Veður

Vara­samt ferða­veður austan­lands en bjart suð­vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Það dregur hægt úr vindi eftir hádegi og úr úrkomu seinnipartinn á landinu.
Það dregur hægt úr vindi eftir hádegi og úr úrkomu seinnipartinn á landinu. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til tuttugu um suðaustanvert landið. Reikna má með éljum fyrir norðan, snjókomu austantil og skafrenningi á suðaustanlands og því er enn varasamt ferðaveður á þeim slóðum.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt bjart veður suðvestantil. Það dragi hægt úr vindi eftir hádegi og úr úrkomu seinnipartinn á landinu.

Búist er við frosti, núll til átta stigum, en rétt yfir frostmarki við suður- og suðvesturströndina yfir daginn.Ful viðvörun er í gildi á Austfjörðum til klukkan 15.

„Það verður austanátt á morgun, 5-13 en 13-18 syðst á landinu. Dálítil él fyrir austan en annars þurrt að kalla. Smám saman þykknar upp þegar líður á daginn en úrkoma sem fylgir kemur ekki fyrr en aðfaranótt miðvikudags.

Frá miðvikudegi eru austlægar áttir og rigning eða snjókoma öðru hvoru og talsverð eða mikil úrkoma um landið suðaustanvert. Hlýnandi veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Austan 5-13 m/s, en 13-18 við suðurströndina. Dálítil él víða á landinu, en úrkomulaust að kalla á Vesturlandi. Fer að snjóa sunnanlands um kvöldið. Frost víða 0 til 8 stig, mildast syðst.

Á miðvikudag: Austanátt, víða 10-15 og snjókoma eða slydda, en 15-20 og rigning syðst, úrkomusamast suðaustanlands. Hiti víða 0 til 4 stig, en vægt frost fyrir norðan.

Á fimmtudag: Austan 10-18 og rigning eða snjókoma með köflum, talsverð eða mikil úrkoma austanlands en úrkomuminna vestantil. Hiti 2 til 8 stig en vægt frost norðaustantil.

Á föstudag: Austlæg átt með rigningu, einkum suðaustantil og mildu veðri en slydda eða snjókoma með hita um frostmark norðaustanlands.

Á laugardag: Minnkandi suðaustanátt og rigning suðaustanlands en stöku skúrir annars staðar. Milt í veðri.

Á sunnudag: Útlit fyrir suðlæga átt. Dálítil væta en bjart að mestu austantil. Hiti yfirleitt 2 til 6 stig en um frostmark norðaustanlands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×