Tónlist

Þessi hlutu Hlust­enda­verð­­­launin í ár

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Friðrik Dór Jónsson hlaut tvenn verðlaun þegar Hlustendaverðlaunin árið 2023 voru afhent við hátíðlega athöfn í kvöld.
Friðrik Dór Jónsson hlaut tvenn verðlaun þegar Hlustendaverðlaunin árið 2023 voru afhent við hátíðlega athöfn í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Hlustendaverðlaunin voru afhent í Háskólabíói í kvöld. Þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin voru veitt og var öllu tjaldað til. Sýnt var frá viðburðinum í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.

Það eru útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 sem standa í sameiningu fyrir Hlustendaverðlaununum. Markmiðið er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri á að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.

Boðið var upp á sannkallaða tónlistarveislu því fram komu Friðrik Dór, Una Torfa, Júlí Heiðar, Reykjavíkurdætur, Superserious, Emmsjé, Gauti, Klara Elias, Eyþór Ingi og Babies, Daniil og Saga Matthildur. Kynnar kvöldsins voru þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir.

Dýrð í dauðaþögn kosið lag ársins

Það var tónlistarkonan Bríet sem hlaut flest verðlaun kvöldsins en hún var bæði söngkona ársins og flytjandi ársins, ásamt því að vera flytjandi lags ársins, Dýrð í dauðaþögn. Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór átti einnig gott kvöld því hann var kosinn söngvari ársins, ásamt því að eiga plötu ársins, Dætur.

Bríet sá sér ekki fært að mæta á verðlaunaafhendinguna en hún þakkaði fyrir sig í gegnum fjarfundarbúnað.Vísir/Hulda Margrét

Í ár var kynntur til leiks nýr verðlaunaflokkur, lagahöfundur ársins, og var það Bubbi Morthens sem hlaut þau verðlaun.

Egill Ólafsson heiðraður

Þá hlaut söngvarinn Egill Ólafsson sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistarsenu í gegnum tíðina.

Ólafur Egilsson tók við heiðursverðlaunum fyrir hönd föður síns, Egils Ólafssonar.Vísir/Hulda Margrét

Rapparinn Daniil var kosinn nýliði ársins en Lífið á Vísi tók stórskemmtilegt viðtal við hann nú á dögunum sem sjá má hér að neðan.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir sigurvegara kvöldsins og alla sem hlutu tilnefningu.


Lag ársins

Dýrð í dauðaþögn - Bríet

Einnig tilnefnd:

  • Upp á rönd - Hjálmar og GDRN
  • Bleikur og Blár - Friðrik Dór
  • Emmsjé Gauti - Klisja
  • Lengi lifum við - Jón Jónsson
  • Ástin heldur Vöku - Júlí Heiðar
  • Bye bye honey - Superserious
  • Aumingja þuríður - Ólafur Kram

Flytjandi ársins

Bríet

Einnig tilnefnd:

  • GDRN
  • Systur
  • Friðrik Dór
  • Emmsje Gauti
  • Júlí Heiðar
  • Skálmöld
  • Dr Gunni

Söngkona ársins

Bríet

Einnig tilnefndar:

  • Sigrún Stella
  • Stefanía Svavars
  • GDRN
  • Klara Elias
  • Karen Ósk
  • Margrét Rán
  • Brynhildur Karls

Söngvari ársins

Friðrik Dór

Friðrik Dór Jónsson var valinn söngvari ársins.Vísir/Hulda Margrét

Einnig tilnefndir:

  • Krummi
  • Jónas Sig
  • Ásgeir Trausti
  • Aron Can
  • Júlí Heiðar
  • Birgir Hansen
  • Júníus Meyvant

Plata ársins

Friðrik Dór - Dætur

Einnig tilnefnd:

  • Ásgeir Trausti - Dýrð í dauðaþögn 10 ára / Time on my hands
  • Gdrn og Magnús Jóhann - 10 íslensk sönglög
  • Vök - Vök
  • Júníus Meyvant - Guru
  • Jói P - Fram í rauðan dauðann
  • Kvikindi - Ungfrú Ísland
  • Snorri Helgason - Víðihlíð

Nýliði ársins

Daniil

Einnig tilnefnd:

  • Árný Margrét
  • Silja Rós
  • Una Torfa
  • Elín Hall
  • Stefán Óli
  • Kvikindi
  • Ormar

Myndband ársins

Turn This Around - Daugthers of Reykjavík

Einnig tilnefnd:

Cold Feet - Bríet

Borderland - Ásgeir Trausti

Bolero - GusGus

Sorrowful Soil - Björk

Eyjanótt - Klara Elias

Jelly Belly - BSÍ

Slaki Babarinn - BlazRoca og Egill Ólafs


Lagahöfundur ársins

Bubbi, fyrir lögin Tárin falla hægt, Ennþá er tími, Ertu góður og Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu).

Einnig tilnefnd:

  • Friðrik dór og Pálmi Ragnar fyrir Bleikur og Blár, Friðrik Dór og Þormóður fyrir Þú.
  • Klara Elias, Alma og James Wong, fyrir lagið Eyjanótt.
  • Gauti Þeyr Másson og Þormóður, fyrir lagið Klisja.
  • Bríet og Pálmi Ragnar, fyrir lagið Flugdreki.
  • Hjálmar og GDRN, fyrir lagið Upp á rönd.
  • Björn Jörundur, fyrir lagið Reiknaðu með mér.
  • Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, fyrir lagið Með hækkandi sól.
  • Reykjavíkurdætur, fyrir lagið Tökum af stað.
  • Margrét Rán Magnúsdóttir (VÖK) Something Bad, No coffe at a funeral og Lost in the weekend.

Upptökustjórn og hljóðblöndun - Valið af útvarpsfólki

Pálmi Ragnar Ásgeirsson


Kítón verðlaunin - Valið af stjórn Kítón

Hildur Kristín Stefánsdóttir

Einnig tilnefndar:

  • Gugusar
  • Salka Valsdóttir
  • Herdís Stefánsdóttir
  • Margrét Rán Magnúsdóttir

Heiðursverðlaun

Egill Ólafsson


Hlustendaverðlaun Bylgjunnar, FM957 og X977 2023 eru í samstarfi við ON og Gull léttöl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×