Fleiri fréttir

EFTA slæmur kostur

Vilji Bretar draga úr áhrifum sínum á alþjóðavettvangi og fórna stórveldisstimpli sínum, er besta leiðin til þess að segja sig úr Evrópusambandinu. Þeir fórna þá fullveldinu og verða áhrifalausir, eins og EFTA-ríkin. Þetta er niðurstaða leiðarahöfundar dagblaðsins Independent í dag.

Bréfum ekki svarað

Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur sendi forsætisráðuneytinu tvö bréf þar sem óskað var eftir samstarfi um 17. júní hátíðarhöld. Engin svör bárust og segir ráðuneytisstjórinn að erindið hafi dottið upp fyrir sökum tímaskorts.

Stakk hann þrisvar

Grétar Sigurðarson, einn sakborninga í líkfundarmálinu, játaði fyrir héraðsdómi í dag, að hafa stungið lík Vaidasar Jusevisiusar þrisvar sinnum, en ekki fimm sinnum, eins og hann er ákærður fyrir. Grétar neitaði að öðru leyti sök í málinu, en það var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 14 í dag.

Lítilsvirða mótframbjóðendur

Ingibergur Sigurðsson, kosningastjóri Ástþórs Magnússonar, telur að Leiklistarsamband Íslands lítilsvirði mótframbjóðendur Ólafs Ragnars Grímssonar með því að bjóða þeim ekki á leiklistarverðlaunin Grímuna í Borgarleikhúsinu í kvöld. Ólafur Ragnar afhendir þar heiðursverðlaun hátíðarinnar.

TM dæmd til greiðslu

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Tryggingamiðstöðina til að greiða erfingjum Svanhildar Bjarnadóttur 7 milljónir og 50 þúsund króna tryggingabætur. Svanhildur lést eftir að hún féll af svölum fjórðu hæðar hótels á Kanaríeyjum 5. janúar 2002.

Kvóti kolmunna aukinn

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að hækka leyfilegan heildarafla á kolmunna á árinu um 220 þúsund tonn þar sem Evrópusambandið hefur aukið kvóta þess um 350 þúsund.

Vigdís hefði nýtt málskotsrétt

Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, telur að frekar hefði átt að vísa frumvarpi um Kárahnjúkavirkjun til þjóðaratkvæðagreiðslu en fjölmiðlafrumvarpinu.

Grjótkast í Borgartúni

Byggingafulltrúi Reykjavíkurborgar átti fótum fjör að launa þegar sprengt var fyrir grunni í Borgartúni. Svo virðist sem eitthvað hafi farið úrskeiðis við framkvæmdina því skæðadrífa grjóts kastaðist yfir byggingar og bifreiðar í nágrenninu.

Verða að stöðva námugröft

Stöðva verður námugröft í landi Kjarrs í Ingólfsfjalli, eftir að Skipulagsstofnun úrskurðaði að leggja þyrfti framkvæmdina í mat á umhverfisáhrifum. Stofnunin kemst að þeirri niðurstöðu, að náman sé ný og því eigi við lög um skipulags- og byggingarmál frá 1998.

Hinir vísu menn funda

Sex manna hópur sérfræðinga kom í gær fyrir nefnd "hinna vísu manna" sem undirbýr þjóðaratkvæðagreiðsluna vegna fjölmiðlalaganna. Megináherslan er lögð á að svara þeirri spurningu hvort eðlilegt sé að setja skilyrði um þátttökufjölda í atkvæðagreiðslunni.

Vilja Guðrúnu burt

Meirihluti norska Stórþingsins hefur brugðist harkalega við þeirri ákvörðun norska sjávarútvegsráðuneytisins að láta ekki hífa fjölveiðiskipið Guðrúnu Gísladóttur upp af hafsbotni við Lófóten. Stórþingsmenn krefjast frekari aðgerða, að öðrum kosti verði verðmætum fiskimiðum stefnt í hættu.

Blair lofar þjóðaratkvæðagreiðslu

Að vera eða ekki að vera í Evrópusambandinu er spurning sem er til umræðu á Bretlandseyjum í kjölfar þess, að stjórnmálaflokkur sem vill ganga úr sambandinu bar sigur úr býtum í Evrópuþingskosningum um helgina.

Ólík kosningabarátta

Tíu dögum fyrir forsetakosningar keppast frambjóðendurnir Ástþór Magnússon og Baldur Ágústsson við að koma sér á framfæri en þó með ólíkum hætti. Baldur Ágústsson mætti í hádeginu ásamt kosningastjóra sínum í dreifingarmiðstöð Íslandspósts á Stórhöfða í Reykjavík. Þar ávarpaði hann starfsfólk í mötuneytinu.

Guðrún afhendir verðlaun Vigdísar

Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, afhendir verðlaun fyrir barnaleikrit í fjarveru Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands. Vigdís vildi ekki bendla forsetaembættið við umræðu um fjölmiðlalögin sem hún taldi að yrði óhjákvæmilegt í ljósi þess að Baugur fjármagnar hátíðina.

Hefði verið ábyrgðarleysi

Jónatan Þórmundsson lagaprófessor telur að það hefði verið ábyrgðarleysi af þjóðhöfðingja að stöðva Kárahnjúkamálið. Hann telur að skilja megi orð Vigdísar Finnbogadóttur fyrrverandi forseta í gær svo að hún telji að forseti hafi vald til að synja málum staðfestingar.

Steyptist niður skriðu

Mannlaus bíll steyptist niður Mánárskriður skammt frá Siglufirði í gær og hafnaði gjör ónýtur niðri í fjöru. Vegagerðarmaður, sem var að líta eftir veginum, var ný stiginn út úr bílnum, sem rann af stað og fór fram af vegkantinum. Snarbratt er á þessum slóðum og langt niður í fjöru og er ekki viðlit að ná flakinu upp, en hægt er að komast að því sjóleiðina.

Hrun á úthafskarfa

Algjört hrun hefur orðið í veiðum á úthafskarfa á þessu ári miðað við undanfarin ár og hefur aflinn frá áramótum dregist saman um rúm 80 % miðað við sama tíma í fyrra. Samkvæmt aflatölum Fiskistofu frá áramótum til maí loka, höfðu aðeins veiðst 3600 tonn af úthafskarfa á móti 18.600  tonnum á sama tíma í fyrra.

Engin sárindi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands á Grímunni í Borgarleikhúsinu í kvöld. Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fyrrverandi forseti Alþingis, afhendir verðlaun fyrir barnaleikrit í fjarveru Vigdísar Finnbogadóttur.

Dæmdir til að greiða bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline og Líf hf. til að greiða Margréti Gísladóttur bætur vegna líkamstjóns er hún varð fyrir við inntöku lyfja. Krafist er 32ja milljóna króna bóta, auk vaxta.

Bullur valda óeirðum

Óeirðir brutust út, aðra nóttina í röð, á Albúfeira-ströndinni í Portúgal, þar sem breskar fótboltabullur halda til. Fjöldi Íslendinga nýtur sólarinnar á sömu slóðum, og ráðleggja fararstjórar þeim að halda sig fjarri þeim stöðum sem Bretarnir eru með læti.

Vilja auðga úran

Til greina kemur að Íranir hefji auðgun úrans á ný, verði tillaga sem liggur fyrir alþjóða kjarnorkumálastofnuninni samþykkt. Þar eru Íranir fordæmdir fyrir að hafa ekki verið nægilega samvinnuþýðir við kjarnorkueftirlitsmenn.

34 drepnir í Kólombíu

Þrjátíu og fjórir bændur voru drepnir á frumskógasvæði í Kólombíu í gær. Morðingjarnir drógu bændurnar út úr heimilum sínum í dögum, bundu þá á höndum og fótum og skutu í höfuðið.

Dómurinn hefur enga þýðingu

Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins telur að tryggja þurfi stjórnmálamönnum víðtækt málfrelsi.  Að hans mati vann Davíð Oddsson forsætisráðherra fullnaðarsigur í meiðyrðamáli sem Jón Ólafsson fyrrverandi aðaleigandi Norðurljósa höfðaði gegn honum. 

Danir rífast um nýstárlega virkjun

Raforkuframleiðsla bálstofa er ekki raunhæfur kostur hér að mati forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma. Í Danmörku er um þessar mundir tekist á um hvort virkja beri orkuna sem til verður við bálfarir og sýnist sitt hverjum, að því er fram kom í danska dagblaðinu Politiken um helgina.

Vopnahléið út um þúfur

Þrír öryggisverðir voru skotnir til bana í árás á þorp í suðausturhluta Tyrklands í fyrrinótt. Talið er að kúrdískir uppreisnarmenn beri ábyrgð á drápunum en þeir sögðu á dögunum að einhliða vopnahlé sem þeir lýstu yfir fyrir fimm árum síðan væri ekki lengur í gildi.

Óttast nýtt borgarastríð

Bardagar í austurhluta Kongó og misheppnuð tilraun til að steypa stjórn landsins af stóli hafa vakið ótta manna um að friðurinn sem komst á árið 2002 kunni að vera úti.

Elsta hvalategundin

Það tók vísindamenn fjórtán ár en nú treysta þeir sér loks til að lýsa því yfir að beinagrind sem fannst árið 1990 sé af fjórtán milljón ára gamalli tegund hvala sem mönnum var áður ókunnugt um. Alton Dooley, steingervingafræðingur við Náttúrusögusafn Virginíu, segir að þessi nýuppgötvaða tegund sé þremur milljón árum eldri en elsta hvalategundin sem menn vissu um fyrir þessa uppgötvun.

Röng ráðgjöf um fiskveiðar í 20 ár

Jón Kristjánsson fiskifræðingur gefur lítið fyrir ráðleggingar Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Færeyskir sjómenn og útgerðarmenn eru í senn undrandi og ósáttir við þær, en þær kveða á um stórfelldan niðurskurð veiða þeirra á næsta fiskveiðiári.

Fór yfir strikið með ummælum sínum

"Mín skoðun er að það hafi áhrif á trúverðugleika forsætisráðherra þegar það sem hann lætur hafa eftir sér sem slíkur er dæmt dautt og ómerkt," segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Jóns Ólafssonar í meiðyrðamáli gegn Davíð Oddssyni.

Andspyrnuflokkar sigurvegarar

Litlir andspyrnuflokkar eru sigurvegarar Evrópuþingkosninganna sem fram fóru um helgina. Sigur þeirra er talinn til marks um óánægju kjósenda með stjórnvöld og stóra flokka.

Nýtt hjarta í annað sinn

Helgi Harðarson, þrjátíu og eins árs Grindvíkingur, er nú á skurðarborðinu á Salhgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og er að fá nýtt hjarta - í annað sinn á ævinni.

Loftvarnarbyrgi grafið upp

Loftvarnarbyrgi úr seinni heimsstyrjöldinni, sem grafið var upp á Reyðarfirði í síðustu viku er mjög heillegt. Sigfús Guðlaugsson rafveitustjóri hafði frumkvæði af því að ná byrginu í heilu lagi upp og stefnt er á að koma því fyrir á lóð Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði.

Rannsaka hvali án þess að drepa þá

Alþjóðlegi dýraverndunarsjóðurinn hefur í fimm mánuði beðið eftir svari frá íslenskum stjórnvöldum við því hvort honum sé heimilt að stunda hvalarannsóknir hér við land í sumar. Fulltrúar samtakanna telja sig geta stundað nákvæmari rannsóknir en áður hefur verið hægt, án þess að drepa dýrin.

Allir námsmenn fá vinnu

Stofnanir og fyrirtæki Seltjarnarnesbæjar ásamt vinnuskóla Seltjarnarness munu fjölga ráðningum ungmenna í sumar eins og undanfarin tvö ár til að bregðast við minna framboði á sumarstörfum fyrir ungt fólk. Markmið stjórnenda bæjarins er að tryggja að allir námsmenn í bænum fái vinnu í sumar.

Lýsir sig saklausan

Milorad Lukovic, sem hefur verið sakaður um að skipuleggja morðið á Zoran Djindic - fyrrum forsætisráðherra Serbíu, lýsti sig í gær saklausan af ákæruatriðum. Hann neitaði í síðustu viku að svara ákærunni af ótta við að orð hans hefðu áhrif á forsetakosningar um síðustu helgi.

Hryðjuverkunum 11. sept. frestað

Rannsóknarnefnd, sem skoðað hefur hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001, telur að þeim hafi verið frestað. Upphaflega hafi staðið til að fremja ódæðin um vorið það ár, en þar sem höfuðpaur hryðjuverkamannanna, Mohammed Attah, hafi ekki verið tilbúinn þá, var þeim frestað.

Komið í veg fyrir sjálfsmorðsárás

Gríðarleg sprenging varð þegar ísraelskir hermenn skutu að grunsamlegum bíl sem Palestínumaður ætlaði að aka inn í landnemabyggð á Gasa svæðinu í morgun. Talið er fullvíst að Palestínumaðurinn, sem beið bana, hafi ætlað að gera sjálfsmorðsárás á byggðina en engan Ísraela sakaði. Engin samtök hafa lýst ábyrgð á hendur sér.

Svikarar lofa vinnu á Íslandi

Fjölmiðlar í Namíbíu hafa vakið athygli á fyrirtækinu Unique Jobs sem gefið hefur atvinnulausu fólki loforð um vinnu við sjávarútveg í Noregi, Grænlandi og Íslandi gegn 12 þúsund króna gjaldi.

Hjartaígræðslan gekk vel

Læknar á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg í Svíþjóð luku undir morgun við að græða nýtt hjarta í Grindvíkinginn Helga Einar Harðarson, sem þurfti nýtt hjarta eftir hjartaígræðslu fyrir fimmtán árum. Einnig var grætt í hann nýtt nýra.

Bullur handteknar í Portúgal

Tvöhundruð ólátaseggir, flestir þeirra breski fótboltaáhugamenn, lentu í átökum við lögreglu í strandbænum Albufeira á Algarve í Portúgal snemma í morgun. Slagsmál brutust út á nokkrum krám þar sem ensku aðdáendurnir sátu að sumbli og mætti lögreglan á vettvang. Tólf voru hnepptir í varðhald, þar á meðal nokkrir Bretar.

Mega selja svínakjöt

Ísraelsk sveitarfélög verða að leyfa sölu svínakjöts ef meirihluti íbúanna krefst þess. Dómur hæstaréttar Ísraels í þessa veru þykir mikill sigur fyrir þá sem vilja skilja að ríki og trúarbrögð en trúaðir Ísraelar vöruðu við því að þetta græfi undan þjóðarvitund Ísraela sem gyðinglegrar þjóðar.

Eitt lengsta björgunarflug TF-LIF

Stóra þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fór í eitt lengsta björgunarflug sitt til þessa í gær þegar hún sótti veikan sjómann um borð í togarann Venus sem staddur var djúpt út af Reykjaneshrygg. Sjómaðurinn var fluttur á Landsspítalann og er líðan hans eftir atvikum.

Lestarránum fjölgar

Lestarfarþegar í Bihar-fylki í austurhluta Indlands eru uggandi um öryggi sitt eftir fjölda vopnaðra rána í lestum sem fara um héraðið. Rúmlega 20 lestarrán hafa verið framin í Bihar síðustu tvær vikurnar og nokkrir farþegar hafa verið skotnir til bana.

Saddam afhentur Írökum

Saddam Hússein verður afhentur nýjum, írökskum yfirvöldum þegar þann þrítugasta þessa mánaðar, að sögn væntanlegs forsætisráðherra, Iyads Allawis. Saddam er haldið á ótilgreindum stað í Írak þar sem hann hefur verið yfirheyrður.

Tveir ökumenn sviptir

Reykjavíkurlögreglan svipti tvo ökumenn ökuréttindum í nótt vegna ölvunaraksturs sem er fremur fátítt í miðri viku. Þeir voru báðir stöðvaðir við reglubundið eftirlit og reyndist áfengismagnið í þeim báðum vel yfir viðmiðunarmörkum þannig að þeir voru sviptir ökuréttindum strax.

Sjá næstu 50 fréttir