Heskey yngri tryggði City titil gegn United Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2026 09:31 Heskey eldri getur verið stoltur af stráknum. Reigan Heskey segir föður sinn hafa fagnað markinu gríðarlega. Samsett/Getty Reigan Heskey tryggði U18 ára liði Manchester City unglingabikar Englands er hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri liðsins á Manchester United í úrslitaleik keppninnar í gærkvöld.
Pep Guardiola, Phil Foden, Antoine Semeyo og Nathan Aké voru á meðal þeirra sem stóðu í stúkunni á Joie-vellinum þar sem úrslitaleikurinn fór fram. Floyd Samba hafði komið City yfir í fyrri hálfleik en Godwill Kukoni jafnaði fyrir United skömmu síðar. 1-1 stóð fram á 87. mínútu þegar 18 ára gamli framherjinn Reigan Heskey skoraði sigurmarkið og tryggði City bikarinn. Hann er sonur Emile Heskey, sem lék í ensku úrvalsdeildinni í frá 1994 til 2012 ár með Leicester, Liverpool, Birmingham, Wigan Athletic og Aston Villa. Reigan Heskey með bikarinn eftir leik í gær.James Gill - Danehouse/Getty Images „Ég er mjög ánægður og hann er stoltur af mér,“ sagði Heskey yngri í viðtali eftir leik og vísaði til föður síns. „Hann fagnaði eins og brjálæðingur, en ég á eftir að hitta á hann,“ sagði Reigan enn fremur eftir leik. „Stundum sýnir hann mér myndbönd, hann var líka framherji og skoraði fullt af mörkum svo ég reyni að nýta mér hluti úr hans reynslubanka,“ segir hann og bætir við: „Hann er pabbi minn og var það þekktur leikmaður að ég mun alltaf fá spurningar um hann og það er allt í fína.“ Reigan Heskey spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Manchester City í sigri á Huddesfield í enska deildabikarnum í haust en eldri bróðir hans, Jaden, þreytti einnig frumraun sína í þeim leik. Reigan er 18 ára gamall framherji og Jaden er tvítugur framliggjandi miðjumaður sem lék með Sheffield Wednesday á síðari hluta tímabilsins. Wednesday féll úr ensku B-deildinni nú í vor. Heskey eldri spilaði alls 516 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 110 mörk. Hann er sjöundi leikjahæstur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Hann skoraði þá sjö mörk í 62 landsleikjum fyrir England. Hann starfar sem yfirmaður þróunar hjá kvennaliði Leicester City í dag. Hann kom hingað til Íslands á vormánuðum þar sem hann var sérstakur gestur á árshátíð Liverpool-klúbbsins á Íslandi.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira