Fleiri fréttir

Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu

Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að leggja fram sameiginlegt frumvarp um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þing kemur saman þann 5. og 6. júlí.

Leigjendasamtökin stefna í þrot

"Það verður ógerlegt að starfrækja Leigjendasamtökin með einungis eina milljón króna til rekstrar á ári, ef heldur fram sem horfir," sagði Guðmundur St. Ragnarsson formaður samtakanna, spurður um þann þrönga fjárhagslegan kost sem samtökin búa nú við.

Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu

Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að leggja fram sameiginlegt frumvarp um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þing kemur saman þann 5. og 6. júlí.

Sharon ekki ákærður

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, verður ekki ákærður fyrir spillingu. Ríkissaksóknari Ísraels telur hvergi nærri nógar sannanir fyrir því að Sharon hafi brotið af sér þannig að þær dugi til sakfellingar.

Stækka byggðir á vesturbakkanum

Ísraelsk stjórnvöld eru að skoða möguleika á byggingu nokkur þúsund íbúða landtökumanna á Vesturbakkanum. Þar með virðast vera að rætast áhyggjur Palestínumanna sem sögðu að brotthvarf frá Gaza væri til þess eins að draga athyglina frá frekari uppbyggingu landnemabyggða og upptöku lands Palestínumanna á Vesturbakkanum.

Vigdís afhendir ekki verðlaun

Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands vill ekki afhenda leiklistarverðlaun á Grímunni vegna þess að hátíðin er að hluta til kostuð af Baugi Group. Hún vill forðast pólitíska umræðu. Vigdís segist ekki skilja í forseta Íslands að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar. Nær hefði verið að gefa þjóðinni tækifæri til að greiða atkvæði um Kárahnjúkavirkjun.

Einni og hálfri öld á eftir áætlun

Fyrir fjórum árum settu ríki heims sér það markmið að minnka fátækt í heiminum um helming á fimmtán árum. Í Afríku eru menn svo langt á eftir áætlun að það gæti tekið hálfa aðra öld að ná því markmiði. </font /></b />

DV - Kvótasvindl trillukónganna

Í DV í dag er fjallað um mikið kvótasvindl sem farið hefur fram á Íslandsmiðum. Smábátasjómenn hafa kastað fiski á milli báta með kvóta og þeirra kvótalausu og smyglað í land.

Frestuðust um nokkra mánuði

Hryðjuverkaárásirnar á World Trade Center og bandaríska varnarmálaráðuneytið áttu fyrst að eiga sér stað í maí eða júní 2001 en ekki í september sama ár eins og raunin var. Þetta kemur fram í upplýsingum um undirbúning árásanna sem sjálfstæð rannsóknarnefnd hefur komist yfir.

Fer á Sogn

Gæsluvarðhald yfir móðurinni sem varð dóttur sinni að bana á Hagamel í lok síðasta mánaðar hefur verið framlengt um þrjár vikur eða til fimmta júlí. Hún verður flutt á réttargeðdeildina á Sogni um leið og hún útskrifast af Landspítalanum.

Skilti sem vara við ögðum

Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, segir að sem fyrr verði sett upp skilti við Landmannalaugar þar sem fólk verði varað við hættunni sem stafað getur af blóðögðulifrum. "Við höfum bent fólki á þetta með ýmsum hætti þarna innfrá.

Írakar vilja Saddam í eigin hendur

Íraskir ráðamenn vonast til þess að Saddam Hussein og samverkamenn hans fyrir innrásina í Írak verði ákærðir áður en bráðabirgðastjórn Íraks tekur við völdum þann 30. þessa mánaðar. Þeir gera einnig ráð fyrir að Bandaríkjamenn afhendi þeim Saddam á næstu tveimur vikum.

Andstaðan með eigið frumvarp

Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og Vinstri grænir ætla að leggja fram sameiginlega frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu þegar Alþingi kemur saman í júlí.

Árni M. undirritar kvótareglugerð

Sjávarútvegsráðherra, Árni M. Mathisen, hefur undirritað reglugerð um kvóta sem er í fullu samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar nema að því leyti að leyfilegur hámarksafli á skarkola verður 5 þúsund tonn, þúsund tonnum meira en lagt var til.

Engin fjárveiting fengist

Garðar Garðarsson, formaður samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, segir að engin fjárveiting hafi fengist til að framfylgja vilja Alþingis um að semja við sálfræðinga og aðrar sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttir.

Líf hundruða þúsunda í hættu

Líf hundruða þúsunda er í hættu í vesturhluta Súdans þar sem stríð skæruliða og stjórnvalda, þurrkur og hungursneyð hafa náð slíku umfangi að stórfellt átak þarf til að afstýra hörmungum.

KB banki sýknaður

Kaupþing-Búnaðarbanki var sýknaður í dag af kröfum fyrrverandi vaktmanns sem stefndi bankanum og krafðist fimm milljóna króna greiðslu vegna ólögmætrar brottvikningar úr starfi. Dómurinn féllst ekki á að maðurinn hefði verið að yrkja og leika leikrit þegar hann sást handleika trúnaðarskjöl fyrir framan eftirlitsmyndavélar.

Vill ekki draga meira saman

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki draga starfsemi Landspítalans meira saman en orðið er. Heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra eiga í viðræðum vegna framlaga til spítalans á fjárlögum.

Siðanefnd fundar vegna Hannesar

Siðanefnd Háskóla Íslands kom saman í morgun til að ræða kæru aðstandenda Halldórs Laxness vegna fyrsta bindis ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Nóbelsskáldið.  Hannes er sakaður um brot á höfundarréttarlögum og siðareglum Háskóla Íslands við ritun bókarinnar.

Menningarmálanefnd geri athugasemd

Prestur innflytjenda á Íslandi segir það alvarlegt að Þjóðdansafélag Reykjavíkur neiti að lána blökkukonu þjóðbúning til myndatöku á forsíðu blaðs, vegna litarháttar hennar. Hann vill að Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar geri formlega athugasemd við félagið.

Króatía semur um skuldir

Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda í Króatíu og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um tæplega 100 milljóna dala lán. Samkvæmt samkomulaginu skuldbinda króatísk stjórnvöld sig til að skera niður útgjöld ríkisins og lækka skuldir.

Buðu smokka og herbergi

Foreldrum útskriftarnema í bandarískum miðskóla var ofboðið þegar þeir fengu bréf, að því er virtist frá skólayfirvöldum, þar sem skýrt var frá því að boðið yrði upp á getnaðarvarnir á útskriftarballinu. Einnig stæðu hótelherbergi til boða þeim nemendum sem hefðu áhuga á því.

Sundlaugin enn opin í Húsafelli

Ekki er hægt að útiloka að Norwalk-veiran sem fundist hefur í sýni sjúklings í kjölfar dvalar í Húsafelli, geti verið í neysluvatni á staðnum. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Ekkert athugavert hefur þó fundist í vatninu á svæðinu.

Eldur í iðnaðarhúsnæði

Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja lentu í stór hættu í nótt þegar eldur sprengdi gaskúta og heilan flugeldalager í húsi, sem þeir voru að slökkva í, en þeim tókst að forða sér og sakaði engan. Flugeldarnir voru geymdir þarna í óleyfi og án vitundar slökkviliðsins.

Ellefu látnir í Bagdad

Ellefu hið minnsta fórust fyrr í morgun þegar sjálfsmorðsárás var gerð á háannatíma í Bagdad. Sautján eru sagðir sárir. Talið er að maður hafi sprengt sig í loft upp um leið og bílalest óbreyttra, erlendra borgara ók hjá við svokallað Frelsistorg, en það mun vera ein megin umferðaræð borgarinnar.

Atlantsolía lækkar bensínverð

Atlantsolía, eina olíufélagið sem ekki hækkaði bensín um mánaðamótin, lækkaði verðið í gærkvöldi um rúma krónu á lítrann og fór verðið þar með niður fyrir hundrað krónurnar.

Ferðamönnum bjargað af jökli

Björgunarsveitarmenn frá Höfn í Hornafirði komu með tvo erlenda ferðamenn ofan af Skálafellsjökli til Hafnar laust fyrir miðnætti. Fólkið hafði lent í erfiðleikum vegna slæms veðurs og færðar og kallaði það á hjálp.

Opið bréf til höfuðs Bush

Bush Bandaríkjaforseti á von á nýrri bylgju harðrar gagnrýni frá tuttugu og sex fyrrverandi sendiráðunautum og hermönnum í vikunni. Þeir hyggjast birta opið bréf þar sem hvatt er til þess að forsetinn verði ekki endurkjörinn nú í nóvember.

Myndir af gíslum í Írak

Öfgahópur í Írak sendi í gær frá sér myndir sem sýna egypska og tyrkneska gísla sem eru í haldi hópsins og voru myndirnar sýndar í Íslandi í bítið á Stöð 2 í morgun. Í yfirlýsingu sem fylgdi segir að þetta sé gert til að sýna að gíslum í Írak hafi ekki öllum verið sleppt, eins og hermt hafi verið undanfarna daga.

Ameríkanar til Íslands fyrir 61$

Hundrað stálheppnir Ameríkanar eru á leið hingað til lands í sumarfrí á kostakjörum, og það fyrir mistök. Fjöldi viðskiptavina netferðskrifstofunnar Cheaptickets.com fékk flugmiða hingað til lands á hreint hlægilegu verði. Þeir kostuðu ekki nema sextíu og einn dollar eða sem nemur rúmum 4400 krónum.

Fékk engar atvinnuleysisbætur

Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki tekið tillit til aðstæðna þegar hún synjaði konu um bætur í 40 bótadaga því konan hafi ekki sagt starfi sínu lausu vegna gildra ástæðna.

Brunarannsókn hafin í Njarðvík

Rannsókn er nú hafin í rústum iðnaðarhússins sem brann að hluta í Njarðvík í nótt. Lögreglumenn og fulltrúar tryggingafélaga eru á vettvangi en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá vél sem maður á bílaverkstæði í húsinu var að vinna við.

Þrettán látnir í Bagdad

Tala látinna, sem fórust fyrr í morgun þegar sjálfsmorðsárás var gerð á háannatíma í Bagdad, er komin upp í þrettán og gæti hækkað enn. Sautján eru sagðir sárir. Talið er að maður hafi sprengt sig í loft upp um leið og bílalest óbreyttra, erlendra borgara ók hjá við svokallað Frelsistorg en það mun vera ein megin umferðaræð borgarinnar.

Nokkur fjölgun sumarhúsa hugsanleg

Ákveðið hefur verið að stækka ekki sumarhúsabyggð við Þingvallavatn. Hins vegar verður unnið að því að tengja betur saman þær byggðir sem fyrir eru og gæti það haft í för með sér nokkra fjölgun sumarhúsa að sögn Sveins A. Sæland, oddvita Bláskógabyggðar.

Ísland fyrirmyndin

Verður í framtíðinni nauðsynlegt að sökkva sér ofan í bækur til að finna þorsk? Þetta er fyrirsögn í heilsíðuauglýsingu nærststærstu verslunarkeðju heims, Carrefour. Auglýsingin birtist í Sviss, Frakklandi, Belgíu og á Spáni föstudaginn 4. júní.

Sharon ekki ákærður

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, verður ekki ákærður fyrir spillingu í tengslum við rannsókn á meintum mútugjöfum ísraelsks auðkýfings sem sonur Sharons starfaði fyrir. Rannsókn á málinu og aðild Sharon-fjölskyldunnar hefur staðið svo mánuðum skiptir en talið var að kaupsýslumaðurinn David Appel hafi borið fé í son forsætisráðherrans sem hafi í staðinn liðkað fyrir um viðskipti Appels.

Þátttaka í Evrópukosningum dræm

Íbúar Evrópusambandsins sendu stjórnvöldum í heimalöndum sínum skýr skilaboð um helgina, sé miðað við úrslit Evrópuþingskosninga. Ekki er nóg með að þátttaka hafi verið með afbrigðum lítil, eða 44,2%, heldur guldu stjórnarflokkar nánast undantekningarlaust afhroð. Í nýju aðildarlöndununum tíu, sem gengu í Evrópusambandið fyrir aðeins nokkrum vikum, var þátttakan ennþá minni eða aðeins 26%.

Þýsk kona lést í sprengingu

Kona lést í sprengingu í íbúðarblokk í Duisburg í Þýskalandi í morgun. Einn karlmaður slasaðist. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni sem var í íbúð á fjórðu hæð, skömmu fyrir klukkan tíu að staðartíma. Lögregla og sjúkralið er enn á staðnum en eldur braust út í blokkinni í kjölfar sprengingarinnar.

Írakskur drengur í aðgerð í Japan

Írakskur drengur, sem missti nærri sjón í stríðinu en hlaut meðferð í Japan, hitti í morgun ekkju japanska blaðamannsins sem sá til þess að hann hlaut aðstoð. Mohamad Sale er tíu ára gamall piltur frá borginni Fallujah.

Slökkviliðsmenn fylgjast með

Landssamband slökkviliðsmanna ætlar að fylgjast grannt með rannsókn á brunanum í Njarðvík í nótt þar sem meðal annars kviknaði í flugeldalager þannig að slökkviliðsmönnum stafaði stór hætta af.

Ástþór hótar RÚV uppákomum

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hótar fréttastofu Ríkissjónvarpsins uppákomum og leiðindum fjalli hún ekki um framboð hans með þeim hætti sem Ástþór telur samrýmast skyldum íslenskra ríkismiðla. Vísar Ástþór þar meðal annars í yfirlýsingu stjórnvalda sem send var Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu.

Davíð dæmdur fyrir meiðyrði

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Davíð Oddsson forsætisráðherra fyrir meiðyrði í garð Jóns Ólafssonar, fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa.

Hvalarannsóknir án þess að drepa

Alþjóðlegi dýraverndunarsjóðurinn ætlar að stunda hvalarannsóknir við Ísland í sumar. Fulltrúar sjóðsins telja sig geta stundað nákvæmari rannsóknir en áður hefur verið hægt og það án þess að drepa dýrin.

Ævisaga Clintons væntanleg

Ævisaga Bills Clintons, My Life, kemur út síðar í mánuðinum og ef fer sem horfir verður hún söluhæsta stjórnmálabók allra tíma. Bæði hjá netbókabúðinni Amazon og bókabúðakeðjunni Barnes and Noble er ævisagan í efsta sæti metsölulistans, þó að hún sé ekki ennþá komin út.

Konuleysi undirbúningsnefndar

Það brýtur í bága við nýsamþykkta framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum að engin kona eigi sæti í undirbúningsnefnd fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þetta kemur fram í ályktun Femínistafélags Íslands sem send var út í morgun og tekur félagið þar með undir ályktun Kvenréttindafélags Íslands. 

Sjá næstu 50 fréttir