Íslenski boltinn

Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkings­vélin mallar á­fram

Aron Guðmundsson skrifar
EIður Smári er mættur aftur í Bestu deildina og á fyrir höndum vandasamt verkefni með KA. Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur eru hins vegar að gera sitt þessi dægrin og halda átta stiga forskoti á toppnum milli umferða.
EIður Smári er mættur aftur í Bestu deildina og á fyrir höndum vandasamt verkefni með KA. Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur eru hins vegar að gera sitt þessi dægrin og halda átta stiga forskoti á toppnum milli umferða. Vísir/Samsett

Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fót­bolta í gær. Eftir­vænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohn­sen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topp­lið Víkings Reykja­víkur tók þá á móti Val í Reykja­víkurs­lag. Sjáðu mörkin úr leikjum gær­dagsins hér í fréttinni.

Víkingur vann öruggan 2-0 sigur á Val í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn þýðir að Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Valur gæti hreinlega sogast niður í fallbaráttuna.

Klippa: Víkingur R. 2-0 Valur

Stjarnan vann sannfærandi 4-2 sigur þegar liðið fékk Þór í heimsókn í Miðgarð í Garðabæinn. Mikilvægur sigur Stjörnunnar en Þórsarar eru áfram í vandræðum í fallbaráttu deildarinnar.

Klippa: Stjarnan 4-2 Þór Ak.

KR vann öruggan 5-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í bráðfjörugum leik sem var sá fyrsti hjá KA undir stjórn Eiðs Smára Guðjohnsen. Aron Sigurðarson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Vesturbæinga. 

Klippa: KA 3-5 KR

ÍA og FH gerðu 1-1 jafntefli á Akranesi. Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en Gísli Eyjólfsson jafnaði metin í síðari hálfleik með skalla. Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli niðurstaðan.

Klippa: ÍA 1-1 FH

Stefan Alexander Ljubicic skoraði eina mark leiksins þegar Keflavík fékk ÍBV í heimsókn í 20. umferð Bestu deild karla. Þetta var annar sigur Keflvíkinga í röð.

Klippa: Keflavík 1-0 ÍBV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×