Tónlist

Drukknaði eftir að hafa tekið blöndu af fíkni­efnum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Carter lést í nóvember á síðasta ári. Þessi mynd var tekin árið 2021.
Carter lést í nóvember á síðasta ári. Þessi mynd var tekin árið 2021. Getty/Gilbert Carrasquillo

Réttarmeinalæknir segir söngvarann og samfélagsmiðlastjörnuna Aaron Carter hafa drukknað í baðkari sínu vegna áhrifa af fíkniefnum sem hann hafði tekið fyrr um daginn. Í líkama hans fundust efni úr Xanax-töflum og efni úr loftúðahreinsiefni.

Aaron Carter fannst látinn þann 5. nóvember síðastliðinn. Hann var 34 ára gamall þegar hann lést en hann fannst í baðkari á heimili sínu í Lancaster í Kaliforníu-ríki. 

Í skýrslu réttarmeinafræðings sem krufði Carter segir að söngvarinn hafi haft fíkniefni í blóðinu þegar hann drukknaði. Mun það hafa valdið slappleika sem olli því að hann drukknaði í baðkari sínu. BBC greinir frá þessu.

Í blóðinu var kvíðalyfið alprazolam, lyf sem einnig er selt undir nafninu Xanax og er algengt að fíklar misnoti. 

Þá var einnig gas úr loftúðahreinsiefni sem Carter hafði líklegast andað að sér skömmu fyrir dauðann. Gasið getur komið fólki í vímu um skamman tíma.

Lögreglan hafði kíkt á heimili söngvarans degi fyrir andlátið. Þá hafði hann verið í beinni útsendingu á Instagram að anda að sér loftúðahreinsiefni. Hann bað lögreglumennina um að fara og seinna um daginn sleppti því hann að mæta á fund með ráðgjafa sem hjálpaði Carter að halda sér frá fíkniefnum. 

Daginn eftir fór kona heim til Carter til að þrífa húsið hans. Hún fann hann þá í baðkarinu og hringdi hún á lögregluna. Var hann úrskurðaður látinn á staðnum.


Tengdar fréttir

Aaron Car­ter látinn 34 ára

Söngvarinn Aaron Carter er látinn 34 aðeins ára gamall. Fjölmiðlar ytra greina frá því að hann hafi látist í baðkarinu heima hjá sér. Ekki er grunur um saknæma háttsemi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×