Víða mikil snjókoma og órólegar umhleypingar í kortunum Atli Ísleifsson skrifar 28. janúar 2025 07:07 Spáð er frosti á bilinu eitt til tíu stig, mest inn til landsins. Vísir/Vilhelm Miðja kaldrar smálægðar er nú skammt suður af Reykjanesi og fer lægðin austur og síðar norðaustur í dag og snýr umhverfis sig bökkum með snjókomu eða éljum sem gera víða vart við sig á landinu.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að vindhraði nái sér þó ekki á strik. Seinnipartinn verður miðjan komin að austurströndinni og fer þá að anda af norðri og það ætti að létta til á sunnanverðu landinu. Spáð er frosti á bilinu eitt til tíu stig, mest inn til landsins. Í stuttu máli megi því segja að það verði kalt og tiltölulega rólegt í dag og á morgun en síðan órólegar umhleypingar út vikuna. „Á morgun fer hæðarhryggur yfir landið. Þá er útlit fyrir bjart veður víðast hvar og herðir heldur á frostinu. Á fimmtudag gengur síðan í suðaustan hvassviðri eða storm með rigningu eða slyddu nærri sjávarmáli, annars snjókoma. Hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi þangað til síðdegis og hlýnar smám saman á þeim slóðum. Seinnipartinn á föstudag er síðan von á sunnan stormi með meira afgerandi hlýindum og rigningu og súld á sunnan- og vestanverðu landinu,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Breytileg átt 3-8 m/s. Bjart með köflum og yfirleitt úrkomulaust. Frost 3 til 15 stig, kaldast í innsveitum. Vaxandi sunnanátt við vesturströndina um kvöldið með stöku éljum. Á fimmtudag: Suðaustan 15-23 með rigningu eða slyddu nærri sjávarmáli, annars snjókoma. Hiti 0 til 6 stig. Hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi þangað til síðdegis og hlýnar smám saman á þeim slóðum. Snýst í suðvestan 8-15 á vestanverðu landinu undir kvöld með éljum og kólnar. Á föstudag: Vaxandi sunnan- og suðaustanátt, stormur seinnipartinn með rigningu og súld á sunnan- og vestanverðu landinu. Hlýnandi veður. Á laugardag: Sunnan stormur framan af degi og rigning, talsverð eða mikil á sunnanverðu landinu. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands. Lægir síðdegis, slydda á köflum og kólnandi veður. Á sunnudag: Austlæg og síðar suðlæg átt með slyddu eða snjókomu, en fer yfir í rigningu sunnan- og austanlands og hlýnar. Á mánudag: Snýst í vestanátt með snjókomu eða éljum, en rofar til á austanverðu landinu. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira