Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Kolbeinn Kristinsson skrifar 24. október 2026 13:15 Þór náði að tryggja sig áfram í Bestu deild karla á næsta ári. Guðmundur/Vísir Þórsarar tryggðu áframhaldandi veru sína í Bestu deild karla með mikilvægum 2-1 sigri á FH á Pepsi-vellinum í Laugardal í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. FH-ingar komust snemma yfir með marki Adolfs Daða Birgissonar en Þorri Ingólfsson sneri leiknum á haus með tveimur mörkum á aðeins tveimur mínútum. Mikil dramatík var í leiknum og fögnuður Þórsara gríðarlegur þegar lokaflautið gall. Þorri sneri leiknum á haus á tveimur mínútum Leikurinn fór af stað með miklum látum og Þórsarar voru hársbreidd frá því að komast yfir strax á fimmtu mínútu. Ágúst Eðvald slapp þá í gegn eftir skyndisókn og vippaði boltanum yfir Jökul í marki FH, sem hafði komið út úr markinu. Boltinn hafnaði hins vegar ofan á þverslánni. Aðeins tveimur mínútum síðar voru það heimamenn sem fögnuðu. Birkir Valur sendi háan bolta upp hægri kantinn á Gils Gíslason sem keyrði á vörn Þórsara og sendi frábæra fyrirgjöf inn í teiginn. Þar kom Adolf Daði Birgisson á ferðinni og negldi boltanum í netið. FH-ingar voru síðan nálægt því að tvöfalda forystuna á 15. mínútu þegar Jói Bjarni átti skot í stöngina eftir undirbúning Adolfs Daða. Boltinn barst áfram til Gils sem skaut í hliðarnetið. En þá tóku við ótrúlegar mínútur hjá Þórsurum. Á 17. mínútu geystust gestirnir upp í skyndisókn eftir hornspyrnu FH. Ágúst Eðvald slapp í gegn en Óliver Stefánsson komst fyrir skot hans. Frákastið barst til Þorra Ingólfssonar sem lét vaða á nærstöngina og boltinn lak í netið. Jökull í marki FH hefði þar mögulega mátt gera betur. Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Þorri aftur. Bjarni Guðjón Brynjólfsson átti þá fast skot utan teigs sem hafnaði í stönginni. Þorri var fyrstur á frákastið og kom boltanum í svo gott sem autt markið. Þórsarar höfðu þar með snúið stöðunni úr 0-1 í 2-1 á aðeins tveimur mínútum og fögnuður stuðningsmanna liðsins var eftir því. Á 32. mínútu kölluðu Þórsarar síðan eftir vítaspyrnu þegar Þorri féll í teignum eftir viðskipti við Baldur Kára. Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins, lét hins vegar leikinn halda áfram. Spennan hélt áfram og allt ætlaði um koll í leikslok Seinni hálfleikurinn var áfram spennuþrunginn og mikil barátta einkenndi leikinn. FH-ingar þurftu að sækja jöfnunarmarkið á meðan Þórsarar freistuðu þess að verja dýrmætt eins marks forskot. Munurinn var aðeins eitt mark og því gat allt gerst allt fram á lokamínúturnar. Þórsarar héldu hins vegar út og þegar Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins, flautaði til leiksloka ætlaði allt um koll að keyra í Laugardalnum. Stuðningsmenn Þórs, sem höfðu látið vel í sér heyra allan leikinn, þustu inn á völlinn til að fagna með leikmönnum sínum. Fögnuðurinn var gríðarlegur, ósvikinn og stundum meira segja aðeins yfir strikið. Lokatölur 1-2 í Laugardalnum eftir dramatískan leik þar sem Þorri Ingólfsson reyndist hetja gestanna með tveimur mörkum á tveimur mínútum. Atvik leiksins Ótrúlegur tveggja mínútna kafli í fyrri hálfleik stendur upp úr. FH-ingar komust snemma yfir en Þórsarar svöruðu af miklum krafti og sneru stöðunni úr 0–1 í 2–1 á aðeins tveimur mínútum. Þorri Ingólfsson var þar í aðalhlutverki og skoraði bæði mörkin. Einnig vakti athygli atvik á 32. mínútu þegar Þorri féll í vítateig FH eftir viðskipti við Baldur Kára. Þórsarar vildu vítaspyrnu en ekkert var dæmt. Það vantaði sannarlega ekki dramatíkina í fyrri hálfleik! Stjörnur og skúrkar Þorri Ingólfsson var maður fyrri hálfleiksins án nokkurs vafa. Tvö mörk á tveimur mínútum og Þórsarar komnir í lykilstöðu í fallbaráttunni. Ágúst Eðvald var einnig verið sprækur í sóknarleik Þórs og var meðal annars óheppinn að skora ekki þegar hann lyfti boltanum í slána snemma leiks. Hjá FH var Gils Gíslason verið líflegur á hægri kantinum og lagði upp mark Adolfs Daða Birgissonar. Jökull í marki FH hefði hins vegar mátt gera betur í jöfnunarmarki Þórsara og fær því skúrkahlutverkið í bili. Þá má Baldur Kári teljast heppinn að hafa ekki fengið dæmda á sig vítaspyrnu eftir viðskipti sín við Þorra í fyrri hálfleik. Dómarinn Helgi Mikael Jónasson og hans teymi áttu heilt yfir ágætan leik. Virkilega krefjandi leikur að dæma og töluverð harka og barátta einkenndi leikinn, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þó má setja stórt spurningarmerki við atvik á 32. mínútu þegar Þorri Ingólfsson féll í vítateig FH eftir viðskipti við Baldur Kára. Þórsarar kölluðu eftir vítaspyrnu en Helgi Mikael lét leikinn halda áfram. Stemning og umgjörð Það var kalt en bjart og fallegt um að litast í Laugardalnum þar sem mikið var undir í þessum mikilvæga leik liðanna. Alls voru 867 áhorfendur mættir á völlinn og Þórsarar settu heldur betur svip sinn á stúkuna. Stuðningsmenn liðsins hituðu upp í Minigarðinum fyrir leik og létu vel í sér heyra löngu fyrir upphafsflaut. Þeir höfðu klárlega yfirhöndina í stúkunni og fögnuðurinn var gríðarlegur þegar Þórsarar sneru leiknum sér í vil í fyrri hálfleik. Það fór ekki á milli mála hversu mikið var í húfi og stemningin bar þess glöggt merki. Besta deild karla FH Þór Akureyri
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn