Tónlist

„Kol­brún fyrir ári hefði aldrei leyft sér að dreyma um þetta“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Kolbrún Óskarsdóttir var að senda frá sér lagið Áttir allt. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Kolbrún Óskarsdóttir var að senda frá sér lagið Áttir allt. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag. Hafsteinn Snær Þorsteinsson

„Það var stór stökkpallur að fara úr Músíktilraunum yfir í tónlistarbransann á Íslandi. Ótal dyr sem opnuðust, fullt af möguleikum og skemmtilegum tækifærum,“ segir tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir, sem notast við listamannsnafnið KUSK. Hún var að senda frá sér lagið Áttir allt sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan:

Klippa: KUSK - Áttir Allt

Bréf til fyrri tíma

„Lagið var upprunalega samið sem upphafsstef fyrir litla smáskífu sem ég er að vinna í. Ég var bara ein í stúdíóinu að spila á gítar og syngja yfir. Svo hélt lagið einhvern veginn bara áfram og upphafsstefið varð að upphafsstefi fyrir lagið. Textinn er saminn sem eins konar bréf til fyrri tíma, hvernig hlutir minna mann á tíma sem maður átti einu sinni,“ segir Kolbrún og bætir við:

„Innblásturinn kom í rauninni bara út frá góðri stund í stúdíóinu en lagið er allt samið í einu útrásar sessioni.“

Stressandi en gott að prófa nýja hluti

Listamannsnafn KUSK má rekja til þess að Kolbrúnu fannst kusk vera bæði fallegt og vanmetið íslenskt orð. KUSK bar sigur úr býtum í Músíktilraunum í fyrra og segir hún að lífið hafi breyst mikið síðastliðið ár.

„Það var stór stökkpallur að fara úr Músíktilraunum yfir í tónlistarbransann á Íslandi, ótal dyr sem opnuðust, fullt af möguleikum og skemmtilegum tækifærum.

Undanfarið ár er ég búin að gera fullt hlutum sem Kolbrún fyrir ári hefði aldrei leyft sér að dreyma um að gera.

Ég væri algjörlega að ljúga ef ég segði að margir hlutir hefðu ekki verið mjög stressandi, enda er það nú alltaf þannig þegar maður fær að prófa nýja hluti. En á heildina litið hefur tónlistarlífið farið mjög vel með mig, ég hef fengið að kynnast svo mikið af góðu fólki og það sakar ekki að vera með besta vin sinn með sér í því.“

Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá KUSK, sem vinnur mikið með besta vini sínum Hrannari, sem notast við listamannsnafnið Óviti.

„Í sumar mun ég flakka svolítið á milli tónleika og spila á mismunandi stöðum. Einnig erum við Hrannar loksins búin að setja saman live hljómsveit. Við spiluðum fyrstu tónleikana með lifandi undirleik um daginn og það var lengi búið að standa til. Svo er aldrei að vita nema lítil smáskífa sé á leiðinni á næstunni, segir Kolbrún brosandi að lokum.“

Emmsjé Gauti á toppnum

Emmsjé Gauti situr á toppi Íslenska listans á FM í þessari viku með Þjóðhátíðarlagið Þúsund Hjörtu sem hefur slegið í gegn að undanförnu. 

Diljá fylgir á eftir í öðru sæti með lagið Crazy og strákasveitin Iceguys stekkur upp í þriðja sætið með lagið Rúlletta. Hljómsveitina skipa þeir Jón Jónsson, Friðrik Dór, Aron Can, Herra Hnetusmjör og Rúrik Gíslason.

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Fer óhrædd inn í framtíðina

„Einhverjir hafa spurt mig hvort lagið fjalli um að vera foreldri og ég held að það sé að einhverju leyti rétt. Ég fékk allavega innblástur úr móðurhlutverkinu,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN. Hún var að senda frá sér lagið Parísarhjól en lagið kom nýtt inn á Íslenska listann á FM í dag.

Öðlaðist von um að geta sigrað stríðið gegn ofsa­kvíðanum

„Lífinu sem ég hafði þekkt var kippt undan mér og ég þurfti að læra upp á nýtt að lifa með miklum kvíða og vanlíðan, sem var ákveðið áfall fyrir mig,“ segir tónlistarkonan Katrín Myrra. Hún sendi nýverið frá sér smáskífuna Skuggar og er þar að finna lagið Ljósið, sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. Blaðamaður ræddi við Katrínu um tengslin á milli tónlistarinnar hennar og tilverunnar.

Lætur ekkert stoppa sig núna

„Ég ætla bara að leggja allt til hliðar og setja alla orkuna mína í að geta gert það sem mig langar, sem er að verða tónlistarkona og leikkona,“ segir Eurovision farinn Diljá Pétursdóttir, sem sendi nýlega frá sér lagið Crazy. Lagið situr í tíunda sæti Íslenska listans á FM en blaðamaður ræddi við hana um lagið. 

Finnska Eurovision stjarnan stefnir á toppinn

Finnska Eurovision stjarnan Käärijä situr í öðru sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Cha Cha Cha. Hann stekkur upp um sex sæti á milli vikna og stefnir ótrauður á toppinn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×