Hvassviðri við suður- og vesturströndina Atli Ísleifsson skrifar 22. janúar 2025 07:07 Hiti verður um frostmark en öllu kaldara á norðan- og austanverðu landinu. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spair suðaustanátt í dag, allhvassri eða hvassri við suður- og vesturströndina en annars mun hægari.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði dálítil úrkoma af og til og hiti um frostmark en bjartviðri á norðan- og austanverðu landinu og fremur kalt, eins til þrettán stiga frost. „Úrkomumeira á suður helmingi landsins á morgun, fimmtudag og með hita nálægt frostmarki má búast við að úrkoman geti fallið sem rigning, slydda eða snjókoma. Næst ströndinni ætti þetta að vera lengst af rigning en eftir því sem lengra inná land er haldið færist úrkoman yfir í slyddu eða snjókomu. Fyrir norðan ætti að vera þurrt lengst af og jafnvel að það hláni þar sums staðar að auki. Einna hlýjast ætti að vera suðaustanlands, hiti að 5-6 stigum, en svalara annars staðar. Fjallvegir sunnantil á landinu gætu sumir hverjir orðið erfiðir yfirferðar, svo um að gera að fylgjast með færð fyrir þá sem hyggja að ferðir milli landshluta,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan og suðaustan 5-15, hvassast syðst. Slydda, rigning eða snjókoma með köflum og hiti kringum frostmark. Að mestu þurrt fyrir norðan og frost víða 0 til 7 stig. Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt með snjó- eða slydduéljum í flestum landshlutum, en hvassari og úrkomumeira um tíma norðaustantil. Frost 2 til 8 stig, en hiti nálægt frostmarki norðaustanlands. Á laugardag og sunnudag: Norðaustanátt, fremur hæg. Dálítil él í flestum landshlutum. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins. Á mánudag: Útlit fyrir norðlæg eða breytileg átt og víða þurrt. Frost um allt land, mest inn til landsins. Á þriðjudag: Útlit fyrir hæga breytileg átt með björtu og köldu veðri.
Veður Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira