Tónlist

Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Plötusnúðurinn Mellí 777 mun ekki hita upp fyrir Azealiu Banks í Austurbæjarbíói í desember.
Plötusnúðurinn Mellí 777 mun ekki hita upp fyrir Azealiu Banks í Austurbæjarbíói í desember.

Plötusnúðurinn Mellí Þorkelsdóttir, eða Mellí 777, hefur hætt við að hita upp fyrir bandarísku tónlistarkonuna Azealiu Banks í Austurbæjarbíói þann 3. desember. Í kjölfar úrslita forsetakosninganna í Brasilíu síðustu helgi ákvað Mellí að taka afstöðu gegn síónískum skoðunum Banks og með Palestínu og hætta við að hita upp fyrir hana.

Mellí greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram-hringrás sinni í gær. „Eftir að hafa hugsað málið fram og til baka vildi ég tilkynna að ég er ekki lengur að hita upp fyrir Azealiu Banks,“ sagði hún þar.

Sjá einnig: Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói

„Þrátt fyrir að hún hafi verið svo áhrifamikill listamaður fyrir mig síðan ég var unglingur held ég að þessi tímasetning henti ekki,“ bætti hún við. Mellí sagðist hvorki vera aktívisti né pólitíkus og hafi lengst af litið svo á að hún væri áhrifalítill plötusnúður „á pínulitla Íslandi“ með 1.800 samfélagsmiðlafylgjendur.

DJ Mellí þeytti skífum.Róbert Arnar

Hún kunni jafnframt enn að meta áhrif Azealiu, sem umdeilds en áhrifamikils tónlistarmanns, á elektrópopptónlist, sérstaklega fyrir að endurvekja Vogue/Ballroom-tónlist í poppi.

„Hins vegar eftir að hafa vakað fram á nótt síðastliðinn sunnudag að fylgjast með Lula vinna forsetakosningarnar í Brasilíu á móti pro-Ísrael fasískum frambjóðanda varð mín óvissa gagnvart þessu máli kristaltær og staðfesti mikilvægi þess að við getum öll tekið afstöðu fyrir því sem við trúum á,“ bætti hún svo við.

Mellí kvittaði svo undir færsluna með orðunum „Palestina livre“ sem þýðir „Frjáls Palestína“ á portúgölsku.

Síonisti sem er nýfluttur til Tel Aviv

Azealia Banks  kom fyrst fram á sjónarsviðið með slagarann „212“ og hefur síðan þá gefið út plöturnar Broke With Expensive Taste (2014) og Zenzealia (2026). Á síðustu árum hefur þó meira farið fyrir umdeildum yfirlýsingum hennar en tónlistarsköpun. 

Banks hefur lýst því yfir að vegna rasisma araba í garð svartra sé hún síonisti og dyggur stuðningsmaður Ísraela. Fyrr í mánuðinum tilkynnti hún svo að hún væri flutt til Tel Aviv í aðdraganda tónleika sinna þar í landi.

Þá hefur hún gagnrýnt hugmyndir um tveggja ríkja lausna milli Ísraela og Palestínubúa og sakað BDS-sniðgönguhreyfinguna um gyðingaandúð. Þá telur hún að Palestína ætti ekki að vera sjálfstætt land heldur að palestínsk landsvæði ættu öll að tilheyra Ísrael.

Fjandsamlegar yfirlýsingar Banks um samkynhneigða og trans fólk hafa einnig fallið í grýttan jarðveg sem og stuðningur við Donald Trump í Epstein-málinu með þeim rökum að kynlíf með táningum hafi lengi ekki þótt tiltökumál.

Mellí er ekki sú eina sem hefur tjáð sig um tónleika Azealiu hér á landi. Listakonan og aðgerðasinninn Julia Mai hvatti fólk í gær til að sniðganga tónleika Banks í Austurbæjarbíói vegna hvítþvotts hennar á þjóðarmorði Ísraela í Palestínu.

„Oft er talað um að það eigi að aðskilja listina frá listamanninum en þegar fólk styður Ísrael í miðju þjóðarmorði, hvernig getum við réttlætt þau orð?“ sagði Julia í myndbandi sem hún birti á Instagram og fylgdu með skjáskot af umdeildum orðum Banks um Ísrael.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.