Tónlist

Fjallar um eigið tilfinningalíf og krísur

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Anna Róshildur notast við listamannsnafnið Róshildur. Hún var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3).
Anna Róshildur notast við listamannsnafnið Róshildur. Hún var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3). Aðsend

Tónlistarkonan Róshildur var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3) en lagið var í dag kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957.

Lagið er hluti af EP plötu sem er væntanleg í næsta mánuði. Róshildur fékk að láni texta Ólafs Hauks Símonarsonar um fólkið í blokkinni, úr samnefndum söngleik, og setur hann í nýjan búning í laginu. Blaðamaður ræddi við Róshildi, sem heitir fullu nafni Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving.

Hægt er að hlusta á lagið í spilaranum hér að neðan:

Klippa: Róshildur - Fólk í blokk (v2,3)

Innblástur frá uppáhalds plötunni

„Fyrir rúmlega þremur árum var ég oft að leika mér að því að taka texta sem mér þótti skemmtilegir eða fallegir og spinna nýjar laglínur og útsetningar af þeim.

Geisladiskurinn Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk var uppáhalds platan mín sem barn svo einn daginn varð titillagið fórnalamb þessara tilrauna hjá minna. Úr því kom eins konar kór útsetning sem svo bara fékk að bíða í skúffunni.“

Einn daginn ákvað Róshildur svo að skoða lagið aftur.

„Þá skellti ég þessu inn í forritið Ableton og fór að byggja syntha í kringum raddirnar. Upprunalegu raddirnar má enn má heyra í introi, millikafla og outroi.

Svo nú þremur árum seinna er ég að setja saman lítið verk í formi EP plötu sem fjallar að mestu um mitt eigið tilfinningalíf og krísur. 

Þá allt í einu var ekki annað hægt en að hafa þetta lag með. Það dregur saman hin lögin og setur þau í samhengi. Að við búum öll í sömu blokk? Þetta lag er dálítil tragíkómík. Textinn er fyndinn en þegar að hann er settur í svona melankólískan hljóðbúning verður hann dramatískur.“

Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá þessari upprennandi tónlistarkonu.

„Fyrst og fremst ætla ég að koma EP plötunni út. Ég er mjög spennt að koma þessu frá mér og út í raunveruleikann. Í sumar flyt ég efnið svo á sviði, til dæmis á hátíðunum LungA á Seyðisfirði og Útkalli á Flateyri. Ég hlakka mikið til að þjálfa framkomuvöðvann og láta lögin lifna við á sviði.“

Hér má hlusta á Róshildi á streymisveitunni Spotify.

Róshildur er bæði tónlistarkona og dansari en hér leikur hún listir sínar fyrir umslag á laginu Fólk í blokk.Aðsend

Käärijä á toppnum

Finnski Eurovision söngvarinn Käärijä trónir aftur á toppi Íslenska listans á FM með hið gríðarlega vinsæla lag Cha Cha Cha. Þá stekkur Diljá upp um átta sæti á milli vikna og situr nú í öðru sæti með lagið sitt Crazy. Emmsjé Gauti er hástökkvari vikunnar á Íslenska listanum en Þjóðhátíðarlagið hans Þúsund hjörtu er komið í áttunda sæti listans.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Lætur ekkert stoppa sig núna

„Ég ætla bara að leggja allt til hliðar og setja alla orkuna mína í að geta gert það sem mig langar, sem er að verða tónlistarkona og leikkona,“ segir Eurovision farinn Diljá Pétursdóttir, sem sendi nýlega frá sér lagið Crazy. Lagið situr í tíunda sæti Íslenska listans á FM en blaðamaður ræddi við hana um lagið. 

Finnska Eurovision stjarnan stefnir á toppinn

Finnska Eurovision stjarnan Käärijä situr í öðru sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Cha Cha Cha. Hann stekkur upp um sex sæti á milli vikna og stefnir ótrauður á toppinn. 

Lærði söng hjá Frikka Dór og á nú hittara með honum

Rapparinn Daniil situr í fjórða sæti Íslenska listans á FM með nýtt lag sem ber heitið Aleinn. Með honum á laginu er enginn annar en Friðrik Dór en Daniil var einungis níu ára gamall þegar hann kynntist Frikka, í gegnum söngtíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×