Ekkert afsakar framhjáhaldið 18. júní 2004 00:01 "
Ég held ég hafi gert þetta af þeirri verstu ástæðu sem til er - vegna þess að ég gat það," sagði Bill Clinton í viðtali við CBS sjónvarpsstöðina um framhjáhald sitt með Monicu Lewinsky sem á tíma ógnaði stöðu hans sem forseta. "Ég held að það sé nokkurn veginn sú versta siðferðislega ástæða sem nokkur maður getur haft fyrir að gera eitthvað," sagði forsetinn fyrrverandi. Viðtalið er hluti af kynningarherferð fyrir sjálfsævisögu Clintons sem verður gefin út í lok mánaðarins. Í viðtalinu sagðist Clinton hafa velt framhjáhaldinu talsvert fyrir sér og skoðað hvaða skýringar kynnu að eiga við. Sama hvernig hann færi yfir það væri engin afsökun fyrir því sem hann gerði. Clinton sagði að fjölskylda sín hefði þurft á ráðgjöf að halda til að komast í gegnum áfallið sem framhjáhaldið var. Framhjáhaldið hafi ógnað samskiptum sínum við dóttur sína. Þá hefði Hillary, kona hans, þurft tíma með honum til að ákveða hvort hún vildi vera gift honum áfram. "Við tókum okkur einn dag í viku, í hverri viku í rúmt ár [í þetta] og ég fékk ráðgjöf," sagði Clinton. "Við gerðum þetta saman. Við gerðum þetta sitt í hvoru lagi. Við gerðum þetta sem fjölskylda." Repúblikanar, og nokkrir demókratar, börðust fyrir því að svipta Clinton embætti vegna framhjáhaldsins og þess að hann neitaði því opinberlega að það hefði átt sér stað. Clinton segist stoltur af því að hafa barist gegn þeim og haft sigur. "Ég hætti aldrei. Ég neitaði að segja af mér, ég snerist til varna og stóð þetta af mér." Clinton segir efnahagsstefnuna vera helst afrek síns sem forseta. 22 milljónir starfa hafi skapast, fleiri hafi eignast hús en nokkru sinni áður og vextir lækkað. "Fólk gat gert meira en nokkru sinni fyrr."
Erlent Fréttir Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira