Íslenski boltinn

Sjáðu drauma­byrjun Arons Elíss á­samt öllum mörkunum úr Bestu í gær­kvöldi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar fagna marki í sigrinum á KR á Meistaravöllum í gærkvöldi.
Víkingar fagna marki í sigrinum á KR á Meistaravöllum í gærkvöldi. Vísir/Hulda Margrét

Toppliðin Víkingur og Valur fögnuðu í gærkvöldi bæði sigri í leikjum sínum í sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta en Stjörnumenn tóku aðeins eitt stig með sér úr Kórnum.

Vísir hefur nú tekið saman mörkin úr leikjunum þremur frá því í gærkvöldi og má sjá þau hér fyrir neðan. Umferðinni lýkur svo með tveimur leikjum í kvöld.

Topplið Víkinga er enn með sex stiga forskot á toppnum eftir 2-1 sigur á KR í Vesturbænum.

Aron Elís Þrándarson lék sinn fyrsta leik með Víkingi í níu ár og skoraði seinna markið með laglegum skalla en það fyrra skoraði Helgi Guðjónsson eftir að hafa fengið boltann á silfurfati frá markverði KR. Kristján Flóki Finnbogason minnkaði muninn úr vítaspyrnu.

Patrick Pedersen tryggði Val 1-0 sigur á Fram með eina marki leiksins sem kom strax á sextándu mínútu. Pedersen skoraði markið eftir frábæran undirbúning frá Kristni Frey Sigurðssyni og Aroni Jóhannssyni.

HK og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli í Kórnum. Atli Hrafn Andrason kom HK yfir í fyrri hálfleik en Adolf Daði Birgisson jafnaði metin í þeim seinni.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leikjunum þremur.

Klippa: Mörkin úr leik KR og Víkings
Klippa: Markið úr leik Vals og Fram
Klippa: Mörkin úr leik HK og Stjörnunnar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×