Menning

Tóku saman höndum fyrir Hendi næst

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var margt um manninn á Ásmundarsafni.
Það var margt um manninn á Ásmundarsafni. SAMSETT

Margt var um manninn í Ásmundarsafni í síðastliðinni viku á opnun sýningarinnar Hendi næst. 

Er um að ræða samsýningu þar sem verk Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) mæta verkum samtímalistamanna sem skapa myndverk með eigin höndum og nýta rótgrónar handverkshefðir við listsköpun sína. Má því segja að fjölbreyttur hópur fólks hafi tekið saman höndum við gerð sýningarinnar. 

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Arna Óttarsdóttir, Árni Jónsson, Carissa Baktay, Elísabet Brynhildardóttir, Hildur Bjarnadóttir, Klemens Hannigan, Ragnheiður Gestsdóttir, Sigurrós G. Björnsdóttir og Sindri Leifsson eru með verk á sýningunni ásamt Ásmundi. Listasafn Reykjavíkur

„Sýningin endurspeglar vaxandi áhuga samtímalistamanna sem og áhorfenda á handverki en jafnframt verður horft til baka til þess að gera grein fyrir því hvernig arfleifð Ásmundar Sveinssonar endurómar í framúrstefnulegri tjáningu samtímans. 

Afturhvarf til handverks má líta á sem andsvar við löngu tímabili konseptlistar, rannsóknamiðaðrar listar og annarra huglægra áherslna í samtímalist, en einnig sem viðbragð við stafrænum veruleika þar sem flest svið mannlífsins hafa færst yfir á vettvang sem er allt annað en fastur í hendi,“ segir í tilkynningu frá safninu. 

Kemur einnig fram að handverk sé gjarnan tengt við gerð hluta sem hafa notagildi. Eitthvað sem hægt er að klæðast eða borða og drekka úr sem dæmi. 

„Áður fyrr var handverk álitið veigaminna listform en málverk og skúlptúr því hlutirnir sem gerðir voru gegndu hlutverki tengt heimilinu. Þetta voru líka skapandi hefðir kvenna sem stóðu höllum fæti gagnvart körlum og þóttu lægri í valdastiganum. 

Á tuttugustu öld urðu mörkin milli listar og handverks óljós, sérstaklega í kjölfar listastefnu eins og Bauhaus, þar sem listamenn fóru að gera tilraunir með handverksaðferðir í listsköpun sinni. Í dag nota samtímalistamenn handverk óhikað í listsköpun sinni. 

Þeir leita nýstárlegra og óvæntra leiða í handverksaðferðum og gera hina aldagömlu umræðu um aðskilnað handverks og listar úrelta.“ 

Ásamt Ásmundi voru eftirtaldir listamenn með verk:

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Arna Óttarsdóttir, Árni Jónsson, Carissa Baktay, Elísabet Brynhildardóttir, Hildur Bjarnadóttir, Klemens Hannigan, Ragnheiður Gestsdóttir, Sigurrós G. Björnsdóttir og Sindri Leifsson.

Hér má sjá myndir frá opnuninni: 

Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Jóna Skúladóttir, Skúli Helgason formaður stjórnar Ásmundarsafns og Becky Forsythe sýningarstjóri Hendi næst.Listasafn Reykjavíkur
Gestir á sýningaropnun. Listasafn Reykjavíkur
Becky Forsythe sýningarstjóri í forgrunni og Ása Hauksdóttir til vinstri við hana. Listasafn Reykjavíkur
Skúli Helgason opnar sýninguna.Listasafn Reykjavíkur
Ásdís Ásmundsdóttir fyrir miðju, dóttir Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur
Sýningargestir voru ánægðir með opnunina. Listasafn Reykjavíkur
Katrín Elvarsdóttir og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.Listasafn Reykjavíkur
Þessar voru í listrænu stuði! Listasafn Reykjavíkur
Listunnendur komu saman á Ásmundarsafni á sýningaropnuninni. Birta Guðjónsdóttir, Damon Younger og Ásdís Spanó voru í góðum gír. Listasafn Reykjavíkur
Gunnar Þorri Gunnarsson og Ása Hjörleifsdóttir með ungan listunnanda. Listasafn Reykjavíkur
Bryndís Snæbjörnsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir og Hildur Bjarnadóttir voru meðal gesta. Listasafn Reykjavíkur
Eygló Harðardóttir lét sig ekki vanta og var í góðum félagsskap. Listasafn Reykjavíkur
Hekla Dögg Jónsdóttir og Eirún Sigurðardóttir skáluðu fyrir listinni. Listasafn Reykjavíkur
Gestir virtu verkin fyrir sér. Listasafn Reykjavíkur
Birta Guðjónsdóttir, Damon Younger og Ásdís Spanó.Listasafn Reykjavíkur
Líf og fjör í listinni. Listasafn Reykjavíkur
Fjölbreyttar kynslóðir mættu og upplifðu listina. Listasafn Reykjavíkur
Þessi brostu breitt á Ásmundarsafni. Listasafn Reykjavíkur
Listamennirnir notuðust við handverk á fjölbreyttan máta og gátu gestir skoðað verkin gaumgæfilega.Listasafn Reykjavíkur





Fleiri fréttir

Sjá meira


×