Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina

Albert í leik dagsins
Albert í leik dagsins Vísir/Getty

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Albert Guðmundsson, skoraði eitt marka Fiorentina í afar kærkomnum fyrsta sigri liðsins í ítölsku úrvalsdeildinni í dag gegn Udinese. Lokatölur 5-1 sigur Fiorentina.

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Fiorentina á yfirstandandi tímabili og var liðið án sigurs á botni ítölsku úrvalsdeildarinnar fyrir leik dagsins gegn Udinese.

Albert var í byrjunarliði Fiorentina í dag en gestirnir í liði Udinese misstu mann af velli með rautt spjald strax á áttundu mínútu og það gerði þeim afar erfitt fyrir. 

Leikmenn Fiorentina gengu á lagið og röðuðu inn mörkunum. Albert skoraði annað mark liðsins og kom Fiorentina þar með í stöðuna 2-0 á 42.mínútu.

Cher Ndour bætti svo við þriðja mark Fiorentina skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks áður en Moise Kean skoraði tvennu á móti einu marki Udinese frá Oumar Solet. 

Lokatölur urðu 5-1 Fiorentina í vil. Fyrsti sigur liðsins á yfirstandandi tímabili í ítölsku úrvalsdeildinni staðreynd. 

Fiorentina vermir enn botnsæti deildarinnar en er nú með níu stig, fimm stigum frá öruggu sæti og enn nóg eftir af deildarkeppninni. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira