Fer að snjóa vestast og frost á landinu að tólf stigum Atli Ísleifsson skrifar 17. janúar 2024 07:21 Í nótt og fram eftir degi á morgun er útlit fyrir snjókomu um landið suðvestanvert. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir hægt minnkandi norðanátt í dag, en síðdegis verður þó enn strekkingsvindur suðaustan- og austantil á landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði él norðan- og austanlands, en annars víða bjart. Frost verður á bilinu fjögur til tólf stig. Í kvöld nálgast svo smálægð úr vestri og það fer að snjóa vestast. „Í nótt og fram eftir degi á morgun er útlit fyrir snjókomu um landið suðvestanvert, þeim sem hyggja á ferðalög í þeim landsfjórðungi er bent á að fylgjast með fréttum af færð og veðri. Áfram má búast við éljum norðan heiða, einkum við ströndina. Kalt í veðri og líklegt að frostið nálgist 20 stig í innsveitum norðaustanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og allvíða él, en snjókoma fram eftir degi um landið suðvestanvert. Frost 3 til 18 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10, stöku él og áfram kalt í veðri. Vaxandi austanátt sunnantil á landinu eftir hádegi og hlýnar, 15-23 og snjókoma eða slydda þar seint um kvöldið. Á laugardag: Vestlæg eða breytileg átt og snjókoma eða slydda með köflum, en styttir upp á vestanverðu landinu. Hiti um eða undir frostmarki. Á sunnudag: Norðaustanátt og dálítil él norðanlands, en bjart með köflum sunnan heiða. Kólnandi veður. Á mánudag: Norðlæg átt, stöku él og kalt í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir austanátt með lítilsháttar éljum við suðurströndina.
Veður Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Innlent Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Innlent Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Erlent Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Innlent Fleiri fréttir Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Víða vindasamt á landinu Sjá meira