Enski boltinn

Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið al­gjör­lega búinn á því

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hann Frank Ilett á The United Strand var ekki rismikill eftir tapið í gær.
Hann Frank Ilett á The United Strand var ekki rismikill eftir tapið í gær. @theunitedstrand

Manchester United tapaði tveimur leikjum á fimm dögum með markatölunni 1-7 og mótherjarnir voru ekki Real Madrid og Arsenal heldur Como og Bournemouth.

Frank Ilett á The United Strand er einn þekktasti stuðningsmaður United í dag enda ætlar hann að safna hári þar til liðið hans vinnur fimm leiki í röð.

Hann byrjaði að taka áskoruninni 5. október 2024 og nú rúmum tveimur árum seinna hefur Manchester United enn ekki náð að vinna fimm leiki í röð. Liðið hefur leikið yfir hundrað leiki á þessum tíma og það eru meira en 750 dagar síðan hann fór í klippingu.

United tapaði ekki aðeins þessum tveimur leikjum heldur hefur liðið nú leikið átta leiki í röð án þess að fagna sigri, gert þrjú jafntefli og tapað fimm. Uppskeran í deildinni er sextánda sæti, einu stigi frá fallsæti, og í Meistaradeildinni er liðið með þrjú stig af níu mögulegum í tuttugasta sætinu.

Það er því kannski ekkert skrýtið að Frank sé algjörlega búinn á því. Eftir tapið í gær birti hann myndband af sér að drekkja sorgum sínum í sturtunni og undir skrifaði hann „Done“ eða „Búinn á því“. Það má sjá myndbandið hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×