Tónlist

Sest við flygilinn og setur ís­lenska tón­list í nýjan búning

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Magnús Jóhann og Floni koma saman í Hannesarholti.
Magnús Jóhann og Floni koma saman í Hannesarholti. SAMSETT

Tónlistarmaðurinn og píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson er með marga bolta á lofti. Hann var að senda frá sér EP plötuna Concrete Box og stendur fyrir nýrri tónleikaröð í Hannesarholti undir nafninu Á inniskónum.

Hér má sjá tónlistarmyndband við EP plötuna:

Fannst synd hvað flygillinn fékk litla notkun

Hannesarholt og Magnús Jóhann Ragnarsson hafa hafið samstarf um skipulagningu tónlistarviðburða í Hannesarholti. 

„Störf hans felast í því að bóka tónlist af ýmsum toga inn í Hljóðberg, tónleikasal Hannesarholts og setja saman fjölbreytta dagskrá í hverjum mánuði. Dagskrá aprílmánaðar hefur þegar verið birt og hefur farið glæsilega af stað með tónleikum hljómsveitarinnar ADHD og tvíeykisins Ingibjargar Turchi og Hróðmars Sigurðssonar,“ segir í fréttatilkynningu frá Hannesarholti.

Magnús segist löngum hafa verið aðdáandi Hannesarholts.

„Ég setti mig í sambandi við Hannesarholt því mér þótti synd hvað þessi frábæri tónleikasalur og Steinway flygill fengu litla notkun. Ég stakk upp á því að ég gæti hjálpað þeim að setja saman dagskrá í hverjum mánuði og myndi svo vera með tónleikaröð sjálfur,“ segir Magnús.

Setur íslenska tónlist í nýjan búning

Magnús mun sjálfur setjast við flygilinn í tónleikaröðinni Á inniskónum þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi Íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr.

Fyrsti gestur Magnúsar þann 20. apríl næstkomandi er rapparinn Floni en hann hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins frá því að hann hóf að gefa út tónlist árið 2017. Undanfarin misseri hafa þeir unnið hörðum höndum að því að klára nýja breiðskífu Flona, Flona III. Þeir munu telja í ný lög af plötunni auk eldri slagara, ræða saman um sköpunarferlið og feril Flona.

Tónleikarnir fara fram í Hljóðbergi í Hannesarholti en salurinn tekur 80. manns í sæti og státar af glænýjum hljómflutningsbúnaði, sérvöldum af Bergi Þórissyni. Enn sem áður getur tónlistarfólk sett sig í samband við Hannesarholt og haldið tónleika.

„Mér fannst kjörið að hefja tónleikaröðina mína á því að fá Flona til mín sem gest því við höfum þekkst lengi og unnið mikið saman að tónlist hans og annarra. Ég þekki tónlist hans líka vel, hef spilað hana áður og samið eitthvað af henni með honum. 

Við erum líka að leggja lokahönd á þriðju breiðskífu hans, Flona III, sem hefur verið fimm ár í bígerð. Engill er nýkomið út og hann gefur út nýtt lag í næstu viku þannig að hann er mjög viðeigandi gestur akkúrat núna í apríl.

Floni er líka mjög músíkalskur tónlistarmaður, frábær flytjandi og lagahöfundur þannig að það er líka gaman fyrir fólk að fá að skyggnast aðeins inn í hugarheim hans. Kynnast sköpunarferlinu hans. Hann er til að mynda pródúser sjálfur og hefur gert mikið af töktunum sínum sjálfur og svona.“

Hér má hlusta á EP plötu Magnúsar á streymisveitunni Spotify.

Það er sömuleiðis nóg um að vera í Hannesarholti.

Auk þessara viðburða Magnúsar er eftirfarandi framundan í apríl:

25. apríl spilar Björg Brjánsdóttir ný og samtíma verk á flautu kl. 20:00. 27. apríl Minning um Sumar söngtónleikar með Sólveigu Óskarsdóttur og Önnu Þórhildi Gunnarsdóttur, klukkan 15:00. Seinna sama dag klukkan 17:00 er Syngjum Saman á ensku til heiðurs Dick Ringler sem þýddi ljóð Jónasar á ensku og þann 30. apríl er Kvartett Óskars Guðjónssonar með tónleika í tilefni alþjóða jazzdagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×