna

Þeir sem fá að kjósa í fyrsta sinn í forsetakosningum að þessu sinni, vegna aldurs, eru 16,2 prósent kjósenda. Nokkur ungmenni voru spurð út í kosningarnar á förnum vegi en kosningarnar fara eins og flestir vita fram á laugardag.

Ólafur með álíka fylgi og Vigdís

Ólafur Ragnar Grímsson virðist njóta álíka fylgis og Vigdís Finnbogadóttir í forsetakosningunum 1988, þegar litið er til þeirra sem taka afstöðu til frambjóðenda. Samkvæmt könnun Gallup stefnir þó í að auðir seðlar og ógildir verði margfalt fleiri að þessu sinni.

Vesturlandsvegur tvöfaldaður

Vegagerðin bauð í dag út tvöföldun Vesturlandsvegar milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Verkið er boðið út í samvinnu við sveitarfélögin tvö en tvöfalda á kaflann milli Víkurvegar í Reykjavík og Skarhólabrautar í Mosfellsbæ, samtals þrjá og hálfan kílómetra.

Samningar í sjónmáli

Sjónvarpsstjóri Skjás eins segir samningaviðræður um enska boltann vera á lokametrunum og að allar líkur séu á að samningar náist á næstu dögum. Tilkynning um hvernig útsendingum verður háttað og hverjir sjái um lýsingar leikja verði gefin út öðru hvoru megin við næstu helgi.

Dýrðarveður á Suðvesturhorninu

Dýrðarveður hefur verið á Suðvesturhorninu þennan lengsta dag ársins. Sumarsólstöður eru í dag, og munu nótt og dagur renna saman í eitt á norðanverðu landinu. Hitinn á höfuðborgarsvæðinu fór víða í tuttugu gráður.

Aðgangur barna að klámefni eykst

Aðgangur barna að ýmis konar klámefni eykst stöðugt og veldur áhyggjum víða. Starfsmenn Barnahúss sjá skýra tengingu á milli þess og fjölgunar tilfella þar sem grunur leikur á að ósakhæf börn beiti önnur börn kynferðislegu ofbeldi.

Opinberum gjöldum um að kenna

Ísland er dýrasta ferðamannaland í heimi samkvæmt útreikningum breska fyrirtækisins ECA fyrir norska blaðið Verdens Gang. Fólk í ferðaþjónustu og veitingarekstri segir opinberum gjöldum um að kenna og að smásöluálagning sé hlægilega lág hér á landi miðað við önnur lönd.

600 skólapláss vantar

Fjárveitingu vantar fyrir að minnsta kosti fimm- til sjöhundruð nemendur sem sótt hafa um framhaldsskólanám næsta haust. Formaður félags íslenskra framhaldsskóla segir að vandinn hafi verið fyrirsjáanlegur, en ekkert hafi verið að gert og úr því sem komið er verði hann líkast til leystur með því að troða í skólana.

Aðeins Íslendingum sagt upp

Aðeins Íslendingum er fórnað á niðurskurðarborðinu hjá Varnarliðinu. Nærri 150 manns hefur verið sagt upp frá því í október á síðasta ári, þar af 20 frá næstu mánaðamótum. Óbreyttum, bandarískum starfsmönnum hefur hins vegar ekki fækkað

Tillögur að þjóðarblómi kynntar

Tuttugu tillögur að þjóðarblómi verða kynntar í Árbæjarsafninu í Reykjavík í dag. Fyrir nokkru var lýst eftir tilnefningum við góðar undirtektir en þetta er niðurstaða þeirrar vinnu.

Clinton styður innrásina í Írak

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segist í viðtali við tímaritið Time, sem kemur út á morgun, styðja innrás Bandaríkjanna í Írak. Hann bætir því þó við að hann hefði beðið með innrás þar til vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna hefðu lokið störfum.

Albatros heldur frá landinu

Skemmtiferðaskipið Albatros var strandaglópur hér á landi í þrjá daga vegna skemmda. Skipið hélt úr Straumsvíkurhöfn í hádeginu í gær eftir að gert hafði verið við skemmdir á skipinu.

Erill hjá lögreglunni

Mikill erill hefur verið hjá lögreglu víða um land um helgina og jafnvel frá því fyrir sautjánda júní. Á Akureyri hefur verið í ýmsu að snúast, ölvun, ölvunarakstur og pústrar, án þess þó að stórslys hafi hlotist af.

Sprenging í Seðlabankanum í Bagdad

Þrír starfsmenn Seðlabankans í Bagdad særðust í sprengingu við bankann í morgun. Vígamenn hafa í vaxandi mæli valið sér skotmörk í fjármála- og stjórnsýslu Íraks en þeir eru andvígir því hvernig Bandaríkjamenn standa fyrir valdaafsali til bráðabirgðastjórnarinnar um mánaðamótin.

Sjá næstu 50 fréttir