Fleiri fréttir

Ekkert afsakar framhjáhaldið

"Ég held ég hafi gert þetta af þeirri verstu ástæðu sem til er - vegna þess að ég gat það," sagði Bill Clinton í viðtali við CBS sjónvarpsstöðina um framhjáhald sitt með Monicu Lewinsky sem á tíma ógnaði stöðu hans sem forseta.

Átta af tíu lokaársnemum féllu

Lektor við Tækniháskóla Íslands hefur sent menntamálaráðherra bréf þar sem hann greinir frá þeirri ákvörðun rektors háskólans að skipa rannsóknarhóp sérfræðinga til að "fara ofan í saumana á prófum, prófsyfirferð, samræmi milli námskeiðs og prófa og fleiru sem þurfa þykir."

Hátt eftirlitsgjald veldur óánægju

Fasteignasalar eru óánægðir með hátt eftirlitsgjald sem þeim verður gert að greiða með gildistöku nýrra laga um fasteignasölur. Formaður Félags fasteignasala segir of mikið gert úr valdasviði nýrrar eftirlitsnefndar, en fagnar tilkomu laganna.

Ekki sátt innan ESB

Eftir að hafa setið í tólf stundir á fundi gáfust leiðtogar Evrópusambandsríkjanna upp á að reyna að ná samkomulagi um nýjan forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Þeim tókst ekki heldur að ná samkomulagi um nýja, evrópska stjórnarskrá en drög að henni lágu fyrir fundi leiðtoganna.

Eldur í Firðinum

Fjölmennt slökkvilið frá fjórum stöðvum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent að verslunarmiðstöðinni Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar um klukkan níu í gærkvöld af ótta við að eldur, sem þar hafði verið kveiktur, kynni að ná mikilli útbreiðslu.

Forseti fagnar ummælum Vigdísar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti segist í viðtali við DV fagna því að Vigdís Finnbogadóttir, forveri sinn í forsetaembætti, skuli telja málskotsréttinn svo vakandi og sterkan að hún lýsi því nú yfir að hún hefði beitt honum í Kárahnjúkamálinu.

Grípa hefði mátt inn í

Skýrsla rannsóknarnefndar, sem kannaði hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin þann 11. september 2001, dregur í efa nánast allar fullyrðingar stjórnvalda vestanhafs um tildrög hryðjuverkanna og viðbrögð við þeim.

Féll út úr bíl

Ungur maður slasaðist alvarlega, meðal annars á höfði, þegar hann féll út úr bíl á þjóðveginum norðan við Akureyri um klukkan tvö í nótt. Hann var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri en sjúkraflugvél flutti hann svo til Reykjavíkur undir morgun þar sem hann var lagður inn á Landspítalann.

Norska stjórnin stokkuð upp

Ríkisstjórn Noregs verður að öllum líkindum stokkuð upp í dag samkvæmt fregnum norskra fjölmiðla í morgun. Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra mun væntanlega skipta nokkrum ráðherrum út og eru sjávarútvegsráðherrann Svein Ludvigsen, atvinnumálaráðherrann Ansgar Gabrielsen og félagsmálaráðherrann Ingjerd Schous talin verða rekin.

Útihátíð á Akureyri í nótt

Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í alla nótt vegna eins konar útihátíðar sem hófst á tjaldstæðinu í bænum þegar formlegum hátíðarhöldum lauk um klukkan hálf eitt. Fjöldi ungmenna dvelur á tjaldstæðinu í tengslum við svonefnda bíladaga og voru græjur þandar og reykspólað ofan í svörðinn

Hvalfjarðargöng lokuð vegna óhapps

Hvalfjarðargöng verða lokuð í um það bil eina klukkustund vegna óhapps sem varð þar fyrir stundu. Fellihýsi aftan í bíl valt og lokar göngunum. Engin slys urðu á fólki en loka þarf göngunum meðan fellihýsið verður fjarlægt.

Viðvörun til Ólympíufara

Nýsjálenska utanríkisráðuneytið sendi í morgun frá sér ferðaviðvörun til þeirra sem hyggjast ferðast til Aþenu og vera þar við Ólympíuleikana sem fara fram síðar í sumar. Nýsjálendingar telja mikla hættu á hryðjuverkum og sendu því viðvörun frá sér.

Króatía líklega í ESB

Króatía hefur fengið jákvæð viðbrögð við umsókn sinni um inngöngu í Evrópusambandið og munu samningaviðræður um inngönguna hefjast snemma á næsta ári. Romano Prodi, formaður framkvæmdastjórnar sambandsins, lýsti í dag yfir ánægju sinni með að Króatía verði hluti af sameinaðri Evrópu í framtíðinni.

Jarðskjálfti í Kverkfjöllum

Jarðskjálfti upp á 3,2 á Richter varð í Kverkfjöllum á Vatnajökli rétt eftir miðnætti í gær. Engir eftirskjálftar hafa mælst á svæðinu.

Uppstokkun í ríkisstjórn Noregs

Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, stokkaði upp í ríkisstjórn sinni í morgun. Hann kynnti Haraldi Noregskonungi breytingarnar fyrir stundu. Tveir nýir ráðherrar voru kynntir til sögunnar.

Hvalfjarðargöngin opnuð að nýju

Hvalfjarðargöngin hafa verið opnuð að nýju en þeim var lokað um tíuleytið í morgun eftir að bíll með stórt hjólhýsi í eftirdragi, á leið suður göngin, fór utan í vegg neðst í þeim og hjólhýsið valt á hliðina. Ekki urðu slys á fólki en í bílnum voru hollensk hjón á hringferð um landið.

Guðrún Gísladóttir hífð upp?

Búist er við að norska Stórþingið taki í dag afstöðu til tillögu Verkamannaflokksins um að fjölveiðiskipið Guðrún Gísladóttir verði híft upp og fjarlægt af hafsbotni við Lófóten. Tvö ár eru liðin frá því skipið sökk á svæðinu.

Möl rutt ofan af Ingólfsfjalli

Stórvirk jarðýta heldur áfram að ryðja möl ofan af Ingólfsfjalli í malarnámuna við fjallsræturnar, þrátt fyrir þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar frá í fyrradag um að þetta sé óheimilt. Að sögn landeiganda, Helga Eggertssonar á Kjarri í Ölfusi, hefur honum ekkert borist um þessa niðurstöðu, hvorki frá stofnuninni né sveitarstjóra Ölfushrepps.

Helga hjartaþega heilsast vel

Helga Einari Harðarsyni, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í Gautaborg á mánudag, líður eftir atvikum vel, að sögn móður hans. Hann nýtur góðrar aðhlynningar og er ótrúlega hress.

Parísarhjól í Laugardalinn

Parísarhjól í Laugardalinn og heilsulón á Hellisheiði eru meðal atriða í verkefna- og aðgerðaráætlun Höfuðborgarstofu sem kynnt var í dag. Hugmyndir um útrás íslenskra listamanna voru einnig kynntar sem og nýtt slagorð fyrir borgina og markaðsverkefni.

Námið gjaldfrjálst að hluta

Leikskólanám fimm ára barna verður gjaldfrjálst að hluta, nái tillögur starfshóps um aukna samþættingu leikskóla og grunnskóla í Reykjavík fram að ganga.

Framkvæmdastjóri NATO væntanlegur

Framkvæmdastjóri Atlandstahfsbandalagsins, Jaap De Hoop Scheffe, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Gert er ráð fyrir að hann lendi á Reykjavíkurflugvelli klukkan hálf fimm í dag og haldi þaðan beint til fundar með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Unglingspiltar kveiktu í

Fikt tveggja unglingspilta með eld varð til þess að það kviknaði í verslunarmiðstöðinni Firði í gærkvöld. Þeir höfðu kveikt í rusli við austurgafl Fjarðar með þeim afleiðingum að eldur læstist í klæðningu hússins.

Landsmótin í uppnámi

Landsmót Ungmennafélags Íslands og Unglingalandsmótið, sem haldin verða í Skagafirði í næsta mánuði, eru í uppnámi eftir að dómsmálaráðherra úrskurðaði að sýslumaðurinn á Sauðárkróki hefði heimild til að innheimta tvær og hálfa milljónir króna í sérstakan löggæslukostnað vegna mótanna.

Helgi Einar af gjörgæslu

Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg á mánudag, hefur verið útskrifaður af gjörgæsludeild og liggur nú á hjartadeild. Hann er laus úr öndunarvél en að sögn móður Helga, Sigurbjargar Ásgeirsdóttur, líður honum vel eftir atvikum.

Hæstiréttur dæmir konu bætur

Hæstiréttur dæmdi í dag konu 300 þúsund króna bætur fyrir ólögmæta frelsissviptingu í sambandi við rannsókn á mannsláti í Kópavogi. Hún var handtekin ásamt karlmanni, grunuð um að hafa átt þátt í dauða mannsins.

Hæstiréttur dæmir konu bætur

Hæstiréttur dæmdi í dag konu 300 þúsund króna bætur fyrir ólögmæta frelsissviptingu í sambandi við rannsókn á mannsláti í Kópavogi. Hún var handtekin ásamt karlmanni, grunuð um að hafa átt þátt í dauða mannsins.

Kynferðisbrotamaður fær 10 mánuði

Kynferðisbrotamaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum sem þá voru 6 og 7 ára gamlar. Honum er jafnframt gert að greiða hvorri stúlku um sig 300.000 krónur í miskabætur.

Frítt í leikskóla fyrir fimm ára

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að leggja um 100 milljónir á ári í gjaldfrjálst nám fyrir fimm ára börn hluta úr degi. Með því viðurkennir borgin leikskólana sem fyrsta skólastigið, fyrst sveitarfélaga

Unglingar fundu fjölda hasspípa

Unglingar og leiðbeinendur hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fundu nokkra tugi af hasspípum á svæði austan við Rauðavatn. Fíkniefnalögreglan segir almenning duglegan að láta vita af stöðum sem þessum.

ESB

Mæla með skerðingu heildarafla

Nefnd um langtímanýtingu fiskistofna telur að skerða verði heildarafla um þrjú prósent í aflareglum og koma í veg fyrir að raunafli fari framúr leyfðum heildarafla. Tillögurnar hafa þegar verið teknar í framkvæmd að hluta til.

Skilorð fyrir slagsmál

24 ára maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás og áfengislagabrot.

Mun færri kjósa utan kjörfundar

Mun færri hafa nýtt sér þann rétt að greiða atkvæði utan kjörfundar, nú þegar átta dagar eru í forsetakosningar, en fyrir forsetakosningarnar árið 1996. Í Reykjavík eru þeir um helmingi færri en norðanmenn eru á svipuðu róli og fyrir síðustu kosningar.

Dæmd til að borga fimm hunda

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi nýverið karl og konu til að greiða Hundaræktinni í Dalsmynni á áttunda hundrað þúsund krónur, auk málskostnaðar, vegna fimm hunda sem þau höfðu keypt en ekki greitt fyrir.

Opið hús fyrir sveitunga

Í tilefni flutninga og sex ára afmælis Götusmiðjunnar verður opið hús fyrir alla sveitunga og fagfólk í geiranum við formlega opnun á Akurhóli, fyrrum Gunnarsholti, Rangárþingi-Ytra við Hellu í dag kl.14.

Forseti fagnar ummælum Vigdísar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti segist í viðtali við DV fagna því að Vigdís Finnbogadóttir forveri sinn í forsetaembætti skuli telja málskotsréttinn svo vakandi og sterkan, að hún lýsi því nú yfir að hún hefði beitt honum í Kárahnjúkamálinu.

Fimmtán milljarðar til bænda

Kostnaðurinn af stuðningi við bændur á síðasta ári nam rúmlega 52 þúsund krónum á hvert mannsbarn, að meðaltali. Heildarkostnaðurinn, annars vegar í formi styrkja úr ríkissjóði og hins vegar í formi hærra matvælaverðs, nam rúmum fimmtán milljörðum króna.

Ákvörðun dómsmálaráðuneytis ógild

Hæstiréttur ógilti í dag ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um að vísa litháískum morðingja og nauðgara úr landi. Litháinn kom til Íslands seint árið 1999 og fékk dvalarleyfi til febrúarmánaðar 2001. Í ársbyrjun bárust lögreglunni upplýsingar um að maðurinn hefði gerst sekur um alvarleg afbrot í heimalandi sínu.

Aflareglu fiskistofna verði breytt

Nefnd um langtímanýtingu fiskistofna leggur til að aflareglunni verði breytt og framvegis verði veidd um tuttugu og tvö prósent af áætluðum veiðistofni en það þýðir talsverða skerðingu veiðiheimilda.

Gæsluvarðhaldsúrskurður kærður

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þremur útlendingum, sem vísa á úr landi, var kærður til Hæstaréttar í dag. Fyrrverandi lögmaður eins þeirra segir yfirvöld með leikaraskap í málinu og standi að sínu mati ólöglega að meðferð þess.

Saddam ekki viðriðinn al-Kaída

George Bush forseti Bandaríkjanna og Dick Cheney varaforseti gera alvarlegar athugasemdir við niðurstöður nefndar um hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september. Þeir mótmæla þeirri skoðun að engin tengsl hafi verið á milli Saddams Hússeins og al-Kaída.

Rússar vöruðu Bandaríkjamenn við

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, lýsti því yfir í dag að rússneska leyniþjónustan hefði varað stjórnvöld í Washington við því að Saddam Hússein hefði skipulagt hryðjuverkaárásir á Bandaríkin, í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001.

Nýtt trúfélag ásatrúarmanna

Jörmundur Ingi fyrrverandi allsherjargoði sótti í dag um leyfi til að stofna nýtt trúfélag ásatrúarmanna. Hann segir fulla ástæðu til að opinber rannsókn verði gerð á fjárreiðum Ásatrúarfélagsins.

Leikskólinn fyrsta skólastigið

Allt stefnir í að leikskólanám fimm ára barna í Reykjavík verði gjaldfrjálst að hluta og leikskólinn viðurkenndur sem fyrsta skólastigið. Kostnaður borgarinnnar vegna þessara breytinga verður um 100 milljónir króna á ári.

Sjá næstu 50 fréttir