Goretzka mættur til Villa Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2026 15:39 Leon Goretzka er fluttur til Birmingham og klár í slaginn með Aston Villa. Aston Villa FC Aston Villa kynnti í dag þýska miðjumanninn Leon Goretzka til leiks en hann kemur til félagsins með gríðarlega mikla reynslu af að fagna meistaratitlum með Bayern München.
Hinn 31 árs gamli Goretzka kemur frítt til Villa eftir að samningur hans við Bayern rann út í sumar. Villa hefur misst fjölda sterkra leikmanna í sumar og þurfti nauðsynlega á kröftugum og góðum miðjumanni að halda eftir að Amadou Onana meiddist í hné með belgíska landsliðinu á HM. Goretzka var í lykilhlutverki á miklum góðæristímum hjá Bayern en hlutverk hans hefur hins vegar verið mun minna síðustu ár, undir stjórn Vincent Kompany. Hann hefur þó á ferilskránni að hafa unnið sjö Þýskalandsmeistaratitla, þrjá bikarmeistaratitla og Evrópumeistaratitilinn árið 2020. Alls lék Goretzka 312 leiki fyrir Bayern og skoraði í þeim 51 mark, á átta árum með þýska stórveldinu. Þá hefur hann spilað 73 landsleiki fyrir Þýskaland, meðal annars þrjá leiki á HM í sumar. Villa-menn, sem eru einnig að landa framherjanum Nicolas Jackson frá Chelsea, hófu leiktíðina skelfilega um síðustu helgi þegar þeir steinlágu gegn Brighton á útivelli, 4-0. Þeir eiga ekki auðveldara verkefni fyrir höndum á mánudagskvöld þegar þeir taka á móti meisturum Arsenal. Villa hafnaði í 4. sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og er því með í Meistaradeild Evrópu í haust og fær að vita mótherja sína þegar dregið verður nú síðdegis.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Sjá meira