Erlent

Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur í Rúss­landi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti var staddur í Bretlandi í gær.
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti var staddur í Bretlandi í gær. EPA/BETTY LAURA ZAPATA

Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars.

Í kjölfarið jókst umfang árása Rússa á Úkraínu og gerðu Rússar meðal annars umfangsmiklar árásir á orkuver í Úkraínu.

Í viðtali sem Financial Times birti í nótt sagði Selenskí að Úkraínumenn væru hættir að halda að sér höndum, sem þeir hafa gert í þrjá daga.

„Stöðvunin er búin. Við erum hættir þessu.“

Þá gagnrýndi hann viðleitni Trumps og hans fólks til að reyna að gera viðskiptasamninga við Rússa og það að Trump virtist líta upp til Pútíns.

„Hann [Trump] talar opinskátt og hástöfum um það að honum líki við slíkt fólk og beri virðingu fyrir því. Að hans mati eru þeir sem geta verið leiðtogar í tuttugu ár, þrjátíu ár eða fjörutíu ár mjög sterkir menn.“

Í viðtalinu ítrekaði Selenskí að jákvætt samband við Bandaríkjamenn væri gífurlega mikilvægt fyrir Úkraínumenn. Það væri þó ekki á hans könnu að bæta það, þar sem hann hefði ekki gert neitt til að skemma sambandið.

Harðorður í garð Selenskís

Trump hefur á undanförnum dögum verið mjög svo gagnrýninn og harðorður í garð Selenskís. Hann hefur sakað hann um að standa í vegi friðar og kallað eftir kosningum í Úkraínu.

Reiði Trumps í garð Selenskís virðist að miklu leyti snúast um árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Trump hefur reynt að halda því fram að þær séu ástæðan fyrir háu eldsneytisverði en ekki stríð Trumps gegn Íran og meðfylgjandi óreiða og takmarkanir á flæði olíuafurða frá Mið-Austurlöndum, sem spilar mun stærri rullu í hærra eldsneytisverði en árásir Úkraínumanna í Rússlandi.

Þá er útlit fyrir að Bandaríkjamenn hafi um tíma hætt að deila upplýsingum um eldflaugaskot í Rússlandi með Úkraínumönnum og gert þeim erfiðara um vik með að verjast drónaárásum Rússa og gera árásir á rússneska hermenn með því að setja takmarkanir á Starlink-notkun Úkraínumanna í gær.

Þær takmarkanir voru ekki lengur til staðar í morgun, samkvæmt Selenskí.

Í viðtali sem hann fór í hjá Piers Morgan í gær sagði Selenskí að þessar ákvarðanir ráðamanna í Bandaríkjunum hefðu kostað mannslíf í Úkraínu. Sagði hann að um svik af hálfu Trumps væri að ræða.

Í viðtalinu við FT sagði Selenskí að það yrði erfitt fyrir Úkraínumenn að berjast án aðstoðar Bandaríkjamanna og að Evrópa þyrfti að standa betur saman. Hann viðurkenndi að á næstu tólf mánuðum gætu kosningar í Evrópu, þar sem stjórnmálaöflum sem þykja vinveitt Rússlandi virðast ætla að ganga vel, einnig leitt til vandræða fyrir Úkraínumenn.

Úkraínumenn gerðu einnig árás á herflugvöll í Voronezh-héraði í gærkvöldi og segja að þeir hafi grandað sex Su-34M herþotum. Sú árás var gerð með Neptun-stýriflaugum en verði niðurstaðan staðfest yrði um að ræða mikið tjón fyrir Rússa.

Árásin var fönguð á myndband.

Rússar nota þessar herþotur meðal annars til að varpa svokölluðum svifsprengjum á úkraínska hermenn og borgara. Það eru stórar sprengjur sem varpað er úr mikilli hæð og fjarlægð frá víglínunni.

Þær falla svo á skotmörk sín á miklum hraða en sprengjurnar hafa reynst Úkraínumönnum erfiðar á undanförnum árum. Tap Rússa á sex Su-34M-þotum yrði því mjög jákvætt fyrir Úkraínumenn.


Tengdar fréttir

Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“

Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×