Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Valur Páll Eiríksson skrifar 4. september 2026 09:01 Hugh Jackman er stuðningsmaður Norwich og vill eignast hlut í félaginu. Samsett/Getty Ástralski Hollywood-leikarinn Hugh Jackman er áhugasamur um að kaupa hlut í Norwich City og vill koma liðinu í ensku úrvalsdeildina.
Ástralinn Jackman hefur stutt liðið frá æsku þar sem móðir hans er frá Norwich. Hann er góður vinur Ryan Reynolds, meðeiganda Wrexham, eftir samstarf þeirra í kvikmyndinni Deadpool & Wolverine og segir þá félaga geta orðið samkeppnisaðila í ensku B-deildinni áður en langt er um liðið. „Ég er mjög áhugasamur – og er í viðræðum um það núna,“ sagði Jackman þegar hann var spurður hvort hann gæti tekið þátt í enskri knattspyrnu. „Þetta er flott hjá Ryan, gerðu þitt, en ég er með augun á kanarífuglunum (e. the canaries, viðurnefni Norwich).“ 👀 "I am very, very interested!"💛💚 "I'm all about the canaries!"Hugh Jackman exclusively reveals to talkSPORT that he is "very interested" in buying a stake in Norwich City! pic.twitter.com/LUXzoguIjB— talkSPORT (@talkSPORT) September 3, 2026 Árið 2023 þáði Jackman boð um að mæta á leik Wrexham ásamt Reynolds, sem á velska félagið ásamt leikaranum Rob Mac. Undir þeirra stjórn hefur Wrexham farið úr utandeildinni í ensku B-deildina með því að fara þrisvar upp um deild á milli 2022 og 2025. Jackman bætti við: „Ég fór nokkrum sinnum á Carrow Road og ég elska kanarífuglana. Þetta er árið sem við munum komast upp um deild. Það er mín spá,“ segir Jackman sem býst við úrvalsdeildarslag við Wrexham næsta vetur. „Mín spá er að Norwich og Wrexham komist upp um deild í ár.“ Jackman er 57 ára gamall og bauðst tækifæri til að fjárfesta í Norwich árið 2010 en hafnaði því. Í viðtali árið 2011 sagði Jackman: „Stundum geri ég stór mistök. Ég fékk bréf fyrir um ári síðan, þar var ég spurður, vegna þess ég væri svona mikill aðdáandi Norwich City, hvort ég vildi fjárfesta í félaginu? Verða minnihluta eigandi.“ „Ég sagði: 'Ég held að það sé svolítið langt gengið, ég hef farið einu sinni á Carrow Road, mamma tók mig með sér,' svo ég ákvað að fjárfesta ekki. Og síðan þá hefur þeim gengið vel, svo hvað veit ég?“ Jackman sá því eftir því strax árið 2011 að hafa hafnað tækifærinu að fjárfesta í félaginu ári fyrr. Ljóst þykir að hann muni ekki hafna tækifærinu öðru sinni.
Enski boltinn Hollywood Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira