Hvasst og samfelld rigning austast Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2025 07:11 Hiti verður á bilinu átta til sextán stig. Vísir/Vilhelm Lægðin sem stjórnað hefur veðrinu á landinu síðustu daga er nú skammt norðvestur af landinu og fjarlægist smám saman.
Á vef Veðurstofunnar segir að í dag beini hún suðvestan- og sunnanátt til landsins, víða kalda eða stinningskalda og skúrum. Það verður heldur hvassara og samfelld rigning austast á landinu fram eftir morgni. Seinnipartinn styttir svo upp á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu átta til sextán stig og hlýjast norðaustantil. Hægari vindur í kvöld. „Á morgun ganga næstu skil vestur yfir landið. Þá gengur í austan og norðaustan 5-13 m/s og fer að rigna í flestum landshlutum, fyrst um landið austanvert. Eftir að skilin ganga yfir dregur úr vætu, en það gerist síðdegis á norðausturhluta landins og annað kvöld vestantil. Hiti 8 til 14 stig. Á fimmtudag er svo útlit fyrir áframhaldandi austan- og norðaustanátt með vætu um landið austanvert, en lengst af þurrt og milt suðvestanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Gengur í austan og norðaustan 8-15 m/s og fer að rigna, en úrkomuminna á Norðurlandi. Hiti 8 til 14 stig. Dregur úr vætu um kvöldið og hvessir allra syðst. Á fimmtudag: Norðaustan og austan 8-15 og dálítil væta með köflum, en samfelld úrkoma syðst fram yfir hádegi. Rigning norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 8 til 15 stig, mildast suðvestantil. Á föstudag: Norðan 10-15 m/s. Rigning eða súld og hiti 6 til 10 stig, en úrkomulítið sunnanlands með hita 10 til 16 stig yfir daginn. Á laugardag: Norðaustanátt og rigning með köflum, en styttir upp um landið suðvestanvert. Kólnar heldur. Á sunnudag og mánudag: Norðaustan- og norðanátt og rigning eða súld með köflum, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Hiti 7 til 15 stig, mildast á Suðurlandi.
Veður Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira