Enski boltinn

Ratcliffe finnst kaupin á Casemiro dæmi um slæma kaupstefnu United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Casemiro hefur ekki náð sér á strik í vetur eftir að hafa verið einn besti leikmaður Manchester United á síðasta tímabili.
Casemiro hefur ekki náð sér á strik í vetur eftir að hafa verið einn besti leikmaður Manchester United á síðasta tímabili. getty/Simon Stacpoole

Sir Jim Ratcliffe, sem mun væntanlega eignast fjórðungshlut í Manchester United, finnst félagið hafa farið illa að ráði sínu í leikmannakaupum á undanförnum árum. Að hans mati eru kaupin Brasilíumanninum Casemiro eitt dæmi um það.

Þrátt fyrir að hafa eytt fúlgum fjár í leikmannakaup undanfarin áratug hefur United ekki verið nálægt því að berjast um Englandsmeistaratitilinn síðan Sir Alex Ferguson hætti hjá félaginu 2013.

The Guardian greinir frá því að þegar Ratcliffe heimsótti United í mars síðastliðnum hafi hann nefnt kaupin á Casemiro sem dæmi um hversu mistækt félagið hefur verið á félagaskiptamarkaðnum undanfarin ár.

United keypti Casemiro frá Real Madrid fyrir sextíu milljónir punda í fyrra. Þrátt fyrir að vera þrítugur skrifaði Brassinn undir fjögurra ára samning við United.

Casemiro átti afbragðs gott tímabil með United í fyrra en hefur ekki verið jafn öflugur það sem af er þessu tímabili.

Ratcliffe vill fá að stjórna fótboltamálum hjá United og hefur meðal annars áhuga á að ráða Michael Edwards sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaga. Hann starfaði áður hjá Liverpool og er eignaður heiðurinn af því að hafa meðal annarra fengið Mohamed Salah og Virgil van Dijk til félagsins.

Ratcliffe er einnig eigandi franska úrvalsdeildarfélagsins Nice sem hefur verið duglegt að fá til sín eldri leikmenn, meðal annars markvörðinn Kasper Schmeichel. Nice borgaði þó lítið eða ekkert fyrir leikmennina og þeir fengu ekki langa samninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×