Tónlist

Draum­kennd framtíðarvitrun frá heitustu dans­sveit landsins

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Danssveitin Gusgus var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Breaking Down ásamt Urði og Högna.
Danssveitin Gusgus var að senda frá sér tónlistarmyndband við lagið Breaking Down ásamt Urði og Högna. Viðar Logi

Ofurdanssveitin Gusgus var að senda frá sér tónlistarmyndband við splunkunýja útgáfu sem á sér þó langa sögu.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Klippa: GusGus - Breaking Down

Í laginu koma Urður og Högni bæði fram. Þau voru á sínum tíma hluti af Gusgus en hafa ekki verið viðloðin hljómsveitina í mörg ár.

„Þegar Gusgus spilaða tónleika Nasa í „Naughty'isinu“ (árin 2003-2007) var Urður vön að syngja gamla Northern Soul slagara yfir endana á sumum Gusgus lögunum því það var hennar uppáhalds tónlist.

Þegar hún kom til baka á plötunni Arabian Horse og undirbúningur á útgáfutónleikum fyrir hana var í undirbúningi, smellti hún laginu Breaking Down við endan á Gusgus laginu Moss sem hafði þá þegar fengið draumkendan endi með viðbótar hljómagangi.

Þessi samsuða á Moss og Breaking Down hefur síðan iðulega verið lokalag hljómsveitarinnar en aldrei komið út fyrr en núna síðasta föstudag. Lagið var tekið upp árið 2013 með Urði og Högna en með í útgáfunni fylgir einnig upptaka af Moss og Breaking Down frá síðustu tónleikum í Eldborg þar sem Margrét Rán og Daníel Ágúst takast á við lagið,“ segir Biggi Veira, meðlimur Gusgus.

Tónlistarkonan Urður teiknuð í myndbandinu. Stilla úr myndbandi

Tónlistarmyndband við lagið er í anda teiknimyndasagna Jodorowsky og Moebius, draumkennd nostalgísk framtíðarvitrun. Myndbandið var teiknað af Atla Sigursveinssyni sem sá einnig um lokavinnsluna ásamt Loga Sigursveinssyni.

Margrét Rán, Biggi Veira og Daníel Ágúst teiknuð í myndbandinu. Stilla úr myndbandi

Gusgus hefur verið mótandi aðili í íslenskri danstónlist í áratugi og eru hvergi nærri hætt. Þau standa meðal annars fyrir tvennum tónleikum í Gamla bíó 10. og 11. maí næstkomandi og verða með tónleika í Eldborg í nóvember.

Það er alltaf gríðarleg stemning á Gusgus tónleikum. Bent

Hér má hlusta á lagið á streymisveitunni Spotify og hér má sjá myndbandið á Youtube. 


Tengdar fréttir

Galið að geyma lagið í skúffunni

Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur komið víða að í heimi tónlistarinnar undanfarna áratugi. Á dögunum urðu vatnaskil í hans lífi þegar hann ákvað að senda frá sér sitt fyrsta lag undir eigin nafni ásamt tónlistarkonunni Matthildi. Blaðamaður ræddi við Margeir og sömuleiðis má sjá tónlistarmyndband við lagið í pistlinum.

GusGus kom, söng og sigraði

Tveir hljóðfæraleikarar eru að spila í krá í villta vestrinu, annar á kontrabassa og hinn á píanó. Inn á krána gengur illilegur náungi með alvæpni. Bassaleikarinn segir þá við píanóleikarann: „Það er vondur maður að koma... spilaðu í molltóntegund!“

Stjörnulífið: Gellur elska GusGus og Auðunn ástfanginn

Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Fernir stórtónleikar GusGus fóru fram í Eldborgarsal Hörpu um helgina. Sunneva Einars hlakkar til jólanna og Mari Jaersk óskar þess að Tómas Guðbjartsson taki á móti barni hennar einn daginn.

Birnir og GusGus með sumarteknósmell

Teknóhljómsveitin GusGus og rapparinn Birnir sameina krafta sína í nýju lagi, sannkölluðum sumartekósmelli, sem ber nafnið Eða?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×