Svona missti Aron markið sögulega Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2026 08:00 Aron Sigurðarson og félagar í KR hafa þegar tryggt sér 2. sæti Bestu deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2019 þegar liðið varð síðast Íslandsmeistari. vísir/Guðmundur Engin formleg markanefnd er til staðar hjá KSÍ heldur var það mótasvið sambandsins sem tók ákvörðunina um að lagfæra leikskýrslu þannig að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, missti sögulegt mark gegn Fram.
Þetta segir í svari Birkis Sveinssonar, sviðsstjóra mótasviðs KSÍ, við fyrirspurn Vísis vegna marks í leik Fram og KR á dögunum sem á endanum var, réttilega, skráð sem sjálfsmark Kennie Chopart. Sú niðurstaða kallaði á umræðu um hver hefði ráðið breytingunni en samkvæmt upphaflegri leikskýrslu dómara skoraði Aron markið. „Mótasvið KSÍ fær reglulega athugasemdir við skráningu atburða á leikskýrslum. Athugasemdir geta komið meðal annars frá fjölmiðlum, einstaklingum, erlendum tölfræðifyrirtækjum og fleirum. Mótasvið KSÍ fer yfir athugasemdirnar og lagfærir eftir atvikum. Ekki er starfrækt formleg markanefnd, heldur er þetta eitt af mörgum hlutverkum mótasviðs KSÍ,“ segir Birkir. Skoraði síðast í ágúst og þarf að skora í lokaumferðinni Eftir leiðréttingu mótasviðsins er ljóst að Aron hefur ekki skorað í síðustu sex leikjum í röð, eða síðan í ágúst. Aron hefur nú aðeins einn leik til stefnu til að bæta markametið á einni leiktíð í efstu deild í fótbolta, eftir að hafa skorað 20 mörk á leiktíðinni til þessa. Markamet Benonýs Breka Andréssonar frá árinu 2024 er 21 mark svo Aron þarf eitt mark gegn Breiðabliki á laugardaginn til að jafna metið en tvö mörk til að eignast metið alveg sjálfur. Ekki liggur neinn vafi á því að umrætt mark KR gegn Fram 10. október var í raun sjálfsmark Kennie Chopart en ekki mark Arons. Rökstuðningur mótasviðs KSÍ fyrir sinni ákvörðun byggði á reglum um skráningu marka og var á þessa leið: „KSÍ hefur farið yfir skráningu á marki KR gegn Fram 10. okt (mark á 8. mínútu) sem dómari leiksins skráði á Aron Sigurðarson. Við yfirferðina var sérstaklega horft til stefnu og ferils boltans áður en hann hafði viðkomu í leikmanni Fram. Við snertingu leikmanns Fram breytir boltinn um stefnu með þeim afleiðingum að hann fór í markið. Í reglum um skráningu marka í Framkvæmd leikja - Handbók dómara 2026 kemur meðal annars fram að skrá ber mark sem sjálfsmark ef: „2. Leikmaður varnarliðs, viljandi eða óviljandi snertir boltann sem stefndi fram hjá markinu, með þeim afleiðingum að boltinn fór í markið.“ Við skoðun kemur fram að boltinn stefndi fram hjá markinu áður en hann hafði viðkomu í leikmanni Fram og snertingin var því þess valdandi að boltinn fór í markið. Á þeim grundvelli ber því að skrá umrætt mark sem sjálfsmark á leikmann Fram. Leikskýrslan hefur verið uppfærð til samræmi við ofangreint.“
KSÍ Besta deild karla KR Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Sjá meira