Íslenski boltinn

Hópsýking innan KR-liðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingurinn Atli Sigurjónsson í leiknum á móti FH í gær.
KR-ingurinn Atli Sigurjónsson í leiknum á móti FH í gær. Vísir/Diego

KR vann sigur á FH í gær en þurfti að mæta í leikinn án leikmanna eftir að nokkrir þeirra fengu magapest.

Jóhannes Kristinn Bjarnason, Olav Öby og Sigurður Bjartur Hallsson veiktust allir skyndilega en Sigurður Bjartur hefði líka alltaf misst af leiknum vegna meiðsla.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var spurður út í það eftir leikinn hvort einhver hópsýking væri í gengi í KR-liðnu.

„Já því miður kom upp einhver sýking. Jóhannes missti allt út úr sér í dag og Olav Öby tilkynnti okkur það sama rétt fyrir leik. Sigurður Bjartur hefði ekki spilað vegna meiðsla en það fer líka allt í klósettið hjá honum,“ sagði Rúnar Kristinsson í viðtali við fótbolta.net.

Ástandið í Vesturbænum er farið að minna á það sem var í gangi í kórónuveirufaraldrinum.

„Þetta er ekki gott og við erum að reyna að stía leikmönnum í sundur. Við vorum komnir með sprittbrúsana á loft sem við vorum með í Covidinu og pössum að leikmenn séu ekki að hittast,“ sagði Rúnar.

KR-liðið fær tækifæri til að jafna sig í dag, bæði eftir krefjandi leik og mögulega ef einhver veikindi halda áfram að gera vart við sig.

„Við gefum þeim frí á morgun og reynum að halda þeim í sundur svo við missum ekki fleiri í veikindi,“ sagði Rúnar í fyrrnefndi viðtali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×