Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Samúel Karl Ólason skrifar 14. september 2026 11:17 Mohammed bin Salman, Donald Trump og Vólódímír Selenskí. EPA Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað.
Þá vill Trump meina að það séu Úkraínumenn sem beri ábyrgð á hækkandi olíuverði. Það komi átökunum í Mið-Austurlöndum lítið við. Hútar og Sádar hafa lengi eldað grátt silfur saman en átökin í Jemen og Sádi-Arabíu hafa náð nýjum hæðum á undanförnum dögum, með umtalsverðum áhrifum á olíumarkaði um heiminn allan. Sádar neyddust á dögunum til að loka mikilvægri olíuleiðslu eftir ítrekaðar árásir Húta. Leiðslan hafði gert þeim kleift að flytja olíuafurðir gegnum Rauðahaf þar sem dregið hefur töluvert úr siglingum um Hormússund vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Sjá einnig: Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Lokun leiðslunnar og takmarkaðar siglingar um Hormússund fela í sér að um fjögur prósent af framboði olíu í heiminum gætu horfið af markaðnum, með tilheyrandi áhrifum á olíuverð. Olíuverð hefur þegar hækkað mikið á árinu og leitt til verðbólgu víða um heim. Það hefur einnig sent skuldabréfamarkað Bandaríkjanna á sambærilegar slóðir og markaðurinn var fyrir hrunið 2008, samkvæmt frétt Reuters. Báðar leiðir lokaðar Viðgerðir á olíuleiðslunni í Sádi-Arabíu gætu tekið nokkrar vikur eða lengur. Sádar þyrftu þrátt fyrir það að geta flutt olíuna úr landi og það gæti reynst erfitt vegna átaka bæði austur og vestur af landinu. Hútar, sem eru bandamenn klerkastjórnarinnar í Íran, hófu í síðustu viku skyndisókn gegn sveitum ríkisstjórnar Jemen í vesturhluta landsins og lögðu undir sig stórt svæði við Rauðahaf og eyju á miðju hafinu. Þetta gerir Hútum mun auðveldara en áður að gera árásir á olíuflutningaskip á hafinu og loka Bab al-Mandab-sundi. Eins og áður segir eru siglingar um Hormússund enn takmarkaðar, þó flæði olíu hafi aukist þar á undanförnum vikum. Áður en stríðið gegn Íran hófst í lok febrúar flæddu um 22 milljónir tunna af olíu frá Mið-Austurlöndum á degi hverjum. Nú er flæðið á bilinu sex til níu milljónir tunna á dag. Sjá einnig: Miklar hækkanir á olíumörkuðum Til stóð að halda fund í Óman í dag, þar sem erindrekar og embættismenn frá Mið-Austurlöndum ætluðu að koma saman og ræða stöðuna. Þeim fundi var frestað skyndilega í morgun. Sádar pirraðir yfir stríðinu Staða Sáda er slæm og ráðamenn þar eiga fáa góða kosti í stöðunni. Í grein AP fréttaveitunnar frá því um helgina er bent á að helstu bandamenn Sáda, Bandaríkjamenn, hafi verið óútreiknanlegir og jafnvel óáreiðanlegir að undanförnu. Donald Trump óttist stigmögnun átakanna í Mið-Austurlöndum í aðdraganda þingkosninga í haust. MbS, eins og krónprinsinn er iðulega kallaður, hringdi tvisvar í Trump í síðustu viku og bað um aðstoð gegn Hútum. Samkvæmt heimildum Reuters neitaði forsetinn að gera árásir á Húta en sagði að Bandaríkjamenn myndu aðstoða Sáda með upplýsingum um hreyfingar Húta og möguleg skotmörk. Í samtali við AP segir Michael Ratney, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu, að ráðamenn þar séu gífurlega pirraðir út í Bandaríkjamenn. „Þrátt fyrir andúð þeirra á klerkastjórninni í Íran er stríð sem þeir báðu aldrei um og efuðust mjög um. Þegar það hófst rættust allir þeirra verstu draumar.“ Ekki sér, heldur Selenskí að kenna Donald Trump er ekki á þeim buxunum að hækkandi olíuverð sé sér og stríðinu gegn Íran að kenna. Í gær sagði hann að ástandið væri Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, að kenna. Árásir Úkraínumanna á olíuframleiðsluinnviði í Rússlandi hefðu valdið gífurlegum hækkunum á olíumörkuðum og sérstaklega hvað varðar díselolíu. Trump sagðist hafa rætt málið við Selenskí og sagt honum að hætta árásum á díselvinnslur í Rússlandi. Úkraínumenn hafa um þó nokkuð skeið gert umfangsmiklar árásir á olíuframleiðsluinnviði í Rússlandi. Þær hafa meðal annars leitt til þess að Rússar hafa bannað útflutning díselolíu en sala olíuafurða er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins. Á föstudaginn náði verð díselolíu í Bandaríkjunum sex dölum á gallonið, sem samsvarar um 192 krónum á lítra, lauslega reiknað. Verðið hefur aldrei verið hærra í Bandaríkjunum. Trump var spurður út í verðið af blaðamönnum í gær. Hann var einnig spurður út í það hvort hann hefði rætt við Selenskí, eftir að hafa talað við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í síðustu viku. Þá kallaði hann eftir því að Selenskí skipaði úkraínska hernum að hætta árásum á díselvinnslur í Rússlandi. „Herra Selenskí þarf að gera einn hlut,“ sagði Trump og talaði um að nauðsynlegt væri að hætta þessum árásum. Þá sagðist Trump hafa rætt það við Selenskí því árásirnar hefðu valdið skorti í heiminum. Skorturinn kæmi ástandinu í Mið-Austurlöndum ekkert við. „Það er fullt af öðrum skotmörkum. Ekki ráðast á díselolíu, því það er að skaða, það er að skaða heiminn. Við viljum ekki að hann ráðist á díselolíu.“ AP fréttaveitan hefur eftir sérfræðingum Alþjóðlegu orkumálastofnunarinnar að útflutningur díselolíu frá Mið-Austurlöndum hafi í síðasta mánuði verið einungis rétt rúmur fjórðungur af því sem hann var fyrir stríðið gegn Íran. Í febrúar var heildarútflutningur bæði frá Mið-Austurlöndum og Rússlandi tæplega 45 prósent af heimsmarkaðinum.
Sádi-Arabía Íran Jemen Bandaríkin Donald Trump Kóngafólk Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjá meira