Líf hundruða þúsunda í hættu 15. júní 2004 00:01
Líf hundruða þúsunda er í hættu í vesturhluta Súdans þar sem stríð skæruliða og stjórnvalda, þurrkur og hungursneyð hafa náð slíku umfangi að stórfellt átak þarf til að afstýra hörmungum. Í Darfur-héraði í Súdan blasir við skelfingarástand. Yfir milljón manna er á flótta, þar er þurrkur og drykkjarvatn því nánast ekki til staðar, stjórnvöld í landinu og skæruliðar berast á banaspjót og valda ringulreið sem leitt hefur til þess að bændur hafa ekki getað sáð, og innan vikna hefst rigningatímabilið. Skæruliðar hafa rænt og ruplað og stjórnvöld gera hjálparstofnunum erfitt um vik við að aðstoða þá sem eru í neyð. Carol Bellamy, yfirmaður Barnastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er á svæðinu til að kynna sér aðstæður og segist hún varla minnast þess að hafa komið á vettvang þar sem svo mikið er í húfi en svo lítið að gerast. Rauði krossinn, Sameinuðu þjóðirnar og frjáls félagasamtök verði nú að taka höndum saman og bæta úr ástandinu. Rauði krossinn hefur sent út neyðarkall og telja menn þar að aðgerðirnar sem þörf er á í Darfur séu umfangsmeiri en í Írak og Afganistan svo dæmi séu tekin. Óttast er að stefni í mestu hörmungar í Afríku síðan í borgarstyrjöldinni í Rúanda á tíunda áratug síðustu aldar.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Sjá meira