Enski boltinn

Onana valinn í Afríkumótshóp Kamerún

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
André Onana gæti verið á leið á Afríkumótið.
André Onana gæti verið á leið á Afríkumótið. getty/James Gill

André Onana, markvörður Manchester United, hefur verið valinn í landsliðshóp Kamerún fyrir Afríkumótið í fótbolta.

Onana er í 27 manna hópi Kamerún sem tekur þátt í Afríkumótinu sem hefst 13. janúar og lýkur 11. febrúar. Mótið fer fram á Fílabeinsströndinni.

Onana hefur ekki spilað með Kamerún síðan á HM í fyrra þegar hann hætti í landsliðinu eftir deilur við Samuel Eto'o, forseta kamerúnska knattspyrnusambandsins, og landsliðsþjálfarann Rigobert Song.

Ef Onana ákveður að spila á Afríkumótinu missir hann af allavega fjórum leikjum United í ensku úrvalsdeildinni og gæti jafnframt misst af tveimur bikarleikjum.

Tyrkinn Altay Bayindir mun að öllum líkindum verja mark United í fjarveru Onanas á meðan Afríkumótinu stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×