Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 19. október 2026 18:53 Líf Joostdóttir van Bemmel fagnar sigurmarkinu sínu í kvöld. Vísir/Anton Brink Hin nítján ára gamla Líf Joostdóttir van Bemmel tryggði Breiðabliki 21. Íslandsmeistaratitilinn í kvennafótboltanum í kvöld þegar hún skoraði sigurmarkið í Garðabænum.Breiðablik vann 1-0 sigur á Stjörnunni í síðasta leik næstsíðustu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta.Sigurinn færir Blikum sex stiga forskot á FH á toppnum þegar aðeins ein umferð er eftir. Blikakonur nýttu sér óvænt tap FH um helgina og því verður ekkert af úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn á föstudagskvöldið kemur.Markið hjá Líf kom strax á 24. mínútu leiksins en nýjasta landsliðskonan skoraði þá af stuttu færi eftir undirbúning Þórdísar Elvu Ágústsdóttur og Öglu Maríu Albertsdóttur.Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild kvenna Breiðablik Stjarnan Íslenski boltinn Fótbolti