Tónlist

„Rússíbaninn heldur áfram“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Brynhildur Karlsdóttir og Friðrik Margrétar- Guðmundsson mynda hljómsveitina Kvikindi ásamt Valgeiri Skorra Vernharðssyni en þau standa fyrir útgáfutónleikum 10. mars.
Brynhildur Karlsdóttir og Friðrik Margrétar- Guðmundsson mynda hljómsveitina Kvikindi ásamt Valgeiri Skorra Vernharðssyni en þau standa fyrir útgáfutónleikum 10. mars. Gunnlöð Jóna

Rafpopphljómsveitin Kvikindi ætlar sér að halda langþráða útgáfutónleika fyrir plötuna Ungfrú Ísland á Húrra 10. mars næstkomandi. Blaðamaður tók púlsinn á meðlimum sveitarinnar en það er sannarlega viðburðaríkt ár að baki hjá þeim.

Bylting og barnsburður

Brynhildur Karlsdóttir, pönkari, lagasmiður og söngkonan í Kvikindi, tók að eigin sögn óvart þátt í byltingu í MH fyrr í vetur.

„Þetta er búið að vera viðburðaríkt ár,“ segir Brynhildur og bætir við: „Ég sópaðist á undarlegan hátt í byltingu menntaskólanema í MH um það leyti sem við vorum að gefa út plötu. Þá var dóttir mín aðeins þriggja mánaða svo við biðum með útgáfutónleikana þar til nú.“

Konfettí sjónarspil

Í fréttatilkynningu frá sveitinni segir meðal annars:

„Kvikindi lofa dansi fyrir allan peninginn, sjónarspili með konfettí og sínu margrómaða rafpoppi sem gagnrýnendur þreytast ekki á að lofsyngja. Kvikindi unnu Kraumsverðlaunin fyrir umrædda plötu, voru tilnefnd til Hlustendaverðlaunanna í fjórum flokkum og komust nýverið á langlista Íslensku tónlistarverðlaunanna.“

Í spilaranum hér að neðan má sjá tónlistarmyndband við lagið Beta, sem sveitin sendi frá sér árið 2020. 

Úr Söngvakeppninni í skemmtistaðatrylling

„Þessi plata notaði í mér allar heilasellur sem ég á og fleiri til,“ segir Friðrik tónskáld, útsetjari og óperuskáld. „Við höfum aldrei flutt plötuna í heild og sum lögin munu heyrast í fyrsta skipti í lifandi flutningi.“

Brynhildur Karlsdóttir og Friðrik Margrétar- Guðmundsson stofnuðu Kvikindi árið 2019. Stuttu síðar slóst Valgeir Skorri Vernharðsson trommari með í för en hann kemur beint úr Söngvakeppninni þar sem hann spilaði með Celebs.

„Ég er ótrúlega þakklátur að koma mér aftur í skemmtistaðatrylling þar sem ég á heima,“ segir Valgeir Skorri trommari sem er enn í spennufalli eftir Söngvakeppnina. „Rússíbaninn heldur áfram og við lofum stuði og kærleika.“

Brynhildur, Friðrik, Valli og Árni Freyr hlakka til að skapa stemningu á Húrra.Aðsend

Með þeim á tónleikunum er gítarleikarinn Árni Freyr og dansararnir Álfheiður Karlsdóttir og Hugi Einarsson. Þá hafa bleik og græn plaköt fyrir tónleikana vakið athygli en auglýsingaefnið er frumraun Matthíasar Tryggva Haraldssonar í grafískri hönnun. Final Boss Type Zero hitar upp fyrir kvöldið en þeir unnu meðal annars Kraumsverðlaunin í fyrra. Nánari upplýsingar má finna hér.

Auglýsingaefnið fyrir tónleikana er frumraun Matthíasar Tryggva Haraldssonar í grafískri hönnun. Matthías Tryggi Haraldsson.

Tengdar fréttir

Brynhildur og Matthías flott saman

Tónlistarmaðurinn og dramatúrgurinn Matthías Tryggvi Haraldsson og söng- og leikkonan Brynhildur Karlsdóttir eru nýtt par.

Frægir fjölguðu sér árið 2022

Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.

Nokkur hundruð nemenda mótmæla við MH

Nemendur við Menntaskólann við Hamrahlíð og öðrum framhaldsskólum krefjast þess að tekið verði af sömu alvöru, ef ekki meiri, á kynferðisbrotum og öðrum ofbeldisbrotum í skólum hér á landi. Allir nemendur eigi rétt á því að vera í öruggu umhverfi. 

Fékk afsökunarbeiðni frá rektor í morgunsárið

Rektor Menntaskólans í Hamrahlíð hefur beðið fyrrverandi nemenda afsökunar á því hvernig tekið var á málinu þegar henni var nauðgað af samnemanda fyrir áratug. Henni hefur verið boðið á fund með skólastjórnendum til að ræða hvað megi betur fara en hún segir dýrmætt að henni sé loksins trúað og að skólinn viðurkenni að það hafi ekki verið brugðist rétt við á sínum tíma.

Óttast að enginn hlusti á mennta­skóla­nema sem verði fyrir of­beldi

Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa mótmælt því í dag og í gær að nemendur við skólann, sem eru þolendur kynferðisofbeldis, þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Fyrrverandi nemandi segir lítið hafa breyst frá því að hann var í þessari sömu stöðu fyrir áratug.

Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum

Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×