Má reikna með snjókomu eða éljum síðdegis Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2025 07:48 Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm Smálægð er nú að myndast á Grænlandssundi og nálgast hún landið í dag. Þegar líður á morguninn má því búast við snjókomu eða éljum norðvestantil, og einnig á Suðvesturlandi síðdegis.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að annars verði vindáttin breytileg, víða fimm til þrettán metrar á sekúndu og yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum, en norðaustanlands megi búast við dálitlum éljum. Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og kaldast inn til landsins. „Norðvestan strekkingur og él austantil á landinu á morgun, en hægari vindur og bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Herðir á frosti. Síðdegis dregur úr vindi fyrir austan og styttir smám saman upp. Á fimmtudag er svo útlit fyrir kalt og bjart veður víðast hvar á landinu, en vestantil þykknar upp og dregur úr frosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðvestan 8-15 m/s og dálítil él á Austurlandi. Hægari vindur annars staðar og bjartviðri, en skýjað með köflum norðantil. Frost 5 til 17 stig, kaldast inn til landsins. Á fimmtudag: Sunnan 8-13 norðantil, annars hægari vindur. Þykknar upp vestanlands með stöku éljum, en léttskýjað um landið austanvert. Frost 0 til 15 stig, minnst vestast á landinu. Á föstudag: Suðaustan og sunnan 5-10 og él á víð og dreif. Frost 1 til 12 stig, en hiti kringum frostmark við suðurströndina. Á laugardag: Hægt vaxandi suðaustanátt. Lítilsháttar snjókoma eða rigning og hlýnar smám saman, en bjart og áfram svalt á Norður- og Austurlandi. Á sunnudag: Ákveðin sunnanátt og rigning, talsverð úrkoma sunnan- og vestanlands fram eftir degi. Hlýtt í veðri. Á mánudag: Suðvestanátt og skúrir, en styttir upp á Austurlandi. Áfram milt.
Veður Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira