Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 07:01 Paul Scholes og Mohamed Salah sem hefur ekki verið sami leikmaður á þessu tímabili og hann var í fyrra. Getty/Mike Egerton/Robbie Jay Barratt Liverpool er ekki sama fótboltalið og áður og í augum sumra er eins og það hafi hreinlega verið slökkt á áræðni, ákefð og grimmd leikmanna liðsins. Einn besti miðjumaður sögunnar segir að þetta blasi við þeim sem vilji sjá það.
Paul Scholes, goðsögn hjá Manchester United og enska landsliðinu, telur að koma Florian Wirtz, sem kostaði 116,5 milljónir punda síðasta sumar, hafi breytt Liverpool í lið sem heldur meira í boltann og að þar af leiðandi hafi Anfield misst getu sína til að búa til einhvern ótta hjá mótherjum sínum. „Anfield var alltaf erfiðasti völlurinn til að heimsækja,“ sagði fyrrverandi miðjumaður Man Utd í hlaðvarpinu The Good, The Bad and The Football. Ekki lengur til staðar „Jamie Carragher minntist oft á það að stuðningsmennirnir létu þig ekki í friði í leikjum og leikmennirnir ekki heldur. Þeir hafa misst þennan ásetning um að stöðva hitt liðið. Hann er bara ekki lengur til staðar. Þeir eru nánast orðnir lið sem byggir á því að halda boltanum. Florian Wirtz er frábær fótboltamaður en ég held að hann hafi gert þá meira að liði sem heldur boltanum,“ sagði Scholes. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=Un9IqJ135c0">watch on YouTube</a> „Ég held að undir stjórn Jürgen Klopp, og líklega fyrri stjóra hjá Liverpool líka, hafi það síðasta sem þeir hugsuðu um á heimavelli verið að spila fótbolta. Þeir hugsuðu bara um að sparka í þig, valta yfir þig og koma í veg fyrir að þú spilaðir þinn bolta. Núna síðasta eitt og hálft árið er þetta líklega orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á og maður hefði aldrei sagt það um Anfield,“ sagði Scholes. Merkin voru til staðar undir lok síðasta árs „Þeir unnu deildina, það er frábært, en þeir unnu hana frekar snemma á síðasta ári. Auðvitað gefur maður aðeins eftir en merkin voru til staðar undir lok síðasta árs um að þeir hefðu misst ásetninginn um að stöðva andstæðinginn. Þeir eru enn þá góðir, þeir vilja enn þá vera fallegt og snyrtilegt fótboltalið en þú verður að stöðva hitt liðið,“ sagði Scholes. „Þegar við tölum um heimspeki stjóra og fótboltafélaga. Hversu oft töluðum við um að Ruben Amorim kæmi til United með sína eigin heimspeki og spilaði eins og hann vildi? Man Utd hafði sína eigin heimspeki, ég held að þetta sé nánast á svipaðan hátt hjá Liverpool,“ sagði Scholes. Hentar Liverpool ekki „Liverpool er ekki lið sem heldur boltanum, þeir eru það bara ekki – þeir eru úti um allt eins og Jürgen Klopp lið. Núna er hann [Slot] að reyna að gera þetta aðeins öðruvísi og ég held bara að það henti Liverpool ekki,“ sagði Scholes.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira