Íslenski boltinn

Vestur­bæingar leggja til þjálfara KR: Willum á rangri hillu, Lars, Skarp­héðinn eða fyrsta konan?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þeir koma víða að, þjálfarakostirnir sem Vesturbæingar leggja til.
Þeir koma víða að, þjálfarakostirnir sem Vesturbæingar leggja til. Vísir/Samsett

Margir velta fyrir sér hver eigi að taka við karlaliði KR í fótbolta þessa dagana. Vísir stökk í vettvangsferð í Vesturbæinn í von um niðurstöðu í málinu.

Í Melabúðinni voru þónokkur nöfn lögð til í umræðunni. Fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, Lars Lagerbäck er ásamt Ole Gunnar Solskjær talinn vænlegur kostur. Það er spurning hvort stjórn KR hafi heyrt í þeim.

Einhverjir sjá á eftir Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem var sterklega orðaður við heimkomu í Vesturbæinn og Blikinn Vignir Baldursson, sem spilaði rúmlega 130 leiki í efstu deild fyrir Breiðablik, þykir bestur til verksins samkvæmt dóttur hans.

Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson er nefndur en hann vakti athygli fyrir túlkun sína á handboltaþjálfaranum Skarphéðni í þáttunum Afturelding á RÚV fyrr á árinu. Burtséð frá árangri myndi fæstum leiðast að sjá Ingvar, hvað þá í karakter, á hliðarlínunni að Meistaravöllum.

Hafsteinn Egilsson, sem rekur Rauða ljónið, vill sjá Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, snúa baki við kaldranalegum heimi stjórnmálanna og koma heim í hlýjan faðm Frostaskjólsins. Willum þjálfaði KR áður í tvígang - frá 2002 til 2004 og 2016 til 2017.

Þá þykir einnig kominn tími á kvenkyns þjálfara í efstu deild. Elísabet Gunnarsdóttir, sem er á förum frá Kristianstad eftir áralangt starf, sé í því samhengi draumakandídat.

Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.

Viðmælendur eru Björg Ragnheiður Vignisdóttir, Sveinn Bjarki Tómasson, Fannar Pétur Pálmason, Gísli Marteinn Baldursson, Arnar Dan Kristjánsson, Hafsteinn Egilsson og Úlfhildur Eysteinsdóttur ásamt syni hennar Arnviði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×