Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 09:03 Eftir að hafa afplán þriðjung refsingar má vísa erlendum brotamönnum úr landi. Vísir/Vilhelm Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 lauk heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra (HOF) afgreiðslu á 271 verkbeiðni um fylgd eða brottvísun úr landi. Flest mál varða einstaklinga í ólögmætri dvöl og þar á eftir fangaflutninga eða framsal. Fjörutíu var fylgt úr landi á fyrstu níu mánuðum ársins sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms.
Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra í gær kom fram að flestar verkbeiðnir hafi tengst einstaklingum í ólögmætri dvöl, alls 117 mál, sem svarar til 43 prósenta allra lokinna verkbeiðna á tímabilinu. Skýrsla HOF vegna fylgda. Ríkislögreglustjóri Ólögmæt dvöl er þegar útlendingur dvelst hér á landi án tilskilinna heimilda eða getur ekki sýnt fram á heimild sína til dvalar. Flestir frá Albaníu Í skýrslu embættisins eru tilgreind ríkisföng þeirra sem vísað er úr landi og er Albanía þar algengust, eða alls 37 manns, og svo Rúmenía, nítján manns. Þar á eftir eru sautján frá Spáni, sextán frá Póllandi og svo fjórtán Grikkir. Algengast var að fólki væri vísað til Albaníu, svo Grikklands og Spánar. Næst á eftir komu mál tengd sakaferli, fangaflutningum og framsölum, alls 89 mál (33%). Þar af vörðuðu 40 fylgdir einstaklinga sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms síns og voru því nær helmingur þessa málaflokks. Hælismál voru 55 talsins (20%) en aðstoð við frávísun á landamærum nam níu málum. 70 prósent í fylgd Í tilkynningu kemur fram að af þessum 271 verkbeiðnum hafi 189 verið framkvæmdar með fylgd sem jafngildir um 70 prósentum verkefnanna. Í fylgdarlausum ferðum fylgja lögreglufulltrúar HOF viðkomandi í flug og ganga úr skugga um að viðkomandi yfirgefi landið en í fylgd fara fulltrúarnir með í flugið og fylgja viðkomandi á áfangastað eða í tengiflug á áfangastað. Til samanburðar er í tilkynningu ríkislögreglustjóra bent á að í fyrra hafi alls verið afgreiddar 389 verkbeiðnir og þá hafi hælismál verið stærsti málaflokkurinn með um helming allra verkefna. Gjörbreytt mynd Fyrstu níu mánuði ársins 2026 hafi myndin hins vegar breyst og mál vegna ólögmætrar dvalar tekið við sem stærsti málaflokkur deildarinnar á sama tíma og vægi hælismála hafi dregist saman. Þá kemur fram í tilkynningu að við lok septembermánaðar hafi enn verið 154 verkbeiðnir til afgreiðslu. Af þeim tengjast 82 frávísun eða brottvísun úr hæliskerfi, 44 brottvísun einstaklinga í ólögmætri dvöl og 21 mál var vegna fanga, sakaferla eða framsala. Flest opin mál voru í virkri vinnslu en hluti þeirra beið eftir ferðaskilríkjum eða öðrum nauðsynlegum gögnum. Flestar opnar beiðnir, eða 23, tengjast einstaklingum frá Írak og svo fimmtán einstaklingum frá Venesúela.
Fangelsismál Innflytjendamál Hælisleitendur Albanía Grikkland Pólland Lögreglan Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sjá meira