Allt jafnt eftir ó­trú­lega sýningu í Barcelona

Sindri Sverrisson skrifar
Lamine Yamal sýndi hversu stórkostlegur hann er með frammistöðu sinni á Ólympíuleikvanginum í Barcelona í kvöld.
Lamine Yamal sýndi hversu stórkostlegur hann er með frammistöðu sinni á Ólympíuleikvanginum í Barcelona í kvöld. Getty/Michael Regan

Staðan er 3-3 eftir hreint ótrúlegan fyrri leik Barcelona og Inter í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, á Camp Nou í kvöld.

Miðað við skemmtunina sem boðið var upp á í kvöld má ætla að fólk telji dagana fram að seinni leiknum sem fram fer í Mílanó næsta þriðjudagskvöld.

Inter komst yfir eftir aðeins þrjátíu sekúndna leik í kvöld, þegar Marcus Thuram skoraði afskaplega fallegt mark með hælspyrnu, eftir sendingu frá Denzel Dumfries. Hollendingurinn átti svo sjálfur eftir að skora seinni tvö mörk Inter.

Dumfries kom Inter í 2-0 með frábærri hjólhestaspyrnu á 21. mínútu og sjálfsagt margir stuðningsmanna Barcelona þá orðið órólegir.

Þá var hins vegar komið að hinum 17 ára gamla Lamine Yamal. Hann minnkaði muninn gjörsamlega upp á sitt einsdæmi, með einleik og mögnuðu skoti í stöng og inn, allt í anda Lionels Messi.

Ferran Torres jafnaði svo metin af stuttu færi fyrir hálfleik, eftir skallasendingu Raphinha.

Dumfries bætti við þriðja marki Inter á 63. mínútu en strax í kjölfarið náði Barcleona að jafna, með rosalegu skoti Raphinha utan teigs eftir hornspyrnu. Markið skráist reyndar sem sjálfsmark því boltinn fór í þverslána og þaðan í markvörðinn Yann Sommer og inn.

Enn átti hellingur eftir að gerast því Inter skoraði mark sem dæmt var af vegna rangstöðu, þar sem munaði varla sentímetra, og Yamal lyfti boltanum í þverslána, svo eitthvað sé nefnt.

Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri og því enn allt í járnum fyrir leikinn næsta þriðjudag sem ræður því hvort þessara liða fer í úrslitaleikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira